Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Student experiences of using AI tools

    No full text

    The Prevalence and Experience of Children on the Sex Offender Register in England and Wales.

    No full text

    I Heard They Suck at Interviews (But We Edited It for Clarity)

    No full text

    The effect of physical activities on fatigue in individuals with systemic lupus erythematosus. Literature review

    No full text
    Bakgrunnur: Systemic Lupus Erythematosus (SLE) er langvinnur sjálfsofnæmissjúkdómur sem getur lagst á mörg líffærakerfi. Einstaklingar með SLE þurfa að takast á við margvísleg vandamál sem geta haft áhrif á andlega líðan og getu þeirra til að sinna athöfnum daglegs lífs. Þreyta er talin vera eitt mest hamlandi einkenni sjúkdómsins sem þessir einstaklingar kljást við og rannsóknir hafa sýnt fram á að óvissu varðandi sé um hvernig sé best að meðhöndla hana. Ein af þeim meðferðum sem hefur verið rannsökuð í tengslum við þreytu hjá einstaklingum með SLE er hreyfing. Tilgangur: Að skoða hvort hreyfing hafi áhrif á þreytu einstaklinga með SLE með því að samþætta niðurstöður nýlegra rannsókna. Aðferð: Gerð var kerfisbundin leit í þremur gagnagrunnum. Leitað var eftir bæði eigindlegum og megindlegum rannsóknum á ensku sem komu út á árunum 2015 til 2025. Einungis var skoðað rannsóknir sem fjalla um áhrif hreyfingar á þreytu hjá einstaklingum með SLE. Notað var PRISMA flæðirit til að lýsa heimildaleit. Niðurstöður: Samtals stóðust 11 rannsóknir inntökuskilyrðin. Niðurstöðum var skipt upp eftir því hvaða tegundir hreyfinga voru rannsakaðar. Æfingarnar sem voru skoðaðar voru loftháðar- , loftfirrtar- og ísótónískar æfingar, fjarþjálfun, gönguæfingar og annars konar æfingar. Flestar rannsóknirnar gáfu til kynna að hreyfing hafi jákvæð áhrif á þreytu einstaklinga með SLE og að hægt sé að mæla með hreyfingu sem meðferð fyrir þessa skjólstæðinga. Niðurstöður benda til þess að æfingar framkvæmdar undir leiðsögn fagfólks skili betri árangri. Ályktun: Niðurstöður þessarar fræðilegu samantektar sýna fram á að hreyfing geti dregið úr þreytu hjá einstaklingum með SLE. Mikilvægt er að þessi sjúklingahópur sé upplýstur um jákvæð áhrif hreyfingar á þreytu og að hann hafi aðgang að þessum meðferðarmöguleika. Hjúkrunarfræðingar eru í lykilhlutverki þegar kemur að því að miðla upplýsingum áfram til skjólstæðinga sinna varðandi slík meðferðarúrræði. Höfundar telja þörf á frekari rannsóknum sem skoða áhrif hreyfingar á þreytu hjá einstaklingum með SLE, þar sem rannsóknirnar í þessari samantekt voru ólíkar og úrtök þeirra lítil. Lykilorð: Rauðir úlfar/SLE, hreyfing, æfingar, þreyta, meðferðir, hjúkrun.Background: Systemic Lupus Erythematosus (SLE) is a chronic autoimmune disease that can affect multiple organ systems. Individuals with SLE face a variety of challenges that may impact their mental health and ability to perform activities of daily living. Fatigue is considered one of the most debilitating symptoms that these individuals struggle with, and research has shown that there is uncertainty about the best way to manage it. One of the aspects that has been studied in relation to fatigue in these individuals is physical activity. Purpose: To examine whether physical activity affects fatigue in individuals with SLE by integrating recent research. Method: A systematic search was conducted from three databases. Both qualitative and quantitative studies published in English between 2015 and 2025 were selected. Only studies that addressed the effects of physical activity on fatigue in individuals with SLE were reviewed. The PRISMA flowchart was used to describe the analysis of the sources. Results: A total of eleven studies met the inclusion criteria. The results were categorized based on the type of physical activity that was studied. The types of exercises considered were aerobic, anaerobic, isotonic and remote exercises, walking and other exercise modalities. Most studies indicated that physical activity had positive effects on fatigue in individuals with SLE and that physical activity could be recommended as a treatment for these patients. The studies suggest that exercise performed under supervision of professionals shows better outcomes. Conclusion: The results of this literature review indicate that physical activity can reduce fatigue in individuals with SLE. It is important that this patient group is informed about the positive effects of physical activity on fatigue and have access to this treatment. Nurses play a key role in passing on this information to their patients regarding such therapeutic approaches. The authors believe that further research is needed to examine the effects of physical activity on fatigue in individuals with SLE as the studies included in this review were diverse and had small sample sizes. Key words: Systemic Lupus Erythematosus/SLE, physical activity, exercise, fatigue, therapeutics, nursing

    Sáttamiðlun í sakamálum : notkun úrræðisins á Íslandi.

    No full text
    Í ritgerðinni er fjallað um notkun sáttamiðlunar í sakamálum á Íslandi en úrræðið byggir á uppbyggilegri réttvísi. Uppbyggileg réttvísi er nálgun sem leggur áherslu á það að bregðast við afbrotum með því að stuðla að sátt og endurreisn frekar en hefðbundinni refsingu. Markmið uppbyggilegrar réttvísi er að draga úr skaða og mæta þörfum þolanda sem hefðbundin réttarkerfi nær oft ekki að gera. Markmið okkar með þessu verkefni er að reyna varpa ljósi á hversu mikið sáttamiðlun hefur verið nýtt í sakamálum frá upphafi á Íslandi og meta útbreiðslu og framkvæmd hennar innan lögregluembætta landsins. Áhersla var lögð á að fá yfirsýn yfir fjölda mála sem hafa farið í sáttamiðlun og hvernig embættin notast við úrræðið. Til þess að nálgast þær upplýsingar var spurningalisti sendur á öll lögregluembætti landsins, héraðssaksóknara og ríkislögreglustjóra. Einnig var stuðst við fræðilegar heimildir um uppbyggilega réttvísi, farið yfir lagalegar forsendur sáttamiðlunar og skilyrði þess að mega sinna sáttamiðlun í sakamálum meðal annars. Svarhlutfall var nokkuð hátt en aðeins eitt embætti gat ekki gefið svör. Niðurstöður sýna að utanumhald og skráning mála sem fara í sáttamiðlun er mjög mismunandi milli embætta. Vegna þess að skráningar eru svo mismunandi gefur það litla yfirsýn yfir tölfræði úrræðisins. Flest embættin voru hins vegar mjög jákvæð fyrir úrræðinu og virðast vilja notast við það í auknum mæli en skortur á tíma innan lögreglunnar hefur einnig áhrif á nýtingu úrræðisins. Ritgerðin varpar einnig ljósi á áskoranir og tækifæri í tengslum við sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi.This thesis examines the use of mediation in criminal cases in Iceland, a measure grounded in the principles of restorative justice. Restorative justice is an approach that emphasizes responding to crime through reconciliation and restoration, rather than through traditional punitive measures. Its primary aim is to reduce harm and address the needs of victims needs that the conventional justice system often fails to meet. The aim of this project is to shed light on the extent to which mediation has been used in criminal cases in Iceland since its introduction and to assess its implementation and prevalence within the country’s police districts. The focus was on gaining an overview of the number of cases that have been referred to mediation and how the various police authorities utilize the measure. To gather this information, a questionnaire was sent to all police districts in Iceland, the District Prosecutor, and the National Commissioner of the Icelandic Police. In addition, scholarly literature on restorative justice was reviewed, as well as the legal basis for mediation and the requirements for conducting mediation in criminal cases. The response rate was relatively high, with only one authority unable to provide answers. The results show that the documentation and tracking of mediation cases vary significantly between districts. Due to these inconsistencies, it is difficult to obtain a comprehensive statistical overview of the measure. However, most police authorities expressed a positive attitude toward mediation and appear willing to make greater use of it, although limited time and resources within the police also impact its implementation. The thesis also highlights the challenges and opportunities related to the use of mediation in criminal cases in Iceland

    The role of sustainable tourism in economic development: A case study of Iceland

    No full text
    This study examines sustainable tourism and its impacts on various factors like the environment, society and the economy. Iceland faced the financial crisis of 2008 and recovered from the exponential growth in the tourism sector, which became the pivotal element of the country’s economic turnover. The rapid growth in the tourism sector also contributed to the country’s GDP while creating employment. Nevertheless, the increase in footsteps brought several challenges such as soil erosion, infrastructural strain, ecological deterioration, and the urgency of resource management. This research applied the qualitative method, highlighting well-known tourist destinations like the Blue Lagoon, The Golden Circle, the National Park ( Þingvellir and Vatnajökull ), and Reykjavík. Furthermore, different sources like Statistics Iceland and UNWTO were used to analyze Maxwell’s framework for the secondary data. The findings of this research highlight Iceland’s advanced sustainable tourism strategies like the Carbon offset program and green certification. With these sustainable practices, Iceland has reduced over tourism’s detrimental effects, promoted collaborations between local communities, and preserved its cultural heritage and Icelandic environment. This research offers action-oriented recommendations for the government, local communities and policymakers like adopting innovative technology and promoting off-season tourism

    Skattlagning lífeyris við inngreiðslu eða við úttekt? : hvor leiðin er betri fyrir ríki, þjóð og einstaklinga?

    No full text
    Lífeyriskerfi gegna lykilhlutverki í efnahags- og félagsmálum, en ólíkar leiðir eru færar við skattlagningu lífeyrissparnaðar. Í þessari ritgerð er borin saman hefðbundin frestuð skattlagning lífeyris (EET, skattlagning við útgreiðslu) og fyrirframgreidd skattlagning (TEE, skattlagning við inngreiðslu) með tilliti til áhrifa á ríkissjóð, þjóðarbú og einstaklinga. Rannsóknarspurningin er hvort betra sé að skattleggja lífeyri þegar iðgjald er greitt eða þegar lífeyrir er greiddur út. Rannsóknin byggir á fræðilegri heimildagreiningu, alþjóðlegum samanburði og megindlegri sviðsmyndagreiningu fyrir Ísland. Þróun lífeyriskerfisins var spáð fram til ársins 2074 undir ólíkum forsendum til að meta afleiðingar kerfisbreytinga. Helstu niðurstöður sýna að hvor skattlagningarleið hefur kosti og galla, TEE skilar ríkissjóði hærri skatttekjum til skamms tíma en munur á heildartekjum reynist lítill til lengri tíma, á meðan EET leiðin hvetur til sparnaðar fyrir einstaklinga vegna skattfrestunar. EET stuðlar jafnframt að auknum þjóðhagslegum sparnaði og fjárfestingu, sem styrkir hagkerfið til lengri tíma. Álykta má að skilyrðislaust svar sé erfitt að fá en niðurstöðurnar benda til að núverandi EET-kerfi veiti traustan ávinning fyrir einstaklinga og samfélag þegar til lengdar lætur

    Hönnun á vatnsendurnýtingarkerfi fyrir laxfiska

    No full text
    Í þessu verkefni var hannað endurnýtingarkerfi (RAS) fyrir tvö samliggjandi eldisker. Verkefnið fólst í því að greina þarfir kerfisins, ákvarða nauðsynlegt vatnsflæði og velja þann búnað sem tryggir stöðugan og öruggan rekstur. Einnig var hannað skipulag fyrir lagnir, palla og aðgengi að búnaði þannig að kerfið verði bæði auðvelt í rekstri og þægilegt í viðhaldi. Markmiðið var að setja fram heildstæða lausn sem gæti nýst sem grunnur að raunverulegri uppsetningu. Niðurstaðan er kerfishönnun sem styður við áreiðanlegan rekstur, skýrt skipulag og gott aðgengi og getur nýst við áframhaldandi þróun og verkhönnun

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇