Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Production of biotech drugs in Iceland.

    No full text
    We are currently experiencing a technological revolution in many respects, with the pharmaceutical group excelling in the use of biotechnology to produce drugs that deliver better results and ensure their safety. In an era of significant economic and demographic challenges, it is important for patients to obtain the highest quality outcomes and revolutionize treatments with new and effective drugs for acute and chronic diseases, known as biosimilars. These biological products result from cutting-edge research that has changed the lives of many patients with novel treatments for various diseases, increasing survival in certain types of oncological diseases. That is why it is important to know what biosimilars are, how they are made, their characteristics, the respective uses that can be given to them, and the regulations regarding their safe use

    Ljósið í myrkrinu: Reynslusaga foreldra sem misstu son sinn af slysförum

    No full text
    Greinargerð þessi er annar hluti af tveimur í 30 eininga lokaverkefni til meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun. Hinn hlutinn er heimildarmynd um reynslusögu foreldra sem misstu son sinn af slysförum. Í myndinni er viðtal tekið við þau um þessa reynslu. Farið er yfir hvernig persóna sonur þeirra var, slysið sjálft, dagana eftir andlátið og hvernig foreldrarnir unnu úr áfallinu. Í greinargerðinni er farið fræðilega yfir sorg, barnsmissi og leiðir til þess að takast á við slíkt áfall, ásamt því að fjallað er um sorg í heimildarmyndum sem tengingu inn í heimildarmyndina mína. Farið er yfir kvikmyndagerðarferlið og fléttast fræðileg umfjöllun einnig við þann hluta

    Lucinity Access Management System (LAMS)

    No full text
    Standing privileges in production environments pose significant security risks: expanded blast radius upon credential compromise, incomplete audit trails, and regulatory non-compliance. Existing Privileged Access Management solutions often require context-switching away from primary work tools, creating friction that discourages adoption. This report presents the Lucinity Access Management System (LAMS), a Just-In-Time access management solution that integrates Microsoft Entra Privileged Identity Management with Slack. LAMS enables users to request, approve, and activate time-bound privileged access without leaving their primary communication platform. Because LAMS operates on PIM-enabled security groups, the architecture inherently supports any resource that can be assigned to an Entra ID security group, extending applicability beyond the systems explicitly addressed in this project. The architecture delegates enforcement to Entra PIM while orchestrating workflows through a Slack-based interface. Evaluation demonstrates measurable improvements: a 50% reduction in approval work-flow steps, minimized context switching, and observed behavioral changes indicating reduced unnecessary access requests. LAMS provides a reference implementation for organizations seeking to modernize privileged access management incrementally, without replacing existing identity infrastructure

    Getur samtal tveggja manna talist sem undirbúningsathöfn í tilraun til hryðjuverka sbr. 1. mgr. 20. gr. og 1. mgr. 100. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940?

    No full text
    Í ritgerð þessari er fjallað um hryðjuverkaákvæði 1. mgr. 100. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem lítið hefur reynt á í íslenskri dómaframkvæmd fram til þessa. Er ákvæðið sérstaklega skoðað í tengslum við tilraunaákvæði hegningarlaganna sbr. 1. mgr. 20. gr. og skoðað hvort samtal tveggja manna geti talist sem undirbúningsathöfn í tilaun til afbrots í skilningi þessara ákvæða. Tilraunaákvæði 1. mgr. 20. gr. hgl. er skoðað sérstaklega og þá hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt til þess að athöfn manna geti talist til undirbúningsathafna í skilningi þess. Einnig er fjallað ítarlega um fyrsta og eina dómsmálið á Íslandi, Lrd. 324/2024, þar sem reyndi á ákvæði 1. mgr. 100. gr. a. Þar kom til álita hvort athafnir tveggja manna á ákveðnu tímabili, þar á meðal samtal þeirra á milli, gætu talist til undirbúningsathafna í tilraun til hryðjuverka sbr. 1. mgr. 100. gr. a. hgl., sbr. 1. mgr. 20. gr. hgl. Niðurstöður ritgerðarinnar sýndu að samtal tveggja manna getur talist til undirbúningsathafna í tilraun til hryðjuverka sbr. 1. mgr. 100. gr. a, sbr. 1. mgr. 20. gr. hgl. Þegar um undirbúningsathafnir er að ræða í tilraun til afbrota sbr. 1. mgr. 20. gr. er þó sett þrengra skilyrði um ásetning heldur en þegar um framkvæmdarathafnir tilraunar er að ræða. Því þyrfti skýr og ótvíræður ásetningur manns um að fremja hryðjuverk að koma fram í samtalinu til þess að samtal tveggja manna gæti talist sem undirbúningsathöfn í tilraun til hryðjuverka sbr. 1. mgr. 100. gr. a. hgl., sbr. 1. mgr. 20. gr. hg

    Þróun í takt við tímann: Aðlögunarhæfni íslenskra handverksbrugghúsa

    No full text
    Handverksbrugghús á Íslandi hafa þurft að aðlaga sig að síbreytilegum markaðsaðstæðum, þar á meðal lagalegum takmörkunum, samkeppni við stærri brugghús og breytilegri neytendahegðun. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig íslensk handverksbrugghús hafa brugðist við þessum áskorunum og hvaða aðferðir þau hafa notast við til að styrkja sína samkeppnisstöðu. Rannsóknin byggist á blandaðri rannsóknaraðferð þar sem bæði eigindleg og megindleg gögn eru greind. Niðurstöður benda til þess að aðlögunarhæfni, nýsköpun og sérstaða séu lykilþættir í velgengni handverksbrugghúsa. Neytendur sýna ört vaxandi áhuga á sérvöldum gæða bjórum, þó ljósi bjórinn sé enn ríkjandi á markaðnum. Það kemur einnig fram að sala beint frá framleiðslustað og aukin markaðssetning gegna mikilvægu hlutverki í auknum sýnileika. Rannsóknin veitir innsýn í þróun handverksbjórs á Íslandi og gefur einnig leiðbeiningar um hvernig brugghús geta viðhaldið samkeppnishæfni í framtíðinni.Craft breweries in Iceland have had to adapt to market conditions, including legal restrictions, competition from larger breweries, and changing consumer behavior. The study aims to analyze how Icelandic craft breweries have responded to these challenges and what strategies they have used to strengthen their competitive position. It employs a mixed research method, combining both qualitative and quantitative data analysis. The results indicate that adaptability, innovation, and uniqueness are key factors in the success of craft breweries. Consumers are increasingly interested in high-quality beers, although blonde lager beer still dominates the market. It also appears that direct sales from the production site, along with increased marketing efforts, are essential for increasing visibility. The study offers insight into the development of craft beer in Iceland and provides guidance on how breweries can maintain competitiveness in the future

    Hringferð á slóðum afturgangna: Þýðing á "25 Draugasögum" eftir Jón R. Hjálmarsson

    No full text
    Verkefnið samanstendur af þýðingu á þjóðsagnasafninu 25 Draugasögur eftir Jón R. Hjálmarsson. Bókin var þýdd úr íslensku yfir á ítölsku, með enska útgáfu bókarinnar til hliðsjónar. Í meðfylgjandi greinargerð er textinn greindur og þýðingaferlinu lýst með sérstöku tilliti til þeirra þátta textans sem höfðu mestu áhrifin á þýðingastefnu mína. Í frumtextanum er ákveðið samspil milli hefða þjóðsagna, draugasagna, ferðasagna og ljóðlistar. Einnig gengdi íslensk menning lykilhlutverki í að móta textann. Þýðingin var unnin með þessi atriði í huga og nokkrar ákvarðanir voru teknar til þess að endurspegla tiltekin einkenni frumtextans á sem nákvæmastan hátt. Enski textinn, sem hafður var til hliðsjónar í ferlinu, gegndi mikilvægu hlutverki í þýðingunni. Þó hann sé nákvæm þýðing á íslenska textanum, var nokkrum hlutum breytt, og þar sem flestar þessara breytinga voru gerðar til þess að gera textann skýrari fyrir útlenda lesendur, vekja þær upp spurningar varðandi áætlaða viðtakendur útgáfnanna tveggja og þ.a.l. þessarar þýðingar. Einnig er rætt um hvernig notkun fleiri en eins frumtexta hefur áhrif á þýðingaferlinu.The assignment consists of a translation of Jón R. Hjálmarsson’s folktale collection 25 Draugasögur (published in English under the title 25 Icelandic Ghost Stories). The text was translated from Icelandic into Italian, with the English edition serving as an additional reference. The following commentary analyzes the source text and describes the translation process with particular attention to the aspects of the text that had the greatest influence on my translation strategy. The source text is the product of multiple literary traditions, namely folktales, ghost stories, travel narrative and poetry. Icelandic culture also plays a key role in shaping the text. The book was translated bearing these aspects in mind and a number of important decisions was made in order to reflect particular features of the text in as accurate a manner as possible. The English edition of the book, which acted as a secondary source text, played an important role in the translation process. While it is a faithful translation of the Icelandic text, a few changes were made to it, and because the purpose of most of these changes was to make the text more understandable for foreign readers they raise questions concerning the intended readership of both the Icelandic and the English edition, as well as of the present translation. The effects that the use of multiple source texts had on the translation process is also discussed

    This is how I was made

    No full text
    Einstaklingar sem getnir eru með gjafasæði geta staðið frammi fyrir áskorunum sem tengjast líffræðilegum uppruna þeirra og sjálfsmynd. Rannsóknir benda til þess að forvitni um líffræðilegan uppruna sé mismikil eftir einstaklingum og geti verið háð fjölskyldugerð og tengslum einstaklinganna við foreldra. Opin samskipti innan fjölskyldu geta haft jákvæð áhrif á tengsl og aðlögun, en skortur á upplýsingum um líffræðilegan uppruna getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd og andlega líðan einstaklinga. Þá getur aðkoma ráðgjafa skipt máli í undirbúningi foreldra fyrir upplýsingagjöf til barnsins og stuðning við þá einstaklinga sem vilja leita uppruna síns. Rannsóknarniðurstöður benda til þess að þeir einstaklingar sem fá upplýsingar um uppruna sinn snemma á ævinni eigi auðveldara með að aðlagast og viðhalda sterkum fjölskyldutengslum. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða upplifun einstaklinga sem getnir eru með gjafasæði, tengslamyndun þeirra við foreldra og hlutverk ráðgjafar í ferlinu

    Að mæta manneskjunni, ekki hegðuninni: Þjónandi leiðsögn í krefjandi starfsumhverfi

    No full text
    Verkefnið „Að mæta manneskjunni, ekki hegðuninni – Þjónandi leiðsögn í krefjandi starfsumhverfi“ fjallar um hvernig þjónandi leiðsögn getur speglað siðferði og fagmennsku í starfi með einstaklingum sem þurfa stuðning. Verkefnið saman stendur af fræðilegri greinargerð og hagnýtri handbók sem styður við starfsfólk í innleiðingu aðferðarinnar. Þjónandi leiðsögn byggir á fjórum grunnstoðum: Őryggi, þátttöku, að sýna umhyggju og að finna / taka á móti umhyggju. Verkefnið styður við réttindamiðaða og valdeflandi nálgun sem hefur skýra tengingu við fötlunarfræði og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Niðurstöður benda til þess að þjónandi leiðsögn skapi traust, dýpri tengsl og bætt lífsgæði í þjónustu við fatlað fólk

    The relations between raw material selection and silica fume attributes during Ferro Silicon furnace operations

    No full text
    Elkem Iceland operates with three submerged electrical arc furnaces that produce ferrosilicon of different production grades. A byproduct of the process is silica fume, which is collected in the baghouse filters. When producing different quality metal grades on the furnaces, in particular over prolonged periods, the silica fume seems to have different textures and in some cases, contributing to difficult filter operation depending on the quality metal grade produced. This thesis will therefore look into the main differences in physical and chemical attributes of silica fume produced during different metal production grades. Samples of silica fume were analyzed with elemental and physical analysis, such as XRF, LECO C analysis, SEM, EDS, XRD, PSD, and BET. A correlation analysis was also conducted where raw material and furnace process parameters were correlated with filter and silica fume parameters with data spanning a 18-month period. The main conclusions are that there are differences noticeable in HP silica fume compared to STD silica fume, the particles are larger and contain larger agglomerates, there were atypical structures observed in SEM mainly in HP samples, the XRD Bragg peaks indicate more abnormalities in HP samples. The correlation analysis indicates that the trace elements in the silica fume correlate with various aspects of the silica fume and filter operation, also an HP raw material seems to have different affect than a STD raw material where more impurities in the silica fume are found with STD usage. Many observations in these analysis were very insightful for Elkem Iceland, and some even counter-intuitive. The study of Microsilica allows for a deeper understanding of furnace and filter operations. The need for a deeper learning of correlation between the parameters that are used in the processes is of great value for Elkem Iceland.Elkem Ísland ehf

    Viðbrögð grunnskólakennara við frávikshegðun nemenda

    No full text
    Þessi ritgerð er lokaverkefni höfundar til BA-prófs í félagsfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er varpað ljósi á viðbrögð grunnskólakennara við frávikshegðun barna í opnum skóla, skóla án aðgreiningar. Kenningarleg nálgun byggir á kenningum um stimplun og sjúkdómsvæðingu frávika. Fjallað er um rannsóknir sem hafa verið gerðar á frávikshegðun nemenda út frá ýmsum sjónarhornum. Rannsóknin er byggð á eigindlegri aðferðarfræði þar sem viðtöl við fimm grunnskólakennara voru tekin. Allir viðmælendur bjuggu yfir margra ára reynslu í kennarastarfinu og svöruðu spurningum á faglegan og einlægan máta. Niðurstöður voru greindar með þemagreiningu þar sem fimm yfirþemu komu í ljós. Helstu niðurstöður benda til þess að kennarar nálgast nemendur með frávikshegðun af mannúðlegu og faglegu sjónarhorni þar sem jákvæð samskipti, skilningur og samtarf við foreldra skipa lykilhlutverk. Viðbrögð kennara voru fjölbreytt og aðlöguð að aðstæðum hverju sinni. Þrátt fyrir mismunandi áherslur sýndu allir viðmælendur vilja til að forðast stimplun og stuðla að uppbyggilegri umræðu um frávik

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇