Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Solving Breakthrough for the 6x6 board

    No full text
    The game Breakthrough is an abstract strategy board game usually played on a chess board. Despite being a simplistic chess variant, determining optimal play strategies is very hard in practice. We have (weakly) solved a variant of the game played on a 6 × 6 board, representing the largest board instance of the game solved to date. We show that the first player can always force a win. To solve a game with such a large state-space we introduce a method of combining endgame tablebases, race pattern, parallelizable proof-number-based solver, and a convolutional neural network based job scheduler to construct a solution tree. Using this we lay a foundation for solving larger sized instances of the game

    „Eina ráðið að harka af sér“ : andleg heilsa íslenskra bænda : álagsþættir, stuðningur og bjargráð

    No full text
    Talið er að fullorðnir einstaklingar verji flestir allt að helmingi vökutíma síns til vinnu og því hafi vinna og vinnuaðstæður mikil áhrif á almenna líðan fólks, sjálfsmynd, líkamlegt heilbrigði og andlega heilsu. Í þessu samhengi hefur ákveðin vitundarvakning átt sér stað síðastliðna tvo áratugi; sérstaklega hvað varðar áhrif langvarandi vinnuálags og vinnutengdrar streitu á andlega líðan og heilsu. Rannsakendur hafa bent á að vissum starfsstéttum sé hættara við að upplifa skaðlega áhrifaþætti vegna erfiðra eða óhagstæðra vinnuaðstæðna, og að slíkt geti haft neikvæðar heilsufarslegar afleiðingar. Ýmsar rannsóknir benda til þess að bændur séu ein þeirra starfsstétta sem oft býr við mikið, langvarandi álag og hefur fjöldi rannsóknarniðurstaðna sýnt fram á einkenni streitu, kvíða og þunglyndis innan stéttarinnar. Tvær rannsóknir hafa verið gerðar til að meta andlega líðan og geðheilsu íslensku bændastéttarinnar en í hvorugri var sérstaklega skoðað hvaða þættir hefðu helst áhrif á vinnuaðstæður bændanna og andlegt heilsufar, né hvort bændur teldu sig búa yfir bjargráðum eða njóta stuðnings. Markmið þessarar rannsóknar er því að leita svara við þessum ósvöruðu spurningum og í þeim tilgangi var send út yfirgripsmikil vefkönnun til starfandi íslenskra bænda. Rannsóknin er megindleg lýsandi þversniðsrannsókn, þar sem tölfræðilegar aðferðir voru notaðar til að svara rannsóknarspurningunni „Hvaða álagsþættir hafa helst áhrif á andlega heilsu starfandi bænda á Íslandi og hafa bændur stuðning og bjargráð til að takast á við þá?“ Þemagreining var einnig notuð til þessa að greina mynstur og ná fram aukinni dýpt og innsýn við úrvinnslu gagnanna. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að starfandi bændur á Íslandi upplifi helst álag vegna rekstrarumhverfis, fjárhagslegs óöryggis, vinnuálags og neikvæðrar umræðu um landbúnað. Verndandi þættir eins og persónulegir eiginleikar og eðlisfar, félagslegur stuðningur og aðgengi að aðstoð, draga úr áhrifum streitu og styðja við andlega heilsu bænda.Most adults are thought to spend up to half of their waking hours at work. Therefore, work and working conditions have a major impact on people’s overall well-being, self-image, and physical and mental health. Within this context, a certain awareness has emerged over the past two decades, particularly with regard to the effects of prolonged workload and work-related stress on mental well-being and health. Researchers have pointed out that certain occupations are more exposed to adverse factors and the resulting negative health consequences than others due to unfavorable working conditions. Various studies indicate that farmers are among the occupational groups that often experience high levels of long-term stress, and a number of research findings have revealed that symptoms of stress, anxiety and depression are prevalent in this occupation. Two studies have been conducted to examine the mental well-being and mental health of Icelandic farmers, but neither of the two specifically examined what factors had the greatest impact on farmers’ working conditions and mental health, nor whether farmers felt they were equipped with coping mechanisms or had access to support. The aim of this study is therefore to seek answers to these unresolved questions. For this purpose, a comprehensive online survey was sent to Icelandic working farmers. The study is a quantitative descriptive cross-sectional study that uses statistical methods to answer the research question „Which stressors have the greatest impact on the mental health of working farmers in Iceland and do the farmers have support and coping strategies to deal with them?“ Thematic analysis was also used to identify patterns and gain greater depth and insight when processing the data. The findings indicate that farmers in Iceland primarily experience stress due to framework conditions, financial insecurity, workload, and negative public discourse on agriculture. Protective factors such as personal characteristics, social support and access to assistance help reduce the impact of stress and support farmers’ mental well-being

    Asset Division in Informal Cohabitation: Does the Current Legal Framework Fulfil the Rule of Law's Requirements of Predictability?

    No full text
    Sambúðarslit meðal fólks í óvígðri sambúð eru tíð og geta haft mikil áhrif á líf þeirra ein-staklinga sem í hlut eiga. Þegar aðilar hafa verið lengi í sambúð verður fjárhagur gjarnan samofinn og aðilar hafa jafnvel fest kaup á eignum á sambúðartíma. Vandasamt getur reynst að meta hlutdeild hvors um sig í eignamyndun þegar upp er staðið, enda fáir sem skrá framlög sín í excel-skjal meðan á sambúð stendur. Ef aðilum tekst ekki að ná samkomulagi um eignarrétt að eignum sínum stendur þeim til boða að sækja um opinber skipti eða höfða dómsmál til viðurkenningar á kröfum sínum. Markmið opin¬berrar skiptameðferðar er að aðstoða aðila við að ná samkomulagi um fjárhagslegt uppgjör og takist það ekki er ágreiningnum beint til dómstóla. Við úrlausn ágreinings um fjárslit í óvígðri sambúð fyrir dómstólum hafa myndast fjölmörg sjónarmið sem beitt er við matið á því hvernig eignar¬hlutdeild skuli ákvarðast. Útgangspunkturinn er að almennar reglur fjármunaréttar eigi við en við sönnunarmatið er beitt fjölskylduréttarlegri nálgun sem endurspeglast í téðum sjónar¬miðum. Tilgangur ritgerðarinnar var að kanna hvort því regluverki sem myndast hefur um mat á eignarhlutdeild og öðrum reglum tengdum fjárslitum aðila í óvígðri sambúð sé beitt af samræmi á fyrirsjáanlegan hátt. Til að varpa ljósi á mikilvægi þess að reglur séu fyrir¬sjáan¬legar, almennar og hlutlausar í eðli sínu voru dregin fram nokkur megineinkenni réttarríkisins og birting lagareglna á réttarsviðinu skoðuð í því ljósi. Til að skoða birtingu lagareglnanna var gerð rannsókn á dómaframkvæmd síðustu 10 ára með áherslu á dómsúrlausnir sem leystu efnislega úr ágreiningi um eignarhlutdeild. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að beiting sjónar¬miðanna er ekki alltaf einhlít og að erfitt getur verið að ráða í hvaða atriði réði úrslitum um tiltekna ákvörðun eignaskiptingar. Af því leiðir að réttarstaðan þótti fremur óljós og taldist tæp¬lega standast kröfur réttarríkisins um fyrirsjáanleika og aðgengileika réttarreglna heldur benda til skerts réttaröryggis enda borgurum ókleift að haga sér í samræmi við réttarreglur sem þeir vita ekki fyrirfram hvernig verður beitt. Vikið var að kenningum fræðimanna um leiðir til úr¬bóta í lok ritgerðarinnar og við blasir ákall um aðkomu löggjafans að lagasetningu til að betur megi fara

    Fordómar gagnvart geðröskunum og félagsleg fjarlægð

    No full text
    Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf almennings á Íslandi til fólks með geðrænan vanda, með sérstakri áherslu á félagslega fjarlægð og orsakatúlkanir. Rannsóknin byggir á spurningalistakönnun sem lögð var fyrir úrtak fullorðinna Íslendinga. Þátttakendur lásu stuttar persónulýsingar (vignettes) um einstaklinga með ólíkan vanda: þunglyndi, geðklofa, áfengisvanda eða dagleg vandamál án greiningar og svöruðu í framhaldinu spurningum sem mátu viðhorf þeirra við mismunandi félagslegar aðstæður. Niðurstöðurnar sýndu að þátttakendur nefndu oftar félagslegar orsakaskýringar, svo sem streitu eða áföll, á meðan líffræðilegar skýringar, til dæmis erfðir eða heilastarfsemi, voru sjaldnar nefndar. Félagsleg fjarlægð reyndist mest gagnvart fólki með geðklofa og áfengisvanda en minni gagnvart fólki með þunglyndi eða dagleg vandamál. Hún var jafnframt meiri í nánari félagslegum tengslum, svo sem vináttu eða fjölskyldutengslum, heldur en í fjarlægari aðstæðum, til dæmis nágrannasambandi. Konur og þeir sem höfðu hærra menntunarstig sýndu almennt minni félagslega fjarlægð. Þá tengdist persónuleg eða óbein reynsla af geðrænum vandamálum jákvæðari viðhorfum og minni fjarlægð. Rannsóknin sýnir að fordómar og félagsleg fjarlægð eru enn til staðar í íslensku samfélagi, þó í mismiklum mæli. Hún undirstrikar mikilvægi fræðslu, vitundarvakningar og aukins sýnileika til að stuðla að jákvæðari viðhorfum og meiri samfélagslegri þátttöku fólks með geðrænan vanda

    Breytingar á virkni í atferlisvirkjunarmeðferð við þunglyndi og áhrif stýrifærni á árangur í meðferð

    No full text
    Major depressive disorder (MDD) is a prevalent and debilitating condition. Activity withdrawal or avoidance is frequently observed in individuals diagnosed with MDD. Behavioral Activation (BA) is an evidence-based treatment that targets activation to produce engagement with positive reinforcement in the environment. Activation refers to participation in goal-directed and positively reinforcing activities. Executive functioning (EF) refers to the brain‘s control panel for executing goal-directed behaviors. This study examined whether BA reduces depressive symptoms, whether increased activation mediates symptom reduction, and whether EF level at baseline moderates treatment response. A total of 68 adults diagnosed with MDD were enrolled. At the time of analysis, 22 participants had completed the 12-session treatment. Depressive symptoms, behavioral activation, and EF were assessed using self-report measures, neuropsychological tests, and ecological momentary assessment (EMA). Multilevel modeling was used to analyze changes over time and allowed for the use of all participation data. Results indicated that BA significantly reduces depressive symptoms and increases activation, with large effect sizes. However, activation did not appear to mediate symptom reduction. Baseline EF showed a marginal moderation effect on symptom reduction. These results support prior research findings of BA as an effective treatment for depression. Further research is warranted to explore the mechanisms of change and individual differences in treatment response

    Afgösun hitaveituvatns í gasskiljum : helstu hönnunarforsendur

    No full text
    Þetta verkefni fjallar um hönnunarforsendur fyrir gasskiljur/afloftunartanka, hvar og hvernig afloftun fer fram á jarðhitavatni undir andrúmsloftsþrýsting þegar það streymir inn. Einnig verður farið yfir hvort það hafi áhrif á afloftun hvernig vatn streymir inn í tankinn, hvort sem er yfir brún sem róar flæðið eða ekki

    Óflekkað mannorð sem skilyrði kosningaréttar á Íslandi, 1843-1984

    No full text
    Hér er fjallað um ákvæðið um óflekkað mannorð sem skilyrði kosningaréttar á Íslandi, þróun þess frá setningu til afnáms og hvernig því var beitt í framkvæmd. Ákvæðið, sem tók gildi með tilskipun konungs um endurreisn Alþingis árið 1843 og var við lýði fram til ársins 1984, var eitt af grundvallarskilyrðum þess að einstaklingur mætti nýta sér rétt sinn til að kjósa í alþingiskosningum. Í gegnum rúmlega 140 ára sögu átti ákvæðið stóran þátt í að skilgreina hverjir voru taldir hæfir og löglegir þátttakendur í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku á Íslandi. Því er hér leitast við að svara fjórum lykilspurningum: Hvað fólst í þessu skilyrði? Hvernig var það túlkað og því beitt? Breyttist sú túlkun með tíð og tíma? Og loks: hvaða aðstæður leiddu til þess að ákvæðið var formlega afnumið úr lögum árið 1984? Ritgerðin byggir á þeirri hugmynd að saga ákvæðisins um óflekkað mannorð varpi ljósi á víðtækari þróun íslensks lýðræðis, réttarfars og viðhorfa til samfélagslegrar þátttöku og endurhæfingar. Val á efninu byggir í fyrsta lagi á því að ákvæðið hefur hingað til verið lítið rannsakað sérstaklega, þrátt fyrir að það hafi haft veruleg áhrif á það hverjir gátu tekið þátt í lýðræðislegum ákvörðunum og hverjir ekki. Í öðru lagi endurspeglar ákvæðið hugmyndir um tengsl á milli siðferðislegrar hegðunar, refsinga og borgararéttinda sem voru ráðandi á 19. og 20. öld, en sem með tímanum tóku að breytast. Þessi breyting felur í sér flókið samspil laga, dómstóla, samfélagslegra viðhorfa og alþjóðlegra áhrifa, einkum frá Norðurlöndunum, sem höfðu þegar fellt niður sambærileg ákvæð

    Áhrif Atg7 á æxlisvöxt í Drosophila melanogaster

    No full text
    Autophagy is a highly conserved catabolic process that is present in all eukaryotes and is an important factor in the formation of various cancers. In this process, ATGs play a vital role. The autophagy-related protein ATG7 mediates the assembly of a double membrane structure known as an autophagosome, which engulfs cytosolic cargo that is intended for degradation. The autophagosome eventually fuses with a lysosome, where the contents enclosed within are degraded and reused by the cell. Autophagy is crucial for proper cellular homeostasis. ATG7 has a role in the development of various diseases, including cancer and the gene codes for three isoforms in humans, two of which have been our main focus. The canonical isoform, ATG7(1), has an autophagy-specific role, whereas ATG7(2) does not. Preliminary studies indicate that isoform two has a significant effect on pancreatic cancer development in humans, one that seems to be independent of autophagy. We aimed to investigate this potentially tumorigenic role of ATG7. To address this, we employed a previously made knockout strain of the gene Atg7 in the model organism D. melanogaster as well as strains where the two human ATG7 isoforms were introduced at the endogenous gene promoter location, respectively. The combination of the genes and benign tumors in eye discs proved to be lethal, however, we saw no significant effect of the genes on eye development by themselves. We measured the effects of the genes on benign tumors at the pupal stage by measuring the total fluorescence in a mosaic eye-antennal disc tumor model, as well as the total area of the fly mass within the pupae. When expressed with benign mosaic tumor cells, human ATG7 isoform one (hATG7(1)) had a significant effect on the tumor area, and hATG7 isoform two (hATG7(2)) had a significant effect on the larval area within the pupae. We determined the state of autophagy in the isoform-expressing strains with western blotting and observed that the hATG7(1)-expressing strain had a complete ablation of the endogenous Atg7 gene, whereas some endogenous expression was still found in the hATG7(2)-expressing strains. This project gave us a better understanding of this important interplay between autophagy and tumorigenesis.Rannís, Krabbameinsfélag Íslands, Biomedical center of Icelan

    Ísland og umheimurinn : Viðhorf Íslendinga til útlendinga á 19. öld

    No full text
    Heilt yfir litið verður að teljast svo að viðhorf Íslendinga til útlendinga á 19. öld hafi verið mjög mismunandi eftir þjóðernum. Það var mikil ólga í hug sjálfstæðismanna aldarinnar og með þeirri fræðslu sem fylgdi upplýsingarstefnunni og svo skýrri afmörkun á milli ólíkra þjóðerna sem fylgdi þjóðernisstefnunni þá breyttist hugur fólks á síðari hluta aldarinnar. Í kjölfarið fylgdu aukin samskipti við útlönd og það má segja að hugur landsmanna hafi opnast með þessum auknu samskiptum. Það greinir verulega á milli annars vegar hug Íslendinga til þeirra ,,framandi” þjóða og hins vegar til þeirra þjóða sem stóðu landsmönnum nærri eða voru þeim kunnugri. Í lýsingum má sjá fordóma stafa af vanþekkingu á framandi eða exótískum þjóðernum eins og úr lýsingum á Grænlendingum og Afríkubúum sem og hræðslu gagnvart þeim hópi Gyðinga frá öðrum löndum en þeim sem voru innan dönsku krúnunnar. Í umfjöllun um kynþætti má greina að álitið var að hinn hvíti væri æðstur allra og hægt væri a skipta þeim niður eftir ágæti þeirra og menningu. Í því samhengi má sennilega vera að fordómar stafi af vanþekkingu eða hræðslu við hið óþekkta eða ókunnuga. Að sama skapi má sjá langvarandi þreytu og tortryggni landsmanna gagnvart yfirgangi franskra fiskimanna sem ógnuðu aflanum, og þar með hag landsmanna, við strendur landsins sem og auknu ósætti alþýðunnar á erlendri verslun í landinu. Í lok aldarinnar virtist fólk vera spennt yfir auknum ferðamannastraumi eins og má sjá úr innsendum greinum í blöðin þegar landsmenn voru hvattir til að leggja sig fram til að veita ferðamönnum hlýjar og sæmandi móttökur. Um þessi viðhorf fjallar ritgerðin og ólíkar birtingarmyndir þeirra

    Performance of companies listed on the First North market compared to the Main Market of Nasdaq Iceland: An analysis of whether companies on First North deliver lower or higher returns and risk compared to those on the Main Market

    No full text
    Ritgerðin fjallar um frammistöðu félaga sem skráð eru á First North markaðinum og Aðalmarkaði Kauphallar Íslands. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort munur sé á ávöxtun og áhættu milli þessara tveggja markaða á fjögurra ára tímabili, frá 2021 til 2025. Notast var við dagleg lokaverð hlutabréfa og reiknaðar mælingar á meðalárlegri ávöxtun og staðalfráviki. Niðurstöðurnar sýna að félög á First North skiluðu að jafnaði neikvæðari ávöxtun og lægri árlegu staðalfráviki en félög á aðalmarkaði. Þó að þessi dreifing sjáist í meðaltölum beggja markaða, bendir greining á einstökum félögum til þess að sveiflur og árangur ráðist einnig af rekstrartengdum þáttum, svo sem stærð, rekstrarsögu og atvinnugrein. Áhrif stórra félaga á vegið meðaltal reyndist mikil, sérstaklega á aðalmarkaði. Það má því draga þá ályktun að hlutabréfamarkaður einn og sér gefi ekki fullkomna mynd af áhættu eða ávöxtun, og að fjárfestar ættu frekar að byggja ákvarðanir á ítarlegri greiningu einstakra félaga og eigin áhættuvilja

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇