Skemman (Island)
Not a member yet
    50783 research outputs found

    Að byggja brú: Menningarleg áhrif Ottómanveldisins í Serbíu.

    No full text
    Í ritgerðinni verður fjallað um menningarleg áhrif Ottómanveldisins í Serbíu. Gerð verður grein fyrir þeim áhrifum sem eru enn sýnileg í daglegu lífi Serba og einnig ýmsum áhrifum sem nú eru horfin. Fjallað verður um áhrif Ottómana á serbneska tungumálið, til dæmis hvernig ottómönsk tökuorð birtast í málinu, hversu mörg þau eru og hvaða orð eru ennþá í notkun. Aðalefni ritgerðarinnar er byggingarlist en þá verður einnig minnst á orð tengd byggingum. Ottómanar reistu margar moskur í Serbíu, sem voru flestar byggðar í klassískum ottómönskum stíl. Margar voru reistar í Belgrad. Borgin tók að þróast í austrænan héraðsbæ við komu Ottómana á 16. öld, en eina moskan sem stendur þar í dag er Bajrakli moskan. Ritgerðin tekur hana sérstaklega fyrir og einkum er fjallað um Mehmed Paša Sokolović brúna en bæði mannvirkin voru byggð á 16. öld. Þau verða svo settar í víðara sögulegt samhengi. Einnig verður fjallað um eyðileggingu moskna og annarra ottómanskra bygginga í Serbíu. Þannig verða menningarleg áhrif einnig skoðuð út frá þjóðmenningu og hvernig byggingar leika hlutverk í myndun þjóðernissjálfsmynda. Markmiðið er að gera grein fyrir áhrifum Ottómanveldisins í Serbíu og tengslum þeirra við serbneska þjóðernishyggju og einnig að gera tilraun til að skoða af hverju sum áhrif hafa fengið að vera hluti af serbneskri menningu en önnur ekki

    Synthesis of Norbornene-Functionalised Macromonomers for Bottlebrush Polymers via ROMP: Characterisation and ROMP behaviour of polystyrene- and methoxy poly(ethylene glycol)-based macromonomers

    No full text
    Fjölliður eru órjúfanlegur hluti nútímasamfélags og eru notaðar í fjölbreyttum tilgangi, allt frá umbúðum til háþróaðra efna. Þótt margar algengar fjölliður samanstanda af einföldum línulegum keðjum, bjóða flóknari byggingar upp á möguleika til að stýra eðli þeirra og þannig er hægt að öðlast betri skilning á tengslum byggingar og eiginleika. Í þessu verkefni voru pólýstýren (PS) og metoxý pólý(etýlen glýkól) (mPEG) stóreinliður með norbornene enda framleiddar og notaðar til að mynda burstafjölliður. Til þess var notuð hringopnunar víxlhvarfs fjölliðun (ROMP) með svokallaðri grafting-through aðferð. Pólýstýren stóreinliðurnar voru framleiddar með ARGET-ATRP fjölliðun í örbylgjuofni, en mPEG var virkjað með estermyndun. Áhrif hvarfskilyrða á afköst og útkomu ROMP voru rannsökuð, þar á meðal meðhöndlun á hvatanum, viðvera andrúmslofts og styrkur hvarflausnarinnar. Fjölliðurnar voru greindar með NMR litrófsgreiningu, gelflæðisskiljun (GPC), dreifingarháðri NMR litrófsgreiningu (DOSY) og mismunavarmamælingu (DSC). Myndun burstafjölliða var staðfest með auknum mólmassa, lægri dreifistuðlum og hærra glerhitastigi (Tg) samanborið við línulegt pólýstýren. Niðurstöðurnar sýna að ROMP er raunhæf aðferð til framleiðslu á burstafjölliðum við hefbundnar aðstæður á rannsóknarstofu.Synthetic polymers are an essential part of modern society and are used in applications ranging from packaging to advanced materials. While many common polymers consist of simple linear chains, more complex architectures offer opportunities to tailor polymer properties and to better understand structure–property relationships. In this project, norbornene-functionalised polystyrene (PS) and methoxy poly(ethylene glycol) (mPEG) macromonomers were synthesised and used to prepare bottlebrush polymers via ring-opening metathesis polymerisation (ROMP) using a grafting-through approach. Polystyrene macromonomers were synthesised by microwave-assisted ARGET-ATRP, while mPEG was functionalised with esterification. The influence of practical reaction conditions, including catalyst handling, air exposure, and reaction concentration, on ROMP performance was investigated. Polymer products were characterised using 1H and 13C NMR spectroscopy, gel permeation chromatography (GPC), diffusion-ordered NMR spectroscopy (DOSY), and differential scanning calorimetry (DSC). Successful bottlebrush formation was confirmed by increased molar mass, reduced diffusion coefficients, and a higher glass-transition temperature compared to linear polystyrene. The results demonstrate that ROMP is a viable route to bottlebrush polystyrene under practical laboratory conditions

    Þegar hetjan er kona: Samanburður á ferðalagi hetjunnar eftir kynferði hennar

    No full text
    Furðusagna- og fantasíubókmenntaheimurinn hefur lengi verið karllægur og meira verið um karlkyns lesendur og höfunda að slíkum sögum. Síðustu fimmtíu árin hafa kvenhöfundar verið að skrifa fantasíur í auknum mæli og náð miklum vinsældum. Samt sem áður virðast þær ekki njóta sambærilegrar virðingar og karlhöfundar sem til dæmis má sjá af því að þær eru gjarnan hvattar til þess að skrifa fantasíur fyrir börn og ungmenni. Jafnframt hafa kvenhöfundar þurft að fela kynferði sitt með því að skrifa undir dulnefni til að eiga meiri möguleika á að selja bækur sínar. Gerður var samanburður á tveimur rithöfundum, Terry Brooks annars vegar og Tamora Pierce hins vegar, og tvö af verkum þeirra borin saman, The Sword of Shannara (1977) og Alanna (1983). Sjónum var sérstaklega beint að því hvort munur sé á þegar kona fer í hlutverk hetjunnar eins og í verki Pierce. Notast var við hetjusöguna og ferðalag hetjunnar sem greiningartól fyrir rannsóknina, þá sérstaklega skrif Christophers Voglers í Ferð höfundarins sem kom upprunalega út árið 1992 en hér miðað við íslenska þýðingu frá 2012 og skrif Lori M. Campbell A Quest of Her Own frá 2014. Kvenhetjur hafa oft birst í mörgum ævintýrum og eldri sögum en meira sem óvirkar persónur og gjarnan verið „verðlaun“ í lok ferðarinnar fyrir karlhetju, þær birst sem hjálparar eða dregin upp mynd af þeim sem slæmum manneskjum. Lori M. Campbell greinir kvenkyns hetjuna (e. female hero) í bók sinni og sýnir fram á að í því hlutverki komist þær hvað næst karlhetjuhlutverkinu með hetjudáðum sínum en á sínum eigin forsendum og í kvenmannslíkama sínum. Það þýðir að þær geta barist og verið afar færar um að bjarga sér. Umhyggja og umönnun eru einnig stór þáttur í fari þeirra sem og kynferði en allt eru þetta einkenni sem verða hluti af hetjusögu þeirra og ferðalagi

    Hermun á gjaldmiðilsrýrnun í Threadneedle

    No full text
    Demurrage, in terms of currency, adds a cost of carry to money which discourages hoarding of money and increases the velocity of money in the economy. We simulate demurrage in Threadneedle as a new tax levied on balances of deposit accounts. The simulation is inspired by the Wörgl Experiment, that enabled a small town to flourish in the Great Depression after issuing a new local currency using demurrage.Gjaldmiðilsrýrnun bætir geymslukostnaði við peninga sem eykur veltuhraðann í hagkerfinu og virkar letjandi fyrir uppsöfnun peningamagns. Við útfærum hermun á rýrnuninni í Threadneedle með nýjum skatti sem leggst á innistæður bankareikninga. Hermunin sækir innblástur sinn í Wörgl tilraunina sem leyfði bænum að blómstra í kreppunni miklu eftir að hafa stofnað staðbundinn gjaldmiðil sem rýrnaði með tímanum

    El gran Gatsby entre normas del español en las traducciones de E. Piñas (1997) y Óscar Luis Molina (2013)

    No full text
    This study comparatively analyzes three versions of the novel The Great Gatsby (El gran Gatsby) by F. Scott Fitzgerald’s. On the one hand the original English text published in 1925 and, on the other, two Spanish translations, the Peninsular Spanish version by E. Piñas (Plaza y Janés, 1997) and the Latin American version by Oscar Luis Molina (Tajamar, 2013). Using a descriptive and qualitative approach, the study examines three sections of the novel (the beginning, the core of the conflict, and the ending), analyzed in parallel according to four axes: lexis and diatopy, syntax and modulation, tone and register, and the treatment of culture and realia. The theoretical framework is grounded in translation studies and functional equivalence, and it incorporates debates on domestication/foreignization as well as on the tension between Peninsular and Latin American norms. The results demonstrate that both translations maintain an elevated literary register but assume different implied readers: Piñas aligns with a more conceptual and explanatory standard Spanish, tending toward cultural domestication and the mitigation of taboos, whereas Molina opts for a more economical and direct Latin American Spanish that at times simplifies imagery while reinforcing orality and explicit evaluation. The study concludes that diatopy and diachrony systematically influence translators’ decisions, and that the contrast between the versions is useful for the teaching of literature and translation

    „Við verðum alltaf sterkari og sterkari“ Starfendarannsókn um gildi mikillar útiveru, markvissrar hreyfingar og náms í nærumhverfinu

    No full text
    Rannsókn þessi til M.Ed. prófs í menntunarfræði leikskóla er starfendarannsókn sem byggir meðal annars á kenningum um staðtengt nám barna og virknikosti og áherslu á mikilvægi leiks, náms og hreyfingar úti við fyrir vellíðan og nám barna. Í rannsókninni skoða ég gildi mikillar útiveru, markvissrar hreyfingar og náms í nærumhverfinu fyrir vellíðan, nám og meðvitund fimm ára barna. Skólaárið sem rannsóknin stóð yfir fór ég með barnahóp út hverjum morgni, á náttúruleg svæði í borginni, á borgarleikvellina og á söfn og sýningar. Eftir hádegi unnum við svo verkefni inni í skólanum sem tengdust starfinu sem við unnum úti um morguninn. Gagnaöflun fólst í skrifum rannsóknardagbókar, þar sem ég skráði hjá mér hvað við gerðum og hvernig mér fannst það ganga, samtölum við samkennara minn um hans upplifun af starfinu hjá okkur og hálfopnum samtölum við börnin sem þátt tóku til þess að fá þeirra sjónarhorn á það sem við vorum að gera. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að útinám í nærumhverfinu hafði jákvæð áhrif á vellíðan og gleði, samskipti og einbeitingu, vöxt og valdeflingu barnanna með aukinni hreysti og hæfni, styrk og þrautseigju, sjálfstrausti og sjálfstæði og meðvitund barnanna um nærumhverfi sitt og samfélag. Einnig kom í ljós að í verkefninu fólst mikill lærdómur og tækifæri, bæði fyrir börn og kennara. Börnin sem tóku þátt í rannsókninni lærðu mikið um sig sjálf, nærumhverfi sitt og samfélag auk þess sem geta þeirra á ýmsum sviðum jókst. Börnin valdefldust með þátttöku sinni og fundu að þeirra framlag og raddir skiptu máli

    Tröllin í steinunum: Leirmótun, menningararfur og skapandi nám á yngsta stigi

    No full text
    Verkefnið Tröllin í steinunum fjallar um þróun kennsluverkefnis sem byggt er á safnakennslu fyrir yngsta stig grunnskólans. Kennsluverkefnið byggir á safnaheimsókn þar sem nemendur skoða verk Ásgríms Jónssonar sem unnin eru út frá þjóðsögum og tröllum. Tilgangurinn er að kanna hvernig safnakennsla og menningararfur geta orðið grunnur að skapandi og merkingarbæru listnámi barna. Verkefnið var þróað og prófað að hluta í kennslustofu þar sem nemendur skissuðu hugmyndir, mótuðu eigin tröll úr leir og máluðu verkin að lokum. Við prófun verkefnisins var stuðst við kennsluaðferðir sem tengjast reynslunámi, möguleikahugsun og fagmiðaðri myndlistarkennslu (Discipline-Based Art Education (DBAE)). Greinargerðin setur verkefnið í fræðilegt samhengi með hliðsjón af Menntastefnu 2030, aðalnámskrá grunnskóla, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og hugmyndum Deweys, Eisners, Craft og DBAE. Reynslan af prófun verkefnisins bendir til þess að vel útfærð safnakennsla og tenging við menningararf geti stutt við ímyndunarafl, þátttöku og skilning barna á listasögu. Verkefnið styður við menningarlegt læsi og einfalda, sjálfbæra kennsluhætti og er viðbót við kennsluverkefni sem tengja saman listasögu, sköpun og reynslunám á aðgengilegan hátt fyrir yngstu nemendurna

    „Það er eins og lífið haldi áfram hjá öllum öðrum og ég sé bara föst heima“ - Upplifun ungra mæðra eftir barnsburð: Félagsleg einangrun, fordómar og bjargráð

    No full text
    Viðfangsefni þessarar rannsóknar var að kanna hvernig félagsleg tengsl ungra mæðra breytast eftir barnsburð og hvernig þær upplifa þessar breytingar í líðan, sjálfsmynd og foreldrahlutverki. Rannsóknin beindist að konum sem urðu mæður á aldrinum 17–23 ára og eru nú 18–25 ára. Viðfangsefnið er mikilvægt þar sem að ungar mæður eru minnihlutahópur meðal jafnaldra og falla utan ríkjandi væntinga um tímasetningu barneigna, á sama tíma og umræða um félagslega einangrun og stöðu þeirra hefur aukist í samfélaginu. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðafræði. Tekin voru hálfopin viðtöl við sex þátt-takendur með ólíkan bakgrunn, sem áttu eitt til tvö börn. Viðtölin voru hljóðrituð, afrituð og greind með þemagreiningu Braun og Clarke. Kenningarlegur rammi rannsóknarinnar styðst við þroskakenningu Eriksons, kenningu Arnetts um komandi fullorðinsár, vistkerfa¬kenningu Bronfenbrenners og tengslamyndunarkenningar Bowlby og Ainsworth. Þar sem rannsóknin beinist að jaðarhópi, ungum mæðrum, þá var rýnt í samtvinnun mismununar eftir Crenshaw. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ungu mæðurnar upplifa félagslega stöðu sína og tengsl hafa breyst verulega eftir barnsburð. Margar lýstu því að vinatengsl veiktust, samskipti minnkuðu, færri boð bárust og þá kviknuðu tilfinningar eins og að passa ekki lengur inn í samfélag jafnaldra þeirra, sem ýtti undir sorg og einmanaleika. Stuðningur frá fjölskyldu og maka reyndist lykilþáttur í að draga úr einangrun og auka öryggi og vellíðan, á meðan skortur á stuðningi jók álag og einmanaleika. Aldursbundnir fordómar og vanmat frá jafnöldum og fagfólki kom fram í gögnum sem ýtti undir þörf viðmælenda að sanna sig sem „góðar mæður“ og standast félagslegar væntingar. Mæðurnar lýstu þörf á úrræðum og þjónustu sem væri markviss fyrir unga foreldra. Niðurstöður varpa ljósi á þörf fyrir markvissari eftirfylgni fyrstu tvö árin eftir barnsburð og úrræði sem taka mið af aldri, námi og efnahag ungra foreldra og á viðhorfsbreytingum í samfélaginu til að efla félagslega virkni og jákvæða sjálfsmynd ungra mæðra

    High-resolution spatio-temporal analysis reveals the dynamic evolution of earthquake swarms around Askja–Herðubreið, Northern Volcanic Zone Iceland

    No full text
    Earthquake swarms are a common expression of crustal deformation in volcanic, geothermal, and rift environments, yet the processes that govern their initiation, migration, and internal evolution remain uncertain. Many regions face limitations in catalog completeness and location accuracy, hindering the ability to resolve overlapping processes. Although newer detection techniques have improved swarm characterization, most studies focus on individual sequences. The Askja–Herðubreið region of the Northern Volcanic Zone (NVZ), one of Iceland’s most active swarm areas, offers an opportunity to examine swarm behavior across multiple sequences. This thesis applies matched-filter detection, relative relocation, and a structured post-processing workflow to construct fine-scale spatio-temporal catalogs for 31 swarms in the Askja–Herðubreið area between 2010 and 2020. The analysis emphasizes spatial and temporal evolution, including migration patterns, fault-plane geometries, and migration models parameterized by velocity or diffusivity. This approach improves their location precision to tens of meters and enhances completeness by an order of magnitude relative to routine catalogs. The resulting catalogs reveal diverse internal structures and dynamics. Swarms show linear and diffusive migration, depth transitions, multiple active fault segments, and localized aseismic channels. Several sequences display changes in migration style (diffusive to linear) through time, indicating that multiple processes can operate sequentially or concurrently. These results show that fine-scale spatio-temporal analysis is essential for resolving the internal dynamics of earthquake swarms in Icelandic rift environments. By documenting the range of migration processes in the Askja–Herðubreið region, the thesis provides observations relevant to models involving fluid pressure changes, fault-zone heterogeneity, and aseismic slip, and establishes a framework for comparative swarm studies in other tectonic settings

    From Kabul to Reykjavík: Sustainable Value Creation in the Upcycled Fashion Supply Chain of ByNoor: Strategic Analysis of an Upcycled Luxury Brand

    No full text
    This thesis examines how a small sustainable luxury brand develops and sustains competitive advantage through the upcycling of vintage fur across two different contexts. Using Robert K. Yin’s qualitative case study approach, the study draws on one formal interview, direct observation, and ongoing conversations to understand how the firm’s strategic direction emerges through every day routines and decisions. The analysis applies several theoretical tools, including the Resource Based View, VRIO, dynamic capabilities, niche theory, and sustainable luxury frameworks. The findings show that the company’s most valuable strengths lie in its tacit craftsmanship, its disciplined eight step restoration process, and its ability to manage material variation through experience and skill. These routines are difficult for competitors to imitate and therefore support competitive advantage. The company demonstrates adaptive behaviour that aligns with dynamic capability principles, particularly in responding to uncertain supply quality and logistical constraints. From an external perspective, the Icelandic market’s emphasis on sustainability and authenticity provides favourable conditions for a niche positioned upcycled brand. The thesis concludes that micro craft-based firms in sustainable luxury can build strategic advantage through depth of process, authenticity, and meaning based differentiation. Limitations of the study are acknowledged and suggestions for future research are briefly outlined

    21

    full texts

    50,783

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Skemman (Island)
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇