Skemman (Island)
Not a member yet
    50783 research outputs found

    "Ég sé það ekki": Hvítleiki, kyn og faglegt umboð kennara í íslensku menntakerfi

    No full text
    This thesis begins with a simple but somewhat uncomfortable question: What does it mean to be a white teacher in a multicultural educational setting in Iceland? Iceland, a historically homogenous country, likes to present itself as equal, neutral and welcoming, yet a closer look often shows a different story. As schools become more culturally diverse, conversations about race, power and belonging need to be critically addressed by researchers and educators alike. This thesis is theoretically supported by critical frameworks of race, gender and teacher’s pedagogical vision. It is also a personal quest stemming from the researchers’ personal experience and positionality as a white woman, educator and a mother of mixed-race children. In addition to an extensive theoretical framework the thesis further draws on four in-depth interviews with two white Icelandic upper-secondary school teachers of different gender who are experienced in teaching within multicultural educational settings. The interviews took place in 2024 and sought to capture how theoretical ideas of race and gender influence or shape two teachers’ pedagogical vision and agency when teaching culturally diverse groups of students. The findings indicate that the two teachers involved in the study seemed comfortable in their gender roles; finding it easy to explore issues that are culturally familiar to them such as gender equality and justice. On the contrary they seemed far less comfortable naming issues of race or whiteness as part of their pedagogical vision or teaching strategies. From a critical theoretical perspective, the thesis argues that such silences must not be overlooked because they can influence teachers’ daily decisions, including their perceptions of students’ sense of belonging. Avoiding or remaining silent towards racial topics also limits the possibilities of inclusion, which often remains surface-level without sufficient tools and institutional support directed at opportunities for teacher to engage in critical self-reflection on what it means to be a white teacher in a multicultural educational setting. The thesis thus argues that meaningful inclusion in Icelandic schools requires more than good intentions. It begins with white teachers engaging in uncomfortable but necessary self-reflection, naming whiteness and recognizing how its power shapes even the most ordinary situations.Tilurð þessarar þessarar ritgerðar á rætur sínar í einfaldri en óþægilegri spurningu: Hvað þýðir það í raun og veru að vera hvítur kennari á Íslandi? Íslendingar líta á samfélagið sem sterkt jafnréttissamfélag, hlutlaust og opið en við nánari skoðun kemur í ljós að þessi sjálfsmynd samræmist ekki alltaf daglegum veruleika. Í skólastofum landsins hefur fjölbreytni nemendahópa aukist gríðarlega en samræður um kynþátt, valdastöðu og inngildingu með engum hætti verið í takt við þá þróun fjölmenningar sem hefur átt sér stað. Umræðan er þessa þætti sniðgengin en það sem felst í þögninni mótar áfram kennsluhætti. Rannsóknin byggir á víðtækum fræðilegum ramma og styðst við fjögur djúpviðtöll sem var aflað vorið 2024 við tvo hvíta íslenska framhandsskólakennara sem starfa í fjölmenningarlegu umhverfi. Þetta er tilfellarannsókn sem skoðar hvernig kynþáttur og kyn móta faglegt sjálfræði kennara og það svigrúm sem þeir telja sig hafa til að bregðast við, tjá sig og taka afstöðu í fjölmenningarlegu skólaumhverfi. Rannsóknin byggir á gagnrýnum kenningum um kynþátt, kyn, faglegt sjálfræði og uppeldissýn kennara, sem mynda fræðilegan ramma ritgerðarinnar. Viðfangsefnið stendur rannsakanda einnig afar nærri, þar sem hún er hvít kona og móðir þriggja barna með blandaðan uppruna. Niðurstöðurnar sýndu að kennararnir ræddu af öryggi um kynhlutverk og þau málefni sem stóðu þeim samfélagslega næst en nefndu síður þætti eins og kynþátt eða hvítleika. Skortur á slíkum umræðum skiptir máli og hefur mótandi áhrif á sjálfræði kennara, þar sem það hefur áhrif á daglegar ákvarðanir og það svigrúm sem þeir telja sig hafa til að bregðast við fjölbreyttum þörfum nemenda. Auk þess hafa þessir þættir hafa áhrif á daglegt líf og tilfinningar nemenda sérstaklega þear kemur að því að tilheyra og hvar mörk inngildingar liggja. Rauði þráðurinn í rannsókinni er því raunveruleg inngilding í íslenskum skólum og að hún krefjist meira en góðra fyrirætlana. Hvítir kennarar verða að takast á við óþægilega sjálfsskoðun, viðurkenna hvítleikann og hvernig vald hans mótar jafnvel hversdagslegustu aðstæður

    False Vacuum Decay Seeded by Global Cosmic Strings

    No full text
    A complex scalar field caught in the false minimum of a potential may tunnel through the potential barrier and create a bubble expanding and converting all of space into the true vacuum. This phenomenon introduced by S. Coleman and C. Callan is reviewed with great care and then expanded upon. We consider a vacuum state containing a straight, global or local cosmic string. The core is occupied by the true vacuum which is separated by a thin cylindrical wall from the false vacuum in the exterior of the string core. This setup is modeled by a complex scalar field under a global or local U(1) symmetry with non-zero winding with a wine bottle potential of nearly degenerate minima. We compute the bounce action for a global-string-induced tunneling, where the string is destabilized locally developing an expanding lump that converts space into the true vacuum. This new bounce configuration has an O(2) x O(2) symmetry. We solve the bounce and the solution is then used to model the shape and trajectory of these elongated bubbles for a full range of parameter values. We compare the string induced tunneling to that of the Coleman bubble and describe the parameter range where the cosmic string bubbles dominate the transition rate.Erasmus+ project number 2025-1-IS01-KA131-HED-000317721, University Of Iceland Study Gran

    Áhrif starfsumhverfis á veikindafjarvistir hjá Reykjavíkurborg

    No full text
    Í þessari ritgerð eru tengsl starfsumhverfis og veikindafjarvista innan starfsstaða Reykjavíkurborgar skoðuð. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að greina hvort tengsl væru á milli starfsumhverfis og veikindafjarvista og hins vegar að meta hvaða þættir í starfsumhverfinu hefðu áhrif á veikindafjarvistir. Byggt var á gögnum úr starfsumhverfiskönnuninni Stofnun ársins og skráðum veikindafjarvistum starfsstaða Reykjavíkurborgar fyrir árin 2023 og 2024. Sett var fram lýsandi tölfræði og til að meta tengsl starfsumhverfis og veikindafjarvista voru framkvæmdar fylgni- og aðhvarfsgreiningar. Að auki voru framkvæmdar aðhvarfsgreiningar þar sem stýrt var fyrir þjónustuþáttum, það er eðli starfseminnar á starfsstöðum Reykjavíkurborgar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að gott starfsumhverfi tengist almennt minni veikindum. Sérstaklega reyndist þátturinn ánægja og stolt vera sterkur forspárþáttur minni veikinda á meðan streita tengdist auknum veikindum. Þessar niðurstöður eru í samræmi við kenningar og fyrri rannsóknir á efninu. Tengsl annarra þátta, svo sem stjórnunar, sveigjanleika og sjálfstæðis í starfi reyndust flóknari og háð þjónustuþáttum. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga vísbendingu um að markvissar aðgerðir til að bæta starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr streitu geti dregið úr veikindafjarvistum starfsfólks Reykjavíkurborgar

    Þróun starfa hjá Reykjavíkurborg: Starfsmatskerfið og notkun þess

    No full text
    Markmið þessarar meistararitgerðar var að kanna hvernig þróun starfa innan Reykjavíkurborgar hefur verið eftir innleiðingu starfsmatskerfis sveitarfélaga og greina hvort breytingar á störfum tengdust kyni, menntunarstigi, þjónustuþáttum eða sviðum. Rannsóknin byggði á afturskyggðri megindlegri rannsóknaraðferð þar sem stuðst var við fyrirliggjandi gögn úr starfsmatskerfi borgarinnar. Gögnin voru greind með lýsandi tölfræði, krosstöflum, kí-kvaðrat prófum og dreifigreiningu. Niðurstöður sýndu að marktæk tengsl eru milli kyns, menntunarstigs, þjónustuþátta og sviða og þess hvort störf taki breytingum í starfsmatskerfinu. Þó tengsl kyns og menntunarstigs við breytingar á störfum séu veik benda niðurstöður til þess að þjónustuþættir og svið hafi miðlungs til sterk tengsl við tíðni slíkra breytinga. Ritgerðin dregur jafnframt fram að helstu þróunartækifæri liggi frekar í verklagi við stofnun og endurmat starfa en í uppbyggingu kerfisins sjálfs. Í því samhengi er lögð áhersla á mikilvægi fræðilegrar þrepaflokkunar, sambærilegri þeirri sem kemur fram í öðrum starfsmatskerfum opinberra stofnana. Slík nálgun getur styrkt enn frekar hlutverk starfsmatskerfisins við markvissa, réttláta og fræðilega þróunar starfa hjá Reykjavíkurborg

    Development and testing of an innovative system for measurement of ultrasound modulation of electrical current in volume conductor

    No full text
    Ómskoðun á straumlindarmyndgreiningu (USCSDI) er tækni með minniháttar inngripi sem lofar góðu við eftirlit með raförvun vöðva. Það getur verið krefjandi að mæla merki frá acousto-electrical interaction (AEI). Þetta merki sem stafar af víxlverkun milli úthljóðs og rafstraums í vefjum er mælt í microvoltum eða lægra, og því er mikilvægt að lágmarka truflanir vegna umhverfis- og rafsegulbylgna. Markmið þessarar ritgerðar var að hanna, smíða og bæta mælingauppsetningu og nákvæmni, sem og auka endurtekningarhæfni tilraunarinnar. Uppsetning tilraunarinnar var verulega bætt. Ílát mælingarinnar var bætt til að auka nákvæmni. Stillanlegu staðsetningarkerfi var bætt við ásamt nýrri vatnsheldri hlíf sem verndaði formagnarann frá umhverfis- og rafsegulbylgjum. Rafrásirnar voru færðar af brauðbretti yfir á prentað rafrásarborð (PCB), en þessi breyting dró úr vírum sem áður virkuðu sem loftnet og bættu við truflunum. Til að mæla AEI merkið voru notaðir púlsmóttakari, úhljóðsgjafi, spennumagnari og sveiflusjá. Niðurstöðurnar sýndu fram á trúverðuga breytingu á AEI spennu. Sumar greiningar sýndu samræmi við fræðileg gildi, einkum hvað varðar tímalaga (e. temporal) þáttinn. Aðrar mælingar, líkt og sveifluvíddin, einkenndust af verulegu suði. Greining á suði (e. noise analysis) staðfesti að kerfið hefur enn umtalsverðar truflanir. Niðurstöður benda til þess (the results indicate that) að endurbætur á rafrásinni séu nauðsynlegar til að tryggja áreiðanlegar og ótvíræðar mælingar. Í þessari ritgerð er byggt verulega á fyrri rannsóknum á USCDI með því að kynna endurbættan mælinema og rafeindabúnað, sem leggur grunn að áreiðanlegri og endurtakanlegri aðferð.Ultrasound Current Source Density Imaging (USCSDI) is a non-invasive technique that has shown promise when monitoring electrically stimulated muscles. Monitoring the voltage from the acousto-electrical interaction (AEI) signal is challenging. This signal, which results from the interaction between ultrasound and electrical current in tissues, is often in microvolt levels or less, and therefore it is important to minimize environmental and electromagnetic interference. The objective of this thesis was to design, build, and improve the measurement setup and precision, as well as increase the replicability of the experiment. The experiment’s setup was drastically improved. First, the measurement container was enhanced for greater precision. An adjustable positioning system was added, along with a new waterproof cover that protected the preamplifier from environmental and electromagnetic interference. The circuitry was moved from a breadboard to a printed circuit board (PCB), reducing wiring that previously acted as antennas and added nterference. To measure the AEI signal, a pulser-receiver, an immersion transducer, a voltage amplifier, and an oscilloscope were used. The results demonstrated plausible changes in AEI voltage. Some analyses matched theoretical values, particularly the temporal aspect. Other, such as the amplitude, were characterized by significant noise. Noise analysis confirmed that the system still has significant interference. The results indicate that improvements to the circuitry are necessary to ensure reliable and unambiguous measurements. This thesis builds significantly upon previous USCDI research by introducing an improved sensor and electronics architecture, which provide the basis for a more reliable and repeatable method

    Hver hefur sína byrði að bera: Kynjamunur á tengslum áhættuþátta við sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir á Íslandi

    No full text
    Suicide is a major public health concern, persisting in Iceland with higher mortality among men than women. Women, however, report more suicidal thoughts and attempts, a phenomenon known as the gender paradox. These gender differences in suicide outcomes may stem from gender-specific effects of mental health, trauma, and social and contextual risk factors. Iceland, due to its high gender equality, is an informative setting for studying these dynamics, although a research gap persists. This study aimed to examine whether associations between various risk factors and suicidal thoughts or suicide attempts differ by gender. Data were drawn from a population-based survey conducted by Reykjavík University, including self-reported multiple-choice items and standardized questionnaires used to assess risk factors. Chi-square analyses and binomial logistic regression examined associations between risk factors and suicidal thoughts or suicide attempts, as well as gender differences through gender–risk factor interactions. A greater number of risk factors were associated with suicidal thoughts than with suicide attempts, and no gender differences were found in the interaction between risk factors and gender for either outcome. Statistical power was limited due to low rate of suicide attempts. The cross-sectional, self-reported design also prevents conclusions about causality and the timing of risk factors. Contrary to the gender paradox, men reported higher rates of both suicidal thoughts and attempts. Furthermore, gender did not moderate associations between risk factors and suicidal outcomes. Suicidal thoughts were linked to a broad range of risk factors, whereas suicide attempts showed more selective associations, highlighting distinct pathways from ideation to action

    Contemporary Cults: Charismatic Authority and the Power of Words in Shaping Young Men´s Identity on Social Media

    No full text
    Ritgerð þessi fjallar um hvernig orðræða, vald og sjálfsmynd fléttast saman í stafrænu rými, með áherslu á áhrifamátt orða og náðarvalds í mótun viðhorfa og sjálfsmyndar ungra karla. Byggt er á kenningum um bæði kyngervi og orð sem gjörning, ráðandi karlmennsku og náðarvald, ásamt rannsóknum á sértrúarsöfnuðum, áhrifum stafrænna miðla og sjálfsmyndarsköpun. Umfjöllun ritgerðarinnar er studd með alþjóðlegum og íslenskum dæmum sem sýna hvernig hlaðin orðræða, endurtekning og tilfinningaleg skírskotun umbreyta lauslegum áhuga í fylgispekt og gera karlmennsku að stöðugu verkefni sem þarf að framkvæma og staðfesta. Ritgerðin bendir á að aðdráttarafl slíkra orðræðu megi skilja í sambandi við upplifaða óvissu og breyttar samfélagslegar aðstæður, fremur en sem afleiðing einstaklingsbundinna veikleika. Með þessari nálgun leitast ritgerðin við að dýpka skilning á því hvernig vald orðsins í stafrænu rými mótar sjálfsmynd og ýtir undir löngun til að tilheyra. Að lokum leggur ritgerðin grunn að gagnrýnni og umburðarlyndari umræðu um orð, vald og karlmennsku í samtímanum

    People with disabilities and working life: Employers’ perspectives on the participation of people with disabilities in working life

    No full text
    Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði til ráðninga fatlaðs fólks og greina hvernig yfirlýstar stefnur um fjölbreytileika og samfélagslega ábyrgð endurspeglast í framkvæmd. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við stjórnendur og sérfræðinga í mannauðsmálum hjá sex fyrirtækjum sem tilnefnd voru til viðurkenningar fyrir upplýsingagjöf um sjálfbærni. Niðurstöðurnar sýna að fjölbreytileiki er orðinn fastur þáttur í mannauðs- og jafnréttisstefnum fyrirtækja en hugtakið er oft túlkað almennt og tengt fyrst og fremst kynjajafnrétti og jafnlaunavottun. Fötlun er vissulega nefnd sem hluti af fjölbreytileika, en í framkvæmd birtist hún sjaldnast sem sértækar aðgerðir eða aðlögun til að ráða fatlað fólk til starfa. Í gildum fyrirtækjanna er lögð áhersla á virðingu, traust og jafnrétti en þar skortir markvissa stefnumótun, fræðslu og greiningu á hindrunum sem fatlað fólk mætir á vinnustöðum. Viðhorf stjórnenda sýna einnig óljósan skilning á hugtakinu fötlun og í sumum tilvikum er ábyrgð á úrbótum færð yfir á fötluðu einstaklingana sjálfa. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að fyrirtæki líti ekki á fjölbreytileikastefnu sem táknrænar yfirlýsingar heldur tileinki sér markvissar aðgerðir sem feli í sér inngildingu. Skortur á upplýstri fræðslu um stöðu fatlaðs fólks og ómeðvitaðar útilokanir í ráðningum draga úr trúverðugleika stefna fyrirtækja. Framlag rannsóknarinnar liggur í því að varpað er ljósi á viðhorf stjórnenda til atvinnu þátttöku fatlaðs fólks og kastljósinu beint að misræminu á milli stefnumótunar og framkvæmdar. Niðurstöðurnar sýna að þörf er á markvissari stefnumótun, aukinni fræðslu og aðgerðum sem stuðla að raunverulegri inngildingu. Rannsóknin getur því nýst bæði í áframhaldandi fræðilegri umræðu og sem hagnýtur leiðarvísir fyrir stefnumótun, réttindabaráttu og þróun þjónustu við fatlað fólk á íslenskum vinnumarkaði.The aim of the study is to shed light on the attitudes of companies in the Icelandic labor market toward the recruitment of disabled people and to examine how declared policies on diversity and corporate social responsibility are reflected in practice. The study is based on qualitative interviews with managers and human resource specialists from six companies that were nominated for an award for sustainability reporting. The findings show that diversity has become an established part of companies’ human resource and equality policies, but the concept is often interpreted broadly and primarily associated with gender equality and equal pay certification. Disability is indeed mentioned as part of diversity, but in practice it rarely appears as specific measures or accommodations aimed at recruiting disabled people. Company values emphasize respect, trust, and equality, but lack systematic strategies, education, and analysis of the barriers that disabled people encounter in the workplace. Managers’ perspectives also reveal an unclear understanding of disability, and in some cases responsibility for improvements is shifted onto the disabled individuals themselves. The study highlights the importance of companies not treating diversity policies as symbolic declarations but instead adopting concrete measures that foster genuine inclusion. A lack of informed understanding about the situation of disabled people and unconscious exclusion in recruitment undermine the credibility of corporate policies. The contribution of the study lies in shedding light on managers’ attitudes toward the employment of disabled people and drawing attention to the gap between policy and practice. The results demonstrate the need for more targeted policymaking, increased education, and actions that promote genuine inclusion. The study can therefore serve both as a contribution to ongoing academic debate and as a practical guide for policy making, advocacy, and the development of services for disabled people in the Icelandic labor market

    Development of an Oil-sampling Device for Transformers

    No full text
    Sampling of transformer oil is required for Dissolved Gas Analysis (DGA), where consistent sample volume and head space in sample container is essential. Manual sampling is time consuming and prone to error in variability. The thesis presents a design of a proof-of-concept automated system that both flushes the system and takes a sample. The system uses a microcontroller and algorithm to control two solenoid valves. Flushing volume is controlled by an ultrasonic sensor, while sampling mass is measured using a load cell. After initial user input the system operates autonomously. Experimental results show reliable operation and repeatability. With load cell preloading and calibration, the results demonstrate a sampling error of approximately 2-3%. The results demonstrate the feasibility of automated oil sampling for transformer monitoring

    The development and renewal of a preschool employee handbook

    No full text
    Markmið verkefnisins var að endurnýja starfsmannahandbók fyrir leikskólann Esjuberg með það fyrir augum að auka aðgengi og notkun starfsmanna á handbókinni og til þess að uppfæra þær upplýsingar sem hún hefur að geyma. Tilgangurinn var meðal annars að styrkja móttöku nýliða og samræma starfshætti starfsfólks í átt að sameiginlegu markmiði. Þær spurningar sem leiddu ferlið við skrif handbókarinnar voru: Hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í starfsmannahandbókinni að mati starfsfólks og stjórnenda leikskólans? Hvernig sjá starfsmenn og stjórnendur fyrir sér að nýta handbókina? Gagnaöflunin byggir á blandaðri aðferðarfræði og var megindlegra gagna fyrst aflað í gegnum spurningalistakönnun sem 35 starfsmenn leikskólans svöruðu. Þau voru greind með lýsandi tölfræði og innihaldsgreiningu. Niðurstöðurnar voru nýttar til þess að móta viðtalsramma fyrir eigindlega hluta rannsóknarinnar, en þá var gagna aflað með rýnihópa- og einstaklingsviðtölum við sex stjórnendur leikskólans og þau greind með þemagreiningu. Að lokum voru niðurstöðurnar samþættar, dregnar af þeim ályktanir og starfsmannahandbókin skrifuð. Niðurstöður benda til þess að starfsfólk og stjórnendur leikskólans vilji starfsmannahandbók sem endurspeglar starf leikskólans og sé bæði upplýsandi og leiðbeinandi. Endurgerð handbókarinnar var talin skapa tækifæri til að samræma verkferla, efla faglegt starf og styðja við innleiðingu nýrrar uppeldisstefnu innan leikskólans. Handbókin mun nýtast sérstaklega við móttöku nýrra starfsmanna og sem stuðningur fyrir stjórnendur í leiðbeinandi hlutverki. Til að handbókin haldi gildi sínu til framtíðar þarf hún að vera aðgengileg öllum starfsmönnum, endurskoðuð reglulega og nýtt sem grundvöllur fyrir samræður um starfshætti og faglegt starf leikskólans.The aim of this project was to renew the employee handbook for the kindergarten Esjuberg to increase staff accessibility and use of the handbook and to renew information that it has to hold. The purpose was among other things, to strengthen the reception of new staff members and to coordinate practices of staff members towards a common goal. The questions that lead the process of writing the employee handbook were: What information needs to be included in the employee handbook according to the kindergarten’s employees? and how do employees foresee themselves using the handbook? Data collection was built upon mixed methods design where quantitative data was first collected through a questionnaire that 35 staff members answered. The answers were analysed with descriptive statistics and content analysis. The results were used to form the interview framework for the qualitative part of the research, which involved gathering data through focus- and individual interviews with six managers within the kindergarten and analysing the responses through thematic analysis. Results were lastly integrated; conclusions were made and the handbook was written. The results suggest that the kindergarten staff members and managers want an employee handbook that reflects the work that happens within the school and is both informative and instructive. The renewal of the handbook was considered to create an opportunity to coordinate work procedures, strengthen professional work and to support the implementation of a new educational policy within the kindergarten. The handbook will prove especially useful for the recruitment of new staff members and will provide support for managers in the role of instructors. For the handbook to hold its value for the foreseeing future, it needs to be accessible to all employees, to be reviewed regularly and used as a basis for common dialogue about practices and professional work within the kindergarten

    21

    full texts

    50,783

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Skemman (Island)
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇