Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Hand-Hreyfingar að Vélþjarksskipunum

    No full text
    Lokaverkefnið kannar stjórnunaraðferðir fyrir iðnaðarvélmenni. Þar sem sjálfvirkni heldur áfram að þróast eiga hefðbundin stjórnkerfi oft erfitt með að veita þá aðlögunarhæfni sem þarf til samvinnu manna og vélmenna. Að bæta þessi samskipti er lykilatriði til að auka skilvirkni og notagildi í breytilegu umhverfi. Verkefnið kannar samþættingu handhreyfinga til stjórnunar vélþjarks, í leit að notendavænni viðmót

    Byltur á legudeildum Landspítala: Tengsl milli áhættu á vannæringu og afdrifa sjúklinga eftir byltur

    No full text
    Introduction: In-hospital falls are very prevalent around the world. The risk of falling is higher among people 65 years or older. Few studies have investigated the association between in-hospital falls and malnutrition, or the risk of malnutrition, and they indicate that malnutrition is a risk factor for in-hospital falls. Methods: Data on in-hospital falls of inpatients (n=429) 65 years or older in Landspítali - University Hospital in 2023 were extracted from the Hospital’s medical register and incident register. The patients were divided into three groups based on their risk of malnutrition: low, moderate, and high risk. Fall frequency, hospital admission rates, fall-related injuries, patients’ condition when falls occurred, length of hospital stay, discharge destination, and in-hospital mortality were compared between the groups. Results: Among the studied cohort, 34% were at high risk of malnutrition. This study found a high prevalence of hip fractures among inpatients at high risk of malnutrition, with 72.7% of patients who sustained a hip fracture after the fall classified as high risk. Additionally, these patients exhibited higher rates of disorientation (OR 0.42, 95% CI 0.228-0.755, p 0.004) and increased in-hospital mortality (OR 0.24, 95% CI 0.083-0.691, p 0.008). Conversely, those at low risk of malnutrition were more likely to be discharged home (OR 2.93, 95% CI 1.551-5.516, p<0.001). No significant difference was found in fall frequency, hospital admission rates, number of fall-related injuries, and length of hospital stay between those at risk of malnutrition. Conclusion: This study highlights that a high risk of malnutrition is a significant risk factor for adverse outcomes following in-hospital falls, including increased risk of mortality. The results of this study indicate the need for proactive nutritional assessment and interventions to improve patient outcomes in elderly inpatients.skrá 1 er yfirlýsingin og skrá 2 er ritgerðin

    The effects of enhancing parental sensitivity and parent-child attuned interactions on parents' mental health and percieved attachment to their child: An observational secondary data analysis on attachment-based services in Icelandic health care (Family Team 0-5)

    No full text
    Parent-child attachment is fundamental to child development, influencing social, emotional and psychological well-being. While parental mental health challenges can negatively impact children, a strong parent-child attachment serves as a protective factor. This study is an observational secondary data analysis of routinely collected clinical records, conducted to explore the outcomes of psychological treatment in the Family Team as well as offering insights for quality improvement in primary care. The Family Team is an Icelandic health services intervention designed to support parental mental health by enhancing parental sensitivity and parent-child attuned interactions. A mixed methods approach was used, combining a single group, repeated measures design, to assess parental mental health and distress across three stages of therapy and thematic analysis to explore treatment satisfaction. Results showed a significant reduction in depression, anxiety and stress scores over time, along with improvements in dysfunctional parent-child interactions. Medium to large effect sizes suggest meaningful positive changes in parental mental health. However, high variability in individual scores indicates that these improvements are likely attributable to differences between participants and outside factors rather than the intervention itself. Parental satisfaction rates were high, but low respondent rates, the lack of a control group and other methodological challenges limit the generalizability of the findings. Thematic analysis highlighted key themes, including professional support, emotional reflection and practical assistance. The study discusses research limitations, along with recommendations for future research and program development

    Forprófun á foreldramatskvarða um félagshæfni og hegðun 6-15 ára barna og ungmenna

    No full text
    Vöntun er á próffræðilega traustum matstækjum til að meta félags- og tilfinningahæfni barna og ungmenna. Síðastliðin ár hafa rannsóknir í auknum mæli beinst að þessu viðfangsefni og sýnt fram á tengsl félags- og tilfinningahæfni við námsárangur, geðheilsu, og áhættuhegðun hjá börnum og ungmennum. Markmið rannsóknarinnar var að forprófa nýjan foreldramatskvarða sem ætlaður er til að meta félags- og tilfinningahæfni barna og ungmenna 6 til 15 ára. Þátttakendur voru 625 foreldrar barna og ungmenna í grunnskólum á Íslandi. Atriðagreining var gerð á listanum og þáttabygging borin saman milli tveggja aldurshópa; 6-12 ára og 13-15 ára. Niðurstöður leitandi þáttagreiningar gáfu nokkuð skýra sjö þátta lausn í báðum aldurshópum en munur var á þáttunum eftir aldri. Hjá yngri aldurshópnum (n=374) voru þrír þáttanna sérstaklega skýrir og auðtúlkanlegir. Félagsskilningur, Reglufylgni og Umhyggja og samkennd. Hjá eldri aldurshópnum (n=251) voru tveir þáttanna sérstaklega skýrir: Reglufylgni og Umhyggja og samkennd. Þátturinn Félagsskilningur var aftur á móti ekki eins skýr í þessum aldurshópi en atriði sem raðast á þáttinn hlóðu einnig á aðra þætti hjá eldri aldurshópnum. Niðurstöður benda til að matstækið nái vel yfir ákveðnar hugsmíðar en þörf er á að vinna það frekar, fækka atriðum og leggja það fyrir aftur.There is a need for reliable rating scales to assess social and emotional competence of children and youth. In recent years, there has been an increased focus on research in this field. Research have highlighted the association between social and emotional competence and academic achievement, mental health and risk behavior in children and youth. The aim of this study was to pilot test a new parent-reported scale to assess the social competence and behavior of children and youth 6-15 years. Participants were 625 parents of children and youth attending elementary schools in Iceland. Item analysis was conducted to compare constructs between two age groups; 6-12 and 13-15 years. The results of exploratory factor analysis showed seven factors, where some of the factors were similar between the two age groups. In the younger age group (n=374) three of the factors were particularly clear and interpretable: Social understanding, Rule-based behavior and Empathy and care. In the older age group two of the factors were particularly clear: Rule-based behavior and Empathy and care. However, the social awareness factor was not as clear in the older age group. Several items belonging to this factor also had loadings on other factors in this age group. The findings suggest that the instrument captures key constructs well. There is further need for development of this instrument, reduce the number of items and re-administer it in a new sample

    Psychological restoration in second homes: The impact of the environment on well-being and health

    No full text
    Í sífellt hraðari og streituvaldandi nútímasamfélagi leitar fólk í auknu mæli út fyrir daglegt umhverfi sitt til að ná jafnvægi og upplifa endurheimt. Markmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á hvernig frístundahús geta stutt við sálfræðilega endurheimt og heilsu. Sérstök áhersla er lögð á kenninguna um endurheimta athygli (Attention Restoration Theory), þar sem fjórir meginþættir, fjarlægð, hrifning, umfang og samþýðanleiki, eru taldir lykilatriði í því hvernig umhverfi geti stutt við sálfræðilega endurheimt. Verkefnið samanstendur af fræðilegri samantekt ásamt könnun á upplifun notenda frístundahúsa í Skorradal. Framkvæmd var spurningakönnun meðal frístundahúsaeigenda og bárust alls 59 svör. Niðurstöður voru nýttar til að móta hönnunartillögu með áherslu á að skapa rými sem styðja við sálfræðilega endurheimt. Helstu niðurstöður benda til þess að frístundahús gegni mikilvægu hlutverki í lífi fólks sem vettvangur fyrir hvíld, ró og tengingu við náttúru. Ástæður þess að eiga frístundahús tengdust helst löngun til að komast burt frá daglegu amstri, upplifa kyrrð og tengjast náttúrulegu umhverfi. Þeir þættir í umhverfinu sem þátttakendur töldu styðja við endurheimt voru einkum, náttúra, kyrrð, vatn og tilfinningaleg tengsl. Meirihluti þátttakenda taldi mjög líklegt að dvöl í frístundahúsi þeirra stuðli að sálfræðilegri endurheimt. Á grundvelli niðurstaðna var mótuð hönnunartillaga fyrir svæði í Skorradal þar sem lögð var áhersla á að styrkja náttúrulega eiginleika og skapa rými fyrir ró, einrúm og tengingu við náttúru. Niðurstöður verkefnisins styðja við þá hugmynd að frístundahús í náttúrulegu umhverfi geti stuðlað að sálfræðilegri endurheimt, aukinni vellíðan og heilsueflingu í samfélaginu

    Áhrif trausts og tilfinningalegra tengsla í hlaðvörpum: Eru neytendur líklegri til að kaupa vöru sem kynntar eru í hlaðvörpum?

    No full text
    Hlaðvörp hafa á síðustu árum þróast í áhrifaríkan vettvang fyrir markaðssetningu og auglýsingar, þar sem þau ná til fjölbreyttra og sérhæfðra markhópa. Saga hlaðvarpa spannar rúmlega tvo áratugi og hefur þróun á tækni svo sem snjallsíma auðveldað útbreiðslu þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig auglýsingar í hlaðvörpum hafa áhrif á kauphegðun neytenda, með sérstakri áherslu á hvernig einhliða samband, trausts og tilfinningalegra tengsla er við þáttastjórnendur. Sérstaklega var skoðað hvernig slíkar tengingar geta mótað viðhorf og aukið líkur á jákvæðri svörun gagnvart vörum og vörumerkjum. Við rannsóknina var stuðst við fjölbreyttar fræðilegar heimildir, fyrri rannsóknir og greiningu á hlaðvarpsefni. Niðurstöður bentu til þess að hlaðvarpsauglýsingar sem settar eru fram af þáttastjórnendum, sem neytendur treysta og tengjast tilfinningalega, geta haft marktæk áhrif á kaupáform og vörumerkjatryggð. Framlag rannsóknarinnar er að bæta skilning neytenda á hvernig hlaðvörp eru að breyta landslagi markaðssetningar og auglýsinga og veita innsýn í hvernig fyrirtæki geta nýtt þessa nýju miðla til að tengjast neytendum á persónulegri og áhrifaríkari hátt

    Saga segir sögu

    No full text
    Ég fékk 14 konur sem bera nafnið Saga til þess að segja sögur af hlut sem þeim þykir vænt um og hefur einhverja sérstaka merkingu fyrir þær. Með hlut er átt við áþreyfanlegt stykki eða grip. Öll eigum við einhverja sögu um hlut. Sumir hafi litla sem enga þýðingu fyrir okkur meðan að aðrir vekja upp tilfinningar eða gamlar minningar. Við eigum það til að geyma hluti í langan tíma sem við svo hendum þegar þeir hafa ekki tilgang lengur eða detta úr tísku. En svo eru aðrir hlutir sem við höldum fast í, sem okkur þykir vænt um og við vitum að muni fylgja okkur að eilífu. Oft eiga þessir hlutir sér sögu sem gaman er að segja frá eða minnast þegar þeir eru skoðaðir. Í bókinni Saga segir sögu birtast sögur 14 kvenna um hlutina sem þær völdu og ljósmyndir af þeim

    Reiðhjól í Reykjavík 1890–1940: Menningarsaga

    No full text
    Í ritgerðinni er saga hjólreiða í Reykjavík á tímabilinu 1890–1940 rannsökuð út frá sjónarhorni félags- og menningarsögu og sett í alþjóðlegt samhengi. Markmiðið er að skoða hvernig ólíkir hópar á ólíkum tímum nýttu sér reiðhjólið. Fyrstu reiðhjólin sem birtust í Reykjavík um 1890 voru í eigu fólks af yfirstétt og margt bendir til að hjólið hafi verið táknmynd nútímans (e. modernity) og evrópskrar borgarmenningar í þeirra augum. Á millistríðsárunum, þegar hjólið varð hversdagslegt samgöngutæki almennings, missti efsta lagið í samfélaginu smám saman áhuga á hjólreiðum og sneri sér að bifreiðum. Á sama tíma varð til blómleg hjólreiðamenning í Reykjavík, sem þá var lítil og þétt byggð innan Hringbrautarskipulagsins svokallaða. Saga einstaklinga sem hjóluðu á tímabilinu er skoðuð, til dæmis kaupmanna, kennara, hjúkrunarkvenna og verkafólks. Orðræða um hjólreiðar í blöðum er einnig greind í því augnamiði að rannsaka hvernig hugarfar breyttist á tímabilinu. Um leið eru ytri aðstæður til hjólreiða í Reykjavík til umfjöllunar, svo sem því sem lýtur að gatna- og vegakerfi, skipulagsmálum, þéttbýlisgerð og tölum um innflutning. Stuðst er við menningarsögulegar aðferðir Harry Oosterhuis í hjólarannsóknum og hugtak Tiinu Männistö-Funk um ósýnileika hjólsins í sagnaritun. Rýnt er í umræðu blaða, einkaskjöl og ljósmyndir og aðrar heimildir til að kanna hugarfar fólks á ólíkum tímum til hjólreiða.This essay examines the social and cultural history of cycling in Reykjavík during the period 1890–1940 and places it within an international context. The goal is to examine the diverse ways the bicycle was adopted during the period. The first bicycles in Reykjavik in around 1890 were owned by members of the upper class and appear as symbol of modernity and the bourgeoisie. During the interwar years, when the bicycle became an everyday means of transport for the general public, the elites in Reykjavík gradually lost interest in cycling and culturally shifted to automobiles. At the same time, a flourishing cycling culture developed in Reykjavík, which was then a small and densely built city within the so-called Hringbraut urban plan. The thesis looks at the stories of individuals who cycled during this period, such as merchants, teachers, nurses, and laborers. The discourse on cycling in newspapers is also analyzed in order to explore how attitudes changed over time. External conditions for cycling in Reykjavík are also discussed, such as the street and road system, urban planning, and import statistics. The study is based on methods for the bicycle's cultural history developed by Harry Oosterhuis and on Tiina Männistö-Funk's concept of the bicycle's invisibility in historiography

    Raflagnahönnun snjallheimilis : Virkisás 25

    No full text
    Hönnun á öllum raflögnum í tveggja hæða einbýlishúsi sem stendur við Virkisás 25 í Hafnarfirði. Húsið er hannað með það í huga að sett verður upp hússtjórnarkerfið Free@Home frá ABB. Í húsinu eru ýmis kerfi sem þarf að útfæra t.d. loftræstikerfi, gólfhitakerfi og heitur pottur. Snert verður á öllum þáttum tengdum hönnunarferlinu í verkefninu en áhersla er lögð á lýsingarhönnun og hússtjórnarkerfið. Lampaskrá, magnskrá og teikningasett fylgja með í viðauka

    The effects of goal orientation on fear of failure in Icelandic athletes

    No full text
    Previous research has shown that fear of failure can negatively impact athletes' performance, and that goal orientation can impact fear of failure. This study investigates the relationship between fear of failure and goal orientation in Icelandic athletes, with a focus on sport specific differences. Additionally, this study examined gender differences in relation to fear of failure and goal orientation. A total of 156 participants from the top two leagues in football and basketball in Iceland took part in the study by completing the Performance Failure Appraisal Inventory (PFAI) and the Task and Ego Orientation in Sports Questionnaire (TEOSQ). The study examined how task-oriented and ego-oriented goal orientation relate to fear of failure. Descriptive analyses revealed that female athletes reported significantly higher levels of fear of failure and task orientation than males, while male athletes demonstrated higher ego-orientation. A significant negative correlation was found between ego-orientation and fear of failure (Pearson’s r = -0.201), suggesting that athletes with stronger ego-orientation experience less fear of failures. Task orientation showed a weaker, non-significant negative correlation with fear of failure. Independent samples t-tests confirmed gender differences in fear of failure and ego-orientation but found no significant differences across sports. These findings offer valuable insight into how coaching strategies and team environments can be shaped to support athletes' performance and mental health. Keywords: Fear of failure, Goal orientation, Iceland, Football, Basketbal

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇