Skemman (Island)
Not a member yet
    50783 research outputs found

    The authorities’ powers to restrict the free movement of workers within the EEA by reference to public policy and public security. When do the authorities consider it permissible to resort to expulsion and refusal of entry?”

    No full text
    .Hér er fjallað um og lagt mat á hvort fyrir hendi eru mögulegar hindranir á frjálsri för og dvöl fólks innan EES - og sé svo, hvaða heimildum stjórnvöld eiga þess kost að beita gegn aðilum sem njóta slíkra réttinda. Varpað er ljósi á það hvaða skilyrði eru fyrir brottvísun eða frávísun EES borgara sem sækjast eftir að koma inn í landið eða önnur EES-ríki og í hvaða tilvikum telja megi slíkar hindranir málefnalegar eða réttlætanlegar í lagalegu tilliti gagnvart þeim sem vilja flytjast á milli aðildarríkja, t.d. sem launafólk.

    The effect of sport injuries on mental health among soccer players in Iceland and the importance of support from teams

    No full text
    Previous studies have shown that injuries among athletes can have a negative effect on their mental health. The aim of the current study was to examine mental health among injured soccer players in Iceland. Furthermore, the study investigated how important support from teams was for injured soccer players. The participants were current injured soccer players of both genders from teams in the three highest leagues in Iceland (N = 58). An online questionnaire was used where participants answered questions representing background, anxiety and depressive symptoms, and support from their teams. Results showed that 81.03% of participants had anxiety and depressive scores that indicated mild to severe symptoms. Females had significantly higher mean score for anxiety symptoms than males, but there was no significant difference in depressive symptoms. 15.15% of participants, all females, expressed that they received bad or really bad support from their teams. Furthermore, the worse support the soccer players received the higher the mean score was for anxiety and depressive symptoms. These findings highlight that injured players can experience anxiety and depressive symptoms during their injuries and therefore good support can be crucial in their recovery. Keywords: Mental health, soccer, injuries, support, anxiety, depressionFyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að meiðsli meðal íþróttafólks geti haft neikvæð áhrif á andlega heilsu þeirra. Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka andlega heilsu meiddra knattspyrnuleikmanna á Íslandi. Einnig skoðaði rannsóknin stuðning frá íþróttafélagi gagnvart meiddum leikmönnum. Þátttakendur voru meiddir knattspyrnuleikmenn af báðum kynjum úr félögum í þremur efstu deildum á Íslandi (N = 58). Rafrænn spurningalisti var notaður þar sem þátttakendur svöruðu spurningum um bakgrunn, kvíða- og þunglyndiseinkenni og stuðning frá félögum þeirra. Niðurstöður sýndu að 81,03% af þátttakendum sýndu væg til alvarleg einkenni kvíða og þunglyndis. Konur höfðu marktækt hærra meðalskor kvíðaeinkenna en karlar, en ekki var marktækur munur á þunglyndiseinkennum. 15,15% af þátttakendum, allt konur, tjáðu að þær hefðu annað hvort fengið lélegan eða mjög lélegan stuðning frá félögum sínum. Niðurstöður sýndu einnig að því verri stuðning sem leikmenn fengu því hærri voru kvíða- og þunglyndisskor. Niðurstöður undirstrika að meiddir leikmenn geti upplifað kvíða- og þunglyndiseinkenni og því getur stuðningur skipt sköpum í endurhæfingu þeirra. Lykilorð: Andleg heilsa, knattspyrna, meiðsli, stuðningur, kvíði, þunglynd

    Ruv.is : líka fyrir ungt fólk

    No full text
    Í þessu lokaverkefni var þróuð ný stafræn afurð fyrir vefmiðil RÚV: klippuspilari sem birtir stuttar fréttaklippur á aðgengilegan og notendavænan hátt. Markmið verkefnisins var að auka notkun og aðdráttarafl vefsins ruv.is meðal yngri notendaRÚ

    Listening to Glaciers: Storytelling, Process Philosophy, and New Moralities in the Anthropocene

    No full text
    This thesis explores how process philosophy, Indigenous epistemologies, and storytelling can reshape ethical orientations in the Anthropocene. It argues that glaciers who are often understood as static, inanimate objects, must instead be approached as animate assemblages: dynamic, storied beings entangled with human and more-than-human worlds. Through personal narratives, philosophical analysis, and engagement with thinkers such as Alfred North Whitehead, Jane Bennett, and Nancy Tuana, the thesis develops a processual understanding of glaciers that highlights their agency, vitality, and ethical significance. The first part situates storytelling as a method of knowledge production, drawing on Indigenous traditions to show how narratives sustain communities, orient ethical life, and position glaciers as active participants in cultural and ecological relations. The second part interrogates the inanimate/animate binary, demonstrating, through Whitehead’s process philosophy and new materialist thought, that glaciers are not inert matter but beings-in-becoming whose agency unfolds within assemblages of ice, atmosphere, culture, politics, and economy. Building on this ontological shift, the thesis turns to ethics in the Anthropocene. It critiques dominant Western moral frameworks, such as utilitarianism and deontology, for their inability to address slow violence, hyperobjects, and distributed agency. Instead, it develops Tuana’s concept of Anthropocenean sensibilities as a relational and context-sensitive ethic grounded in care, grief, and responsiveness. Glaciers are framed as ethical companions: grievable beings whose presence and loss reconfigure how we think responsibility and interdependence. By weaving philosophy with lived experience, the thesis demonstrates that climate change should not be approached solely as a distant, overwhelming hyperobject but as a process we are already enmeshed in. It concludes by suggesting that finding the things we care about, whether it be glaciers, rivers, or everyday relations, reveals the interconnected web of processes that bind human and non-human life. Cultivating such linkages of care can transform climate change from an abstract threat into a shared ethical orientation, fostering new moralities attuned to interdependence, vulnerability, and collective flourishing

    Hvernig ber að ákvarða bætur vegna varanlegrar örorku einstaklinga á aldrinum 18-30 ára samkvæmt skaðabótalögum.

    No full text
    Ritgerð þessi fjallar um hvernig beri að ákvarða bætur vegna varanlegrar örorku einstaklinga á aldrinum 18-30 ára samkvæmt skaðabótalögum. Rannsóknarspurningarnar eru þrjár: 1. Hvernig ber að ákvarða bætur vegna varanlegrar örorku einstaklinga á aldrinum 18-30 ára samkvæmt skaðabótalögum? 2. Er dómaframkvæmd að ná þeim markmiðum skaðabótalaga um að bæta skuli rauntjón samkvæmt 1. mgr. 5. gr. og hvaða gögn eru lögð til grundvallar við sönnun um framangreint? 3. Reynist dómaframkvæmd ekki í samræmi við markmið skaðabótalaga varðandi þennan hóp tjónþola, hvaða úrbætur eru mögulegar? Fjallað verður um markmið skaðabótalaga. Gerð er tilraun til að varpa ljósi á hvernig uppbygging og aðferðarfræði lagana á að leiða að þeim markmiðum. Álag er á margfeldisstuðul 6. gr. skaðabótalaga fyrir tjónþola á því aldursbili sem er umfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Dómaframkvæmd er síðan skoðuð í ljósi framangreinds til að kanna hvort samræmi sé þar á milli. Niðurstöður benda til að svo sé ekki. Höfundur telur að aðferðafræði lagana sé ekki fylgt í dómaframkvæmd. Afleiðingin er sú að líkamstjón ungra einstaklinga sé van- eða of- bætt. Til að leita leiða til úrbóta er fyrst skoðað hvaða breytingar á framkvæmd gætu stuðlað að betri niðurstöðum. Höfundur telur að beiting gagna um ársviðmiðunarlaun geti gegnt lykilhlutverki í því samhengi. Viðtöl og greining gagna eru nýtt til að varpa frekara ljósi á möguleg úrræði. Að lokum er metið hvort breytingar á dómaframkvæmd dugi til að ná markmiðum laganna, eða hvort þörf sé á lagabreytingum.  This essay examines how to determine compensation for permanent disability of individuals aged 18-30 under Icelandic tort law. It focuses on three research questions: 1. How should compensation for permanent disability of individuals aged 18-30 be determined according to tort law? 2. Does judicial practice achieve the objectives of tort law, which aim to compensate actual damages under Article 5(1), and what evidence is considered in proving this? 3. If judicial practice does not align with the objectives of tort law regarding this group of claimants, what possible improvements can be made? The essay explores the goals of tort law and attempts to shed light on how its structure and methodology are designed to achieve those objectives. Judicial rulings are analysed in this context to determine if they align with the intended framework. Findings suggest they do not. The author argues that the legal methodology is not properly followed, leading to under- or over-compensation, as well as inconsistencies in application. To propose improvements, the essay first examines what changes can be made in practice. The author suggests that much of the issue could be addressed by applying data appropriately to find the correct income reference. Further insights are provided through interviews and analysis. Finally, the study evaluates whether judicial rulings should result in different conclusions or if legislative amendments are necessary

    Áhrif mismunandi hallagráða á nákvæmni í þrívíddarprentun tannmódela: Samanburðarrannsókn

    No full text
    Inngangur: Þrívíddarprentun er sífellt að verða algengari sem hluti af daglegu starfi tannsmiða og er oft notuð við gerð módela af munnholi sjúklinga. Slík tækni þarf að vera áreiðanleg, nákvæm og hagkvæm svo gæði sérsmíðaða lækningatækja á prentuð módel verði tryggð. Markmið rannsóknar var að kanna hvort mismunandi hallagráður við framleiðslu á þrívíddarprentuðum módelum af sama sjúkling, hafi áhrif á klíníska nákvæmni þeirra. Aðferðir: Í þessari samanburðarrannsókn var fyrst gert stafrænt samanburðarmódel af sjúkling, síðan voru fjöldaframleidd 15 tilraunamódel, fimm stykki í hvorum hóp voru prentuð eftirfarandi halla 0°, 45° og 90° með DLP prentara af gerðinni Asiga Max UV385. Að framleiðslu lokinni voru módelin skönnuð inn í ExoCad hugbúnað með Medit T500 borðskanna. Við úrvinnslu gagna voru frávik í mælingum metin milli stafræna samanburðarmódelsins og tilraunamódelanna á myndrænan hátt með samanburðarforritinu CloudCompare auk þess sem reiknað var ferningsmeðaltal (RMS, Root Mean Square) og staðalfrávik (Sf). Niðurstöður: Nákvæmni þrívíddarprentaðra tilraunamódela minnkaði með auknum prent halla. Lárétt þrívíddarprentun án halla (0°) sýndi minnstu frávik (RMS: 0,0411 mm, Sf 0,0408 mm) miðað við stafræna samanburðarmódelið, á meðan lóðrétt þrívíddarprentun með 90° halla á módelum sýndi mest frávik (RMS: 0,1247 mm, Sf: 0,1163 mm) í þessari rannsókn. Ályktun: Halli módela í þrívíddarprentun hefur veruleg áhrif á nákvæmni þeirra. Lárétt prentun (0°) veitir meiri stöðugleika og nákvæmari niðurstöður en lóðrétt prentun (90°), sem sýnir meiri frávik og óstöðugleika. Prentun í 45° halla bætir hvorki gæði né skilvirkni og er því óhagkvæm. Niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri rannsóknir og styðja við þörf á áframhaldandi þróun á stafrænu prentferli í tannsmíði. Efnisorð: Tannsmíði, CAD, CAM, tannlækningar, þrívíddarprentun

    Ást, náttúra og dýrið : birtingarmyndir fornra fyrirbæra í samtímamyndlist

    No full text
    Í þessari ritgerð mun ég skoða hvers vegna samtímamyndlistarmenn kjósa að vinna með náttúruna, ástina og þjóðtrú, sem hefur verið viðfangsefni myndlistarmanna frá örófi alda, þrátt fyrir að í nútímanum séu þeir stöðugt undir áhrifum netsins og tækninnar ásamt miklum breytingum á samfélagslegum aðstæðum. Áhersla er lögð á hvernig þessi þemu tengjast þjóðsögum og menningu, þar sem náttúra og hulduheimar eru mikilvægir þættir

    Ferð ekki framhjá byrjunarreit: Er munur á markaðsetningu fyrirtækja í einokunarstöðu og fyrirtækja á samkeppnismarkaði?

    No full text
    Samkeppni er stór þáttur í að reka fyrirtæki. Hún hefur áhrif á alla þætti markaðsstarfsins. Breytist markaðsstarfið þegar bein samkeppni er ekki til staðar og fyrirtæki eru í einokunarstöðu? Það er spurningin sem verið er að velta fram í þessari ritgerð. Ritgerðin byrjar á að fjalla um einokun og fræði hugtök úr markaðsfræði. Því næst eru tekin dæmi um 3 fyrirtæki sem eru öll í vissri einokunarstöðu De Beers, Veitur og ÁTVR. Það er mismunandi ástæða fyrir því að fyrirtækin eru í einokunarstöðu. Fyrirtækin verða skoðuð út frá svót greiningu og samval söluráða. Kemur í ljós að helsti munurinn á markaðssetningu fyrirtækja í einokunarstöðu er verðlagning. Bæði ÁTVR og Veitur vinna undir ströngum reglum frá stjórnvöldum og ráða ekki verðlagningunni sjálf. Kynningarefni De Beers fjallar aðallega um ágæti náttúrulegra demanta. Á meðan snýst kynningarefni ÁTVR og Veita aðallega að samfélagslegri ábyrgð sem gæti gefið í skyn að fyrirtæki sem eru með einokun fyrir tilstilli stjórnvalda séu líklegri að framleiða kynningarefni sem snýr að samfélagslegri ábyrgð

    Healthcare technology : an empirical study on automation and healthcare professional perspectives in Akureyri

    No full text
    The aging population has implications for the healthcare system, where healthcare professionals struggle to meet the increased demand. Finding ways to lighten the burden is critical to retain the healthcare professionals we have today. Research has shown that working on meaningful tasks is crucial for job satisfaction, while at the same time, repetition through mundane routine work can have a negative impact. One way to approach this is to identify and automate repetitive routine processes, thereby reducing mundane tasks. This thesis makes two significant contributions. Evaluate healthcare professionals' opinions regarding their current technical environment at work, identify opportunities for improvement, and use observations to gather information and comprehend how technology can be utilized to automate healthcare processes, particularly in Akureyri Hospital. On the other hand, monitor the development process of HomeVital Harmony, a healthcare solution for homecare services in Akureyri. The findings suggest significant opportunities for utilizing technology to enhance the work environment at Akureyri Hospital. Approximately 42% of employees expressed dissatisfaction (somewhat unsatisfied or very unsatisfied) with the current technical environment, and no one reported being very happy. Those findings align with observations made at the hospital. Involving employees in the decision-making and integration processes for new solutions is crucial, as their participation will likely lead to more successful outcomes. The findings also indicate that smaller organizations in Iceland need support to enhance their technical environment as they lack the necessary resources and funding. It is recommended that this effort should be centralized, with the needs of all hospitals in Iceland taken into consideration during implementation. This approach is expected to optimize resource use and ensure that employees who travel between organizations encounter a consistent technical environment, regardless of their location within Iceland. Keywords: Healthcare, automation, job satisfaction, socio-technical, resource optimizatio

    The influence of public expenditure on sports services and goods on private consumption and sedentary behaviour in European countries

    No full text
    Governments are increasingly investing in sports and physical activity as tools for preventative healthcare, promoting active lifestyles through various campaigns. Consequently, it is important to examine the effects of public expenditure on such interventions, assessing both their impact and limitations. This thesis explored whether public expenditure on sport and recreation influences private consumption (Study I) and sedentarism (Study II). Study I analysed data from 28 European countries, using bivariate Pearson correlation and a distributed lag model to assess the relationship between public expenditure, private consumption, and GDP per capita. although a strong initial correlation was found (with values ranging from r=0.846 to r=0.922), further analysis revealed that a lagged-variable model that included public expenditure for five years plus GPD per capita explained over 75% of the variance in private sports consumption, indicating it as the primary influencing factor. Study II investigated whether sedentary behaviour prevalence could be predicted by public expenditure in sports, considering GDP per capita, educational level, and sex differences. data from 30 European countries were analysed through multiple linear regression. GPD per capita predicted sedentary behaviour in over 44.3% of cases across medium, high, and total education groups, in both the overall sample and disaggregated by sex. public expenditure also emerged as a significant predictor in the total education group (overall and among women) and in the medium education group among men. these findings suggest that while public expenditure has some influence, economic factors like GPD per capita play a larger role in determining private sports consumption and sedentary behaviour.Ríkisstjórnir fjárfesta í auknum mæli í íþróttum og hreyfingu sem tæki til forvarnar í heilbrigðismálum, meðal annars með því að hvetja til virks lífsstíls í gegnum ýmsar herferðir. Því er mikilvægt að skoða áhrif opinbers kostnaðar á slík inngrip og meta bæði árangur þeirra og takmarkanir. Þessi ritgerð kannaði hvort opinber útgjöld til íþrótta og tómstunda hafi áhrif á einkaneyslu (Rannsókn I) og þátttöku í hreyfingu (Rannsókn II). Í rannsókn I voru gögn frá 28 Evrópulöndum greind með tvíkosta Pearson fylgni og aðhvarfslíkani með dreifðum töfum til að meta tengslin milli opinberra útgjalda, einkaneyslu og vergrar landsframleiðslu á mann. Þó sterk upphafsfylgni hafi komið í ljós (R² = 0,717), sýndi frekari greining að verg landsframleiðsla á mann útskýrði yfir 75% af breytileika á einkaneyslu íþrótta, sem bendir til að hún sé aðal áhrifaþátturinn. Rannsókn II skoðaði hvort spá megi fyrir um kyrrsetuhegðun út frá opinberum útgjöldum til íþrótta, með tilliti til vegrar landsframleiðslu á mann, menntunarstigs og kynjamunar. Gögn frá 30 Evrópulöndum voru greind með fjölþátta línulegu aðhvarfslíkani. Verg landsframleiðsla á mann spáði fyrir um kyrrsetuhegðun í yfir 44,3% tilvika, bæði innan hópa með miðlungs, hærri og heildarmenntun, sem og í sundurliðuðum hópum eftir kyni. Opinber útgjöld reyndust einnig marktækur spáþáttur í hópi með heildarmenntun (í heildina og einnig meðal kvenna), og í hópi miðlungsmenntun meðal karla. Niðurstöðurnar benda til þess að þótt opinber útgjöld hafi nokkur áhrif, vegi efnahagslegir þættir eins og verg landsframleiðsla á mann þyngra þegar kemur að einkaneyslu á íþróttum og algengi kyrrsetuhegðunar. Leitarorð: Líkamsrækt, hreyfing, landsframleiðsla á mann, menntunarstig, dreift seinkunarlíka

    21

    full texts

    50,783

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Skemman (Island)
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇