Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Stuðningur til sjálfstæðis - Handbók í starfi með fötluðu fólki

    No full text
    Þegar unnið er með fötluðu fólki er mjög mikilvægt að leggja áherslu á virðingu, skilning og réttindi fatlaðs fólks. Verkefnið er í tveimur hlutum, annars vegar handbók og hins vegar greinargerð. Handbókin er leiðarvísir fyrir þá sem eru að hefja störf með fötluðu fólki eða vinnur nú þegar á þeim vettvangi. Kynntar eru fjölbreyttar aðferðir til að mæta ólíkum þörfum einstaklinga og hvernig best er að eiga samskipti, þar á meðal með notkun tákns með tali. Handbókin er hagnýt og hægt er að nýta hana alls staðar þar sem unnið er með fötluðu fólki en einnig eru gagnlegar upplýsingar í henni fyrir hvern þann sem vill fræðast um málefni fatlaðs fólks. Handbókin veitir innsýn í helstu þætti sem snúa að réttindum fatlaðs fólks, samskiptum og einstaklingsmiðaðri nálgun. Hún kemur inn á samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, og veitir yfirlit yfir mismunandi tegundir fatlana. Lögð er áhersla á inngildingu, virðingu og mikilvægi sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks

    Star-Crossed Lovers: The Legacy of Romeo and Juliet in Modern Cinema

    No full text
    This thesis examines the concept of “star-crossed lovers”, immortalized in Shakespeare’s Romeo and Juliet, and its enduring impact on modern cinematic storytelling. By analyzing films such as Titanic, A Walk to Remember, Brokeback Mountain and Pocahontas, this paper explores how Shakespeare’s themes of fate, love and societal oppositions are reimagined to resonate with modern audiences. Each chapter delves into the interplay between the original play and these films, uncovering how they adapt the central narrative of doomed romance to address modern cultural and emotional landscapes. These films not only honor the tragic essence of Romeo and Juliet, but they also reinterpret it to reflect the ever-changing societal norms, challenges and values. Tracing the evolution of this archetype, the thesis reveals how Romeo and Juliet continues to provoke, inspire and even challenge our understanding of tragedy and love across cultures, time and media

    Hvernig hefur þróun húsnæðisverðs áhrif á leiguverð?

    No full text
    Ritgerðin fjallar um samband húsnæðis- og leiguverðs á Íslandi og hvernig ýmsir efnahagslegir og stefnumótandi þættir hafa áhrif á þróun þeirra. Markmið hennar er að greina hvort breytingar á fasteignaverði hafi áhrif á leiguverð. Til að rannsaka þetta eru notuð gögn frá bönkum, opinberum aðilum og fræðilegum rannsóknum. Einnig eru tekin viðtöl við sérfræðinga á sviði fasteigna- og leigumarkaðar. Fjallað er um áhrif vaxtaþróunar, framboðs og eftirspurnar, verð-leigu hlutfallsins (e. price-rent ratio) og aðgerða stjórnvalda á tengsl þessara tveggja markaða. Sérstök áhersla er lögð á hvernig vaxtabreytingar geta haft áhrif á eftirspurn eftir bæði fasteigna- og leiguhúsnæði, auk þess er skoðað hvernig húsnæðisframboð mótar leiguverð yfir tíma. Rannsóknin kannar einnig hvort verð-leigu hlutfallið gefi vísbendingar um hvort fasteignaverð sé ofmetið eða leiguverð undirverðlagt í samanburði við þróun markaðarins. Til viðbótar er fjallað um áhrif fólksfjölgunar, þar með talið aukinna innflytjenda á leigumarkaðinn. Þróun húsnæðis- og leiguverðs er skoðuð í samhengi við stefnu Seðlabanka Íslands, þar sem áhrif stýrivaxta og lánastefnu eru skoðuð. Niðurstöður sýna að hækkun fasteignaverðs hefur almennt áhrif á hækkun leiguverðs til lengri tíma. Verð-leigu hlutfallið gefur vísbendingar um hvort fasteignir séu ofmetnar og hvort leiga sé hagkvæmari kostur við tilteknar markaðsaðstæður. Leiguverð mótast þó einnig af öðrum þáttum eins og vaxtastigi, húsnæðisframboði og fólksfjölgun. Þó ber að hafa í huga að aðrar breytur gætu haft áhrif og þannig takmarkað niðurstöðurnar

    Grenndarréttur í skugga opinberra reglna: Um samspil óskráðra reglna grenndarréttar og settra laga

    No full text
    Ritgerð þessi fjallar um grenndarrétt, inntak hans og afmörkun ásamt samspil óskráðra reglna grenndarréttarins, sem teljast til einkaréttar, við sett lög af allsherjarlegum meiði og hvort sett lög á síðari tímum hafi að einhverju marki tekið við af hlutverki óskráðra reglna grenndarréttarins. Í upphafi ritgerðarinnar er fjallað um þróun grenndarréttar og þau sjónarmið sem liggja honum að baki. Eins eru tengsl grenndarréttar við eignarétt skoðuð með hliðsjón af því að í grenndarrétti felst lögbundin takmörkun á eignarréttindum en eignaréttindi njóta verndar 72. gr. stjórnarskrárinnar. Grenndarréttur og eignaréttur standa í nánum tengslum og er eðli þeirra samofið. Inntak þeirra réttinda sem felast í grenndarrétti verður ekki skilið til fulls án skilnings á tengslum grenndarréttar við eignarétt. Að því loknu er gerð ítarleg greining á hugtakanotkun grenndarréttar og þolmörkum hans en í þolmörkunum felst hinn eiginlegi kjarni grenndarréttarins, þ.e. hver eru mörk þeirra óþæginda sem fasteignareigandi verður að sætta sig við gagnvart nýtingu nágranna hans á nágrannalóð. Í framhaldi af greiningu á hugtakanotkun og kjarna grenndarréttarins er litið til settra laga og reglna sem byggja meðal annars á grenndarlegum sjónarmiðum. Slík lagasetning hefur aukist til muna á síðustu árum með tilkomu aukins þéttbýlis og hafa reglur allsherjarréttar þannig gengið talsvert inn á svið hinna einkaréttarlegu reglna grenndarréttarins. Sett lög og reglur hafa að nokkru leyti haft áhrif á þolmarkaþröskuld grenndarréttar og í umfjölluninni er lögð áhersla á að greina áhrif settra laga og reglna á inntak grenndarréttarins og samspil þessara reglna og varpa ljósi á hvernig sú breyting sem orðið hefur með aukinni lagasetningu birtist í framvæmd og hvaða áhrif hún hefur á réttarstöðu aðila sem standa í ágreiningi um hagnýtingu eigna sínum vegna sjónarmiða um grennd

    Nemandi sem viðskiptavinur: Samanburður á menntastefnu Íslands og Finnlands með áherslu á faglegt hlutverk kennara og stuðningskerfi fyrir nemendur

    No full text
    Í rannsókn þessari er borin saman menntastefna Íslands og Finnlands með áherslu á hlutverk kennara og stuðningskerfi fyrir nemendur. Markmið hennar er að greina hvernig opinber stefnumótun í menntamálum hefur áhrif á skólastarf, faglegt sjálfstæði kennara og aðgengi nemenda að nauðsynlegum úrræðum innan skólakerfisins. Við rannsóknina var beitt samanburðaraðferð þar sem greind voru opinber stefnumótunarskjöl, fræðilegar greinar úr ritrýndum tímaritum, viðtöl við kennara og skólastjórnendur, fyrirlestrar fagfólks og fjölmiðlaumfjallanir. Gögnum var safnað með það að markmiði að veita fjölbreytta og áreiðanlega sýn á þróun og framkvæmd menntastefnu í báðum löndum. Við greiningu var notast við þemagreiningu og innihaldsgreiningu til að draga fram sameiginleg mynstur, mismunandi áherslur og dýpri merkingu gagna. Niðurstöður sýna að í Finnlandi er lögð áhersla á faglegt traust, sjálfstæði kennara og sterka menntun þeirra, sem styrkir skólastarf og tryggir jöfn tækifæri fyrir nemendur. Á Íslandi er megináherslan á einstaklingsmiðað nám, sveigjanleika og samþætta þjónustu, en innleiðing stefnunnar hefur mætt áskorunum vegna skorts á úrræðum, óljósrar ábyrgðarskiptingar og vaxandi álags í kennarastétt. Þrátt fyrir svipaðar samfélagslegar forsendur hefur stefnumótun í löndunum þróast í ólíkar áttir, sem endurspeglast í mismunandi skilyrðum starfsumhverfis kennara og aðgengi nemenda að þjónustu. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að menntastefna byggi á fagmennsku, jafnræði og markvissum stuðningi. Hún sýnir að stefnumótun þarf að fylgja skýr framkvæmd, þar sem ábyrgðarskipting, samvinna og traust eru meginþættir árangurs. Með því að greina reynslu beggja landa gefst tækifæri til að nýta helstu styrkleika íslenska og finnska menntakerfisins í áframhaldandi stefnumótun á Íslandi. Slíkur samanburður getur nýst við mótun skólakerfis þar sem faglegt svigrúm kennara er virt og þeim tryggt raunhæft vinnuumhverfi til að takast á við fjölbreyttar áskoranir í starfi. Rannsóknin sýnir að skýr ábyrgð, faglegt traust og öflug samvinna eru lykilatriði í að tryggja nemendum heildstæða og aðgengilega þjónustu. Niðurstöðurnar gefa mikilvæga sýn á nauðsyn þess að samhæfa stefnu, framkvæmd og stuðningskerfi þannig að öll börn hafi raunverulega jafnt aðgengi að menntun sem styður við velferð þeirra og nám. Rannsóknin leggur þar með fram hagnýta þekkingu sem getur stutt við umbætur í íslensku menntakerfi með því að byggja á reynslu og lausnum sem hafa reynst árangursríkar annars staðar

    Samfélagsleg ábyrgð og vörumerkjavirði: Áhrif samfélagslegrar afstöðu fyrirtækja á vörumerkjavirði og neytendatryggð

    No full text
    Á undanförnum árum hefur mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar aukist verulega í markaðsstarfi fyrirtækja, þar sem neytendur gera sífellt meiri kröfur um gagnsæi, einlægni og siðferðilega afstöðu. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvernig samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja hefur áhrif á vörumerki, með sérstakri áherslu á vörumerkjavirði, neytendatryggð og sölu. Ritgerðin er heimilda ritgerð og er stuðst við fræðilegar kenningar sem og raunveruleg dæmi til að greina bæði jákvæð og neikvæð áhrif samfélagslegrar ábyrgðar á vörumerki. Niðurstöður sýna að ef samfélagsleg ábyrgð er samþætt stefnu og starfsemi fyrirtækja af heilindum getur hún styrkt ímynd, aukið traust og byggt upp tryggð neytenda. Á hinn bóginn getur yfirborðskennd eða ósamræmd samfélagsleg afstaða leitt til tortryggni, vantrausts og jafnvel skaðað vörumerki. Hugtök á borð við „Woke washing“ og efasemdir neytenda eru þar sérstaklega til umfjöllunar. Ritgerðin dregur fram að lykill að árangri í tengslum við samfélagslega ábyrgð liggi í samkvæmni milli orða og athafna, og að slík ábyrgð sé raunverulegur hluti af gildi og stefnu fyrirtækja

    El aprendizaje del léxico andaluz en ELE: de las unidades univerbales a las fraseológicas Una propuesta didáctica de ELE sobre el léxico andaluz

    No full text
    Este trabajo tiene como objetivo estudiar y analizar los usos fraseológicos propios del habla andaluza así como algunos vocablos propios del andaluz y su posible incorporación en la enseñanza de Español como Lengua Extranjera (ELE). Para ello, se pretende llevar a cabo un estudio sobre la modalidad lingüística andaluza. Partiendo de la base de la gran variedad lingüística que nos ofrece el habla andaluza, nos centraremos en las características fundamentales y distintivas de cada variedad. Seguidamente, se realizará una selección tanto de unidades fraseológicas como del léxico propio del andaluz, de unidades fraseológicas singulares del andaluz, centrándonos en su estructura y forma, su significado y, con mayor interés, en su contexto de uso con el objetivo de ofrecer una visión completa de las particularidades lingüísticas de esta variedad del español. Se analizarán expresiones unidades y vocablos que reflejan la riqueza cultural y la identidad regional de Andalucía. De este modo, se pretende destacar la vitalidad y diversidad del andaluz dentro del conjunto de dialectos del español. Tras ello y dada la importancia, desde mi punto de vista personal, de la enseñanza de estos conceptos al alumnado que desee adquirir la lengua, se procederá a la creación de una unidad didáctica. En esta unidad se diseñará una serie de ejercicios cuyo objetivo principal será la apreciación de la cultura y habla andaluzas, así como de la correcta adquisición y uso de estas unidades fraseológicas y léxico por parte del alumnado extranjero. Como profesora de español y andaluza, considero indispensable incorporar el ámbito cultural en la enseñanza, aprendizaje y adquisición de una lengua extranjera. Además, resulta un objetivo primordial el hecho de enseñar este contenido de manera divertida y amena, lo que llevará al alumno a un interés en indagar más en las hablas andaluzas.Palabras clave: fraseología andaluza, variedad lingüística, hablas andaluzas, enseñanza y adquisición.çThis work focuses on the phraseology and vocabulary specific to Andalusian dialect and its possible incorporation into the teaching of Spanish as a Foreign Language (SFL). To this end, it is intended to conduct an exhaustive study of the Spanish language, specifically, of Andalusian dialect. Starting from the basis of the great linguistic variety that Andalusian dialect offers, we will focus on the most basic and distinctive characteristics of each speech. Subsequently, a selection will be made of both phraseological units and vocabulary specific to Andalusian, focusing on their structure and form, their meaning, and, most importantly, their context of use, with the aim of providing a comprehensive view of the linguistic features of this variety of Spanish. Expressions, units, and words that reflect the cultural richness and regional identity of Andalusia will be analyzed. In this way, the study seeks to highlight the vitality and diversity of Andalusian within the broader set of Spanish dialects. Following this, and given the importance, from my personal point of view, of teaching these concepts to students who wish to acquire the language, a teaching unit will be created. In this unit, a series of exercises whose main objective will be the appreciation of Andalusian culture and dialect, as well as the correct acquisition and use of these phraseological units and lexicon by foreign students will be designed. Personally, as an Andalusian and Spanish teacher, I believe it is essential to incorporate cultural aspects into the teaching, learning, and acquisition of a foreign language. Furthermore, it is a key objective to teach this content in a fun and engaging way, which will encourage students to explore the Andalusian dialects further. Key words: Andalusian phraseology, linguistic variety, Andalusian dialects, teaching and acquisition

    Living at 300% A Strategic Framework for Maximizing Life Quality Without Burnout

    No full text
    Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig einstaklingar geta viðhaldið hámarksárangri án þess að upplifa kulnun, með því að hanna og nota kerfi sem sameina verkefnastjórnun, sálfræði og endurtekna ígrundun. Ritgerðin byggir á sjálfsskráningu (autoethnography) og hálfopnum viðtölum við fjóra einstaklinga á mismunandi aldri og starfsstigi. Helstu niðurstöður benda til þess að langvarandi árangur byggist ekki á stöðugu afli heldur á stöðugu jafnvægi milli fjögurra lykilþátta: samþættingar (integration), endurhleðslu (micro-recovery), mörkum (boundaries) og tilgangs (purpose). Þeir sem náðu bestum árangri beittu verkefnastjórnunaraðferðum eins og stuttum lotum, endurmati og forgangsröðun til að hámarka árangur án þess að fórna vellíðan. Rannsóknin sýnir að hámarksárangur án kulnunar er mögulegur þegar lífið er hannað sem lifandi verkefni sem byggir á meðvitund, aga og tilgangi. Með því að samþætta fræðilega þekkingu og eigin reynslu leggur ritgerðin til hagnýtt lífsstjórnunar-kerfi sem hjálpar fólki að lifa og vinna á sjálfbæran hátt.The purpose of this thesis is to explore how individuals can sustain high performance without burnout by designing personal systems that integrate project management principles, psychology, and reflective practice. The research is based on an autoethnographic approach combined with semi-structured interviews with four participants representing different life stages and professional contexts. Findings reveal that long-term performance depends less on constant motivation and more on a dynamic balance between four core mechanisms: integration, micro-recovery, boundaries, and purpose. Participants who achieved sustainable productivity applied project-management methods—such as short iteration cycles, reflective reviews, and clear prioritization—to optimize performance without compromising well-being. The study concludes that high performance without burnout is achievable when life is approached as a living project—one guided by awareness, structure, and meaning. By integrating theoretical understanding with lived experience, this thesis proposes a practical life-management framework that supports sustainable excellence and personal balance

    FAST heroes in Iceland – racing against time: Implementation of the FAST heroes campaign and results from a national survey on stroke awareness

    No full text
    Bakgrunnur: Heilaslag er alvarlegt lýðheilsuvandamál sem krefst tafarlausrar meðferðar. Skortur á þekkingu og töf á viðbrögðum getur hindrað aðgengi að bráðameðferð. Því hafa fræðsla og forvarnarstarf fengið aukið vægi. Skammstöfunin FAST (Face, Arms, Speech, Time) dregur fram helstu einkenni heilaslags og leggur áherslu á mikilvægi skjótra viðbragða. FAST hetjuverkefnið fræðir börn um einkenni heilaslags og hvetur þau til að miðla þekkingunni áfram til fjölskyldu og vina. Með því er stuðlað að vitundarvakningu bæði meðal barna og fullorðinna. Tilgangur: Að kortleggja innleiðingu FAST hetjuverkefnisins á Íslandi 2019–2025 og að greina niðurstöður þjóðarkönnunar um þekkingu og viðbrögð Íslendinga við einkennum heilaslags. Aðferð: Rannsóknin er tvíþætt: (1) Lýsandi greining á fræðsluefni og miðlun í gegnum samfélagsmiðla og heimasíðu FAST hetjanna. Greining fór fram í Word og Excel. (2) Lýsandi tölfræði í SPSS-29 á þjóðarkönnun sem send var til 2488 einstaklinga í ágúst 2023, til að meta þekkingu og viðbrögð við FAST einkennum. Niðurstöður: (1) Verkefnið var innleitt með víðtæku samstarfi og markvissri miðlun. Yfir 4000 börn hafa tekið þátt. Greining á Facebook og Instagram sýndi mest viðbrögð við hvatningar- og skemmtiefni. (2) 935 einstaklingar á aldrinum 20-70 ára svöruðu könnuninni, 489 karlar og 446 konur. Svarhlutfall var 37,6%. Flestir þekktu einkenni eins og óskýrt tal (96,3%) og andlitslömun (95,4%), en færri tengdu máttleysi í handlegg (74,3%) við heilaslag. Nánast allir þekktu neyðarnúmerið 112 (98%) og flestir myndu hringja á sjúkrabíl ef um FAST einkenni væri að ræða. Um 43% töldu sig vita hvernig bregðast ætti við heilaslagi, en aðeins 8,8% þeirra voru mjög öruggir. Ályktun: FAST hetjuverkefnið hefur miðlað fjölbreyttri fræðslu og stuðlað að virkri þátttöku barna. Þekking á einkennum og viðbrögðum við heilaslagi er til staðar, en efla þarf sjálfstraust almennings með fræðslu sem ýtir undir getu þeirra til að bregðast skjótt við – þegar hver einasta sekúnda skiptir máli. Lykilorð: Heilaslag, blóðþurrðarslag, blæðingarslag, FAST hetjur, fræðsla, inngrip.Background: Stroke is a serious public health issue that requires immediate treatment. A lack of knowledge and delayed response can hinder access to emergency care. Consequently, education and prevention efforts have gained increased importance. The mnemonic FAST (Face, Arms, Speech, Time) communicates the main symptoms of stroke and emphasizes the urgency of immediate action. The FAST Heroes campaign aims to educate children, teaching them about stroke symptoms and encourages them to share this knowledge with family and friends. In doing so, it promotes awareness among both children and adults. Objective: To map the implementation of the FAST Heroes campaign in Iceland from 2019 to 2025, and to analyze the results of a national survey on Icelanders’ knowledge of and responses to stroke symptoms. Method: The study is twofold: (1) A descriptive analysis of educational materials and dissemination via social media and the FAST Heroes website. The analysis was conducted using Word and Excel. (2) Descriptive statistics in SPSS-29 based on a national survey sent to 2488 individuals in August 2023, assessing knowledge and responses to FAST symptoms. Results: (1) The campaign was launched through extensive collaboration and targeted outreach, with over 4,000 children participating. Social media analysis showed that motivational and entertaining posts generated the highest engagement. (2) A total of 935 individuals aged 20–70 responded to the national survey, 489 men and 446 women, yielding a 37.6% response rate. Most recognized stroke symptoms such as slurred speech (96.3%) and facial drooping (95.4%), though fewer identified arm weakness (74.3%) as a sign. Nearly all knew the emergency number 112 (98%), and most would call an ambulance for FAST symptoms. While 43% felt they knew how to respond to stroke, only 8.8% felt very confident. Conclusion: The FAST Heroes campaign has delivered diverse educational efforts and engaged children actively. While knowledge is present, public confidence must be strengthened through continued education that supports the ability to act quickly – when every second counts. Keywords: Stroke, ischemic stroke, hemorrhagic stroke, FAST Heroes, education, interventio

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇