Buckinghamshire New University
Not a member yet
17928 research outputs found
Sort by
A Free Trade Agreement with a Giant. A Descriptive Comparative Analysis of Iceland‘s Exports to China
The objective of this thesis is to examine Iceland’s export performance to China before and after the establishment of the 2014 Free Trade Agreement with Iceland. Existing literature, both established theories and previous empirical work, suggests that trade liberalization and free trade agreements are generally associated with increased trade, but their effects on small economies engaging with the large economies through free trade agreements remain limited. To explore this gap, the thesis employs a descriptive comparative analysis to examine Icelandic export trends to China. The thesis uses annual export data of goods from 2010 to 2024 to compare Iceland’s export trends to China with selected comparison countries in Europe and North America which do not have a free trade agreement with China though descriptive analysis of export levels and cumulative growth. The thesis also employs a benchmark comparison with Japan to examine whether export trends are part of regional trends in East Asia. The results suggest that Iceland’s exports to China increased following the agreement but also exhibit volatility and year-to-year fluctuations. Iceland’s export levels remain higher than most of the comparison countries throughout all periods. However, similar export trends are observed in three of the comparison countries, suggesting Iceland’s export growth is not solely related to the agreement. The findings indicate that small economies may experience export growth and improved market access through free trade agreements with larger economies, but also possibly increased exposure and volatility
Innheimta dómsekta á Íslandi: Skýringar á slökum innheimtuárangri og samanburður við Norðurlönd
Viðfangsefni ritgerðarinnar er innheimta dómsekta á Íslandi. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið er ferlið rakið frá því að grunur vaknar um ólögmætt atferli og rannsókn fer fram, þar til ákært er í málinu, það dómtekið og sekt er innheimt, vararefsing er fullnustuð eða málið fellt niður.
Dómsekt er fésekt sem dæmd er vegna brota á lögum, einna helst skattalögum, og er hún mikilvægur hluti af viðbragði ríkisins þegar lögbrot á sér stað.
Ritgerðin byggir meðal annars á þeirri forsendu að misræmi geti skapast milli markmiða löggjafans um hörð viðurlög við skattalagabrotum og þeirra úrræða sem innheimtuaðilar hafa í reynd til að framfylgja stefnunni. Þetta misræmi getur leitt til þess að háar dómsektir innheimtast illa eða ekki og að dómar séu í mörgum tilfellum fullnustaðir með samfélagsþjónustu, sem er ekki í takti við áðurnefndan vilja löggjafans um hörð viðurlög.
Markmið rannsóknarinnar er að greina hvað skýrir lágt innheimtuhlutfall sekta hér á landi, hvaða innheimtuaðferðum er beitt og hvernig staðan er á Íslandi samanborið við önnur lönd.
Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun. Stuðst verður við greiningu á innlendum og erlendum gögnum, þar á meðal skýrslum Ríkisendurskoðunar og viðbrögðum stjórnvalda við ábendingum hennar. Þá eru tekin viðtöl við sérfræðinga í stjórnsýslunni sem hafa sérþekkingu á efninu og samanburður gerður á innheimtuárangri og innheimtuaðferðum til að skoða hvernig Ísland stendur gagnvart Norðurlöndunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um að ákveðin gjá sé á milli markmiða laga um refsingu vegna skattalagabrota og raunverulegrar fullnustu refsingar, en vilji hafi ekki verið til staðar á hinu pólitíska sviði til að gera þær lagalegu breytingar sem til þarf svo að hægt sé að ná markmiðum um innheimtu dómsekta
Impact of UK Beverage Industry Online Advertising on Consumer Perceptions: A Localized Strategic Approach
This study examines the impact exerted on consumer attitudes, behaviors and purchase intentions by online advertising strategies employed in the United Kingdom beverage sector. Focusing on High Wycombe, the study explores the effects of online advertising strategies on brand image, brand loyalty and consumer loyalty dynamics within the UK beverage industry. Implementation of the study involved a positive approach. Survey data obtained from respondents in High Wycombe were quantitatively analyzed using descriptive statistics, correlation, and regression analysis. Significant relationships exist between demographic factors (age, gender, education) and consumer perceptions of online beverage advertisements (p < 0.05). Younger consumers (18-34 years) show more favorable attitudes. Strong positive correlations link Brand Image (BI), Advertising Content (AC), Social Media Engagement (SME), and Customer Purchase Behavior (CPB), with R² = 0.866 and SME as the strongest predictor (r = 0.912); p < α). The uncovering of both demographic and factor-based drivers of consumer perceptions in the UK beverage sector contributes to digital marketing literature and provides practical suggestions for localized strategies in competitive markets. Beverage brands need to refine their online advertising strategies by targeting specific demographics, enhancing creative content, and boosting social media engagement to optimize campaigns, allocate budgets effectively, and maintain competitiveness in the rapidly expanding digital market
Samveruleiki barna og leikskólakennara. Gildi samskipti í námi og mótun sjálfsmyndar
Ritgerðin fjallar um mikilvægi samskipta í leikskólastarfi og hvernig þau móta nám, þroska og sjálfsmynd barna. Markmið hennar er að varpa ljósi á hvernig leikskólakennarar geta meðvitað notað samskipti til að efla tjáningu, trú barna á eigin getu og tilfinningu þeirra fyrir eigin virði. Byggt er á fræðilegri greiningu sem sækir í kenningar Berit Bae um víð og þröng samskiptamynstur, hugmyndir Vygotsky um félagslegt nám og heimspekilega sýn Páls Skúlasonar á samveruleika og siðferðileg gildi. Niðurstöður benda til þess að samskipti sem einkennast af virðingu, hlustun og jafnvægi í valdastöðu styrki sjálfsmynd barna og stuðli að virkni þeirra í eigin námi. Þröng og stýrandi samskipti geta á hinn bóginn dregið úr frumkvæði, forvitni og trú barna á eigin getu. Meginniðurstaðan er að samskipti eru ekki aðeins tæki til kennslu heldur sjálfur grundvöllur náms og sjálfsmyndarmótunar barna. Ritgerðin undirstrikar faglega ábyrgð leikskólakennara og mikilvægi þess að þeir séu meðvitaðir um eigin samskiptamynstur og geri sér grein fyrir áhrifum þeirra á sjálfsmynd og velferð barna
Innovating nursing education through peer enhanced e-placement
The COVID-19 pandemic significantly disrupted traditional clinical placements for nursing students, prompting the development of alternative models such as peer enhanced e-placement (PEEP). PEEP is a virtual, peer-led simulated practice model that offers nursing students an opportunity to gain essential clinical experience in a controlled environment. Grounded in experiential learning and social constructivism, PEEP advances peer collaboration, reflective learning and critical thinking. This article explores the evolution, implementation and evaluation of PEEP. The approach enhances clinical preparedness, increases placement capacity and provides an innovative solution to the difficulties posed by the pandemic; it also helps meet the need for greater placement capacity at a time of staffing and resources constraints
Geng Biao og Ísland: Mikilvægi heimsóknar Geng Biaos til Íslands árið 1979 í myndun sambands Lýðveldisins Íslands og Alþýðulýðveldisins Kína
Utanríkisþjónusta er mikilvægur vettvangur fyrir mismunandi ríki til að koma sínum áformum á framfæri, styrkja sambönd sín og efla milliríkjaviðskipti. Ein af opinberustu aðferðum utanríkisþjónustunnar eru heimsóknir. Opinberar heimsóknir sýna ríkjum að tvö ríki standi saman eða að minnsta kosti eigi í góðu sambandi. Árið 1979 kemur Geng Biao til Norðurlandanna í opinbera heimsókn þar heimsækir hann Noreg, Svíþjóð, Finnland og að lokum Ísland. Tilgangur heimsóknar hans til Norðurlandanna var umdeildur þar sem samband Kína og Sovétríkjanna var mikið hitamál. Í júní 1979 endaði Geng Biao Norðurlandareisu sína á Íslandi. Á tíma heimsóknar hans var samband Íslands og Kína enn í uppbyggingu og var á góðri leið, samt var vafi í loftinu um hvort Kínverjunum ættu að vera treyst. Þrátt fyrir það var heimsókn hans hápunktur sambands ríkjanna á 20. öld. Tilgangur ritgerðarinnar er að rannsaka framvindu heimsóknarinnar og tilgang. Með því að rannsaka gang heimsóknarinnar er hægt að greina hvað þótti mikilvægt, bæði fyrir Ísland og Kína. Til dæmis má nefna að Geng Biao heimsækir ýmis fyrirtæki en hvaða fyrirtæki hann heimsækir gæti sagt ýmislegt til um hvað kínverska ríkisstjórnin hafði áhuga á hvað varðar Ísland. Á hinn bóginn segja þeir staðir sem íslenska ríkisstjórnin fór með Geng Biao sagt til um sjálfsmynd Íslands. Til dæmis má nefna staði eins og Þingvelli og Bessastaði. Í þessari ritgerð eru færð rök fyrir því að helsti tilgangur heimsóknarinnar hafi verið vegna viðskipta ríkjanna tveggja.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að aukning varð í milliríkjaviðskiptum Íslands og Kína árinu eftir heimsókn Geng Biaos og einnig að tilgangur heimsóknarinnar var mun frekar að efla viðskipti heldur en að sporna gegn frekari áhrifum Sovétríkjanna á Íslandi. Þessar niðurstöður sýna fram á bein tengsl milli heimsóknar Geng Biaos og aukningar á viðskiptum sem ýtir enn frekar undir þann punkt að þessi heimsókn hafi verið lykilatriði í þróun sambandsins
Ecology of Hypoponera spp. (Hymenoptera: Formicidae) in Icelandic geothermal areas
Maurar eru ein algengustu skordýr jarðar, og finnast í öllum heimsálfunum að Suðurskautslandinu undanskildu. Á síðustu áratugum hafa maurar numið land á Íslandi og þeim fjölgað, en flestir maurar finnast í hituðum húsum í þéttbýli. Nýlega fundust tvær tegundir maura af ættkvíslinni Hypoponera á íslenskum jarðhitasvæðum. Markmið verkefnisins var að rannsaka dreifingu og vistfræðilega eiginleika tegundanna tveggja nánar. Farnir voru könnunarleiðangrar og framkvæmdar vistfræðilegar kannanir á 33 aðgreindum hverasvæðum víða um land en einnig mánaðarlegar athuganir á 2 svæðum milli mars 2024 og febrúar 2025. Bú húsamaura (H. ergatandria) fundust nokkuð víða, frá vesturenda Reykjaness, víða á Hengilssvæðinu, í Skagafirði, og á Vestfjörðum. Í þessum rannsóknum fundust einnig maurar, sem ekki höfðu verið skráðir á Íslandi áður og við köllum hveramaura (H. eduardi). Útbreiðsla hveramaura nær til jarðhitasvæða umhverfis Hveragerði og upp í Haukadal, og virðist landfræðilega takmarkaðri en hinnar tegundarinnar. Mánaðarlegar athuganir sýndu að hveramaurar eru virkir allt árið um kring, en sambærileg vetrarvirkni sást ekki í húsamaurum sem virðast fara í dvala yfir kaldari mánuðina. Báðar tegundirnar eru enn bundnar við svæði með jarðhita, en kannanir á mauralausum jarðhitasvæðum benda til þess að á flestum þeirra séu ágætis aðstæður fyrir landnám beggja tegunda. Gögnin virðast ekki sýna sterk neikvæð áhrif tegundanna á samfélög hryggleysingja á svæðunum. Engu að síður er mikilvægt að fylgjast áfram með maurum á þessum svæðum svo hægt verði að greina frekari dreifingu og þróun hugsanlegrar ágengrar hegðunar.Ants are among the most ubiquitous invertebrates on Earth, found across all major continents, except for Antarctica. Recently, these small eusocial insects have started arriving in Iceland and are increasing in abundance. While most establish colonies in urban areas, often inside heated buildings, two Hypoponera ant species have been found in Icelandic geothermal areas . This project centres on analysing their distribution and ecology. To do this, structured quadrat surveys were conducted in 33 different geothermal sites across the country and more focused Monthly surveys in 2 areas from March 2024 to February 2025. Populations of H. ergatandria (húsamaur) were discovered on the tip of the Reykjanes peninsula, throughout the Hengill area, to the Skagafjörður region and the Westfjords. Populations of a second ant species, H. eduardi (hveramaur), previously undocumented in Iceland, had more restricted geographic distribution, from Hveragerði to Haukadalur. Colonies of H. eduardi were found active all year round, while H. ergatandria was not documented as active in the winter months. Though the thermal tolerance range of both species appears to restrict their distribution to geothermal areas, majority of the surveyed geothermal sites (including those ant-free) appeared to have favourable environmental conditions, potentially open for further colonisation of the species. The data do not suggest the species exert strong negative effects on native invertebrate communities, though it is important that monitoring is maintained to document their spread and development of potentially invasive behaviour
A fusion sparse learning algorithm for fault identification of rolling bearings
A key part of CNC machine tools is the rolling bearing, and thus, it is vital to employ a data-driven approach for fault diagnosis. This paper proposes a two-stage fusion sparse learning algorithm for fault data processing that can identify and diagnose the fault types of rolling bearings based on sensor measurement data. During the feature extraction phase, temporal features of sequential data within the big data are extracted using a Long Short - Term Memory (LSTM) network. Moreover, the classification learning stage contains a new sparse learning algorithm, which applies L1/2 regularization on stochastic configuration networks (SCN). The iterative learning formula combines the alternating direction method of multipliers (ADMM) with the analysis of the quadratic equations theory. Simultaneously, the model’s inequality supervision mechanism is updated based on convergence analysis. This developed algorithm incorporates the benefits of LSTM in extracting temporal data characteristics, along with the sparsity, ease of convergence, and lightweight nature of SCN. Consequently, it mitigates the shortcomings of deep models in end-to-end applications, particularly in terms of interpretability and structural redundancy, thus making it suitable for deployment on edge devices. Finally, a fusion sparse learning model (LSTM-L1/2-SCN) is introduced based on the two-stage learning algorithm for rolling bearing fault diagnosis. In the experiments on the benchmark dataset, the optimal sparsity degree of this algorithm for the Sparse Coding Network (SCN) reached 76.66%, which was 30% higher than that of the Pooling-based Sparse Coding Network (PSCN). Moreover, in the experiments based on the dataset of Case Western Reserve University (CWRU), the optimal test classification accuracy achieved was 97.51%, and the optimal sparsity degree for SCN reached 29.39%. These results verify that the proposed algorithm exhibits sparsity, demonstrates effectiveness, and is capable of identifying faults in rolling bearings