Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Poisoning and overdose at a glance

    No full text
    Poisoning and overdose are significant public health concerns in the UK, with poisoning accounting for more than 115000 hospital presentations in England in 2021–2022. Nurses are crucial in managing patients from triage to discharge. Nurses’ role in treating poisoning and overdose cases involves recognising toxidromes, initial stabilisation and symptom management. Commonly ingested substances include paracetamol, ibuprofen and illicit drugs; pharmacological interventions available include antidotes such as acetylcysteine and naloxone. Patients require a multidisciplinary approach, and collaborative care may involve clinical toxicologists, mental health professionals and social services to ensure comprehensive recovery. Ethical considerations of poisoning treatment include patient consent and the complexities of intentional overdoses. By understanding the nuances of poisoning and overdose treatment, health professionals can offer compassionate, evidence-based care

    Ten Top Tips for Mastering Medical Terminology

    No full text

    Síbylja: Íslensk þýðing á White Noise eftir Don DeLillo

    No full text
    Í þessarri greinargerð er fjallað um þýðingu á verkinu White Noise eftir bandaríska rithöfundinn Don DeLillo. Á yfirborðinu fjallar verkið um háskólaprófessor sem flýja þarf heimili sitt vegna loftborins eiturefnaleka af mannavöldum. Megininntak bókarinnar er þó hið svokallaða póstmóderníska ástand. DeLillo sviptir hulunni af póstmódernískum hversdagsleika persónanna, og þar af leiðandi lesandans, og varpar óbeint fram spurningum um magn upplýsinga sem meðalmanneskja innbyrðir á hverjum degi, markaðsetningu nauðsynja og ónauðsynja og óstöðugleika mannlegra sambanda í heimi þar sem upplifun annarra af þeirri grímu sem þú hefur valið þér í samfélaginu skiptir höfuðmáli. Í þessarri greinargerð eru ritstíll höfundar og inntak bókarinnar greind, með sérstakri áherslu á ótta við dauðann, sem ólgar undir textanum í gegnum verkið. Rýnt er í málsnið og stíl, inntak frumtextans og tilfinningaleg viðbrögð lesenda. Sömuleiðis er hlutverk þýðingar sett fram og það skilgreint út frá skoposkenningu Hans Vermeer og Katharina Reiß, auk kenningar Eugene Nida um áhrifajafngildi

    Íðorðasafn yfir saumavélar. Samantekt á íðorðum og mögulegur uppruni þeirra.

    No full text
    Þessi ritgerð er lögð fram til BA-prófs í íslensku við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni hennar er samantekt á íðorðum yfir grunníhluti hefðbundinna saumavéla ásamt umfjöllun um mögulegan uppruna þeirra. Saumavélar eins og þær sem eru hvað algengastar í dag komu fyrst fram um miðja 19. öld og fljótlega upp úr því er talið að fyrstu saumavélarnar hafi komið til Íslands. Saumavélar urðu strax eftirsóttar enda gátu þær sparað mikla vinnu bæði innan heimilisins og hjá þeim sem höfðu atvinnu af saumaskap. Hópur þeirra sem hafa einhverja aðkomu að saumavélum hefur alla tíð verið fjölbreyttur, auk notendanna sjálfra tilheyra honum kennarar og leiðbeinendur auk sölu- og þjónustuaðila. Til að samskipti á milli svo ólíkra hópa séu markviss þarf orðaforði þeirra að vera sameiginlegur. Íðorðafræði er fræðigrein sem m.a. fæst við að samræma orðaforða innan ákveðins afmarkaðs sviðs með skipulögðum hætti. Það er t.a.m. gert með því að greina hugtök og kerfi þeirra og setja fram skilgreiningar svo öllum sé ljóst við hvað er átt með ákveðnu íðorði. Þetta verkefni felst í því að taka saman íðorðasafn yfir grunníhluti venjulegra saumavéla sem þegar eru í notkun og skrá þau í Íðorðabanka Árnastofnunar. Samhliða söfnun íðorða var mögulegur uppruni þeirra athugaður. Vísbendingar eru um að íslenskur orðaforði hafi fljótlega tekið að myndast eftir að farið var að flytja inn saumavélar til Íslands. Til að byrja með voru flestar vélar fluttar inn frá Danmörku og með þeim fylgdi því danskur orðaforði, bæði munnlegur og skriflegur í formi leiðarvísa. Samanburður á íslenskum, dönskum, þýskum og enskum íðorðum bendir til þess að íslensk íðorð yfir grunníhluti saumavéla eigi sér rætur í þessum danska orðaforða þó að einnig gæti einhverra áhrifa frá þýsku og ensku

    Advancing Literacy in Ghanaian Junior High School: Curriculum Guidelines for Multimodal English Language Instruction

    No full text
    Teacher-centred pedagogies have long constricted students’ creativity, critical thinking, and engagement in Ghana. Paulo Freire (1970) described this approach as the “banking concept” of education in which passive students store knowledge (p.72). While the curriculum has been revised and reorganized into a competency-based structure, multimodal literacy practices remain marginalized. Multimodal literacy or “the use of visual, aural, textual, and kinetic (gestural) modalities for the construction of meaning” (Rush, 2009; Rowsell & Walsh, 2011, p. 31) offers a flexible approach to support a customized, inclusive education for different learners. The study explores the Ghanaian Junior High School (JHS) English language teachers’ understandings and applications of multimodal literacy and identifies a gap between the intended curriculum and classroom implementation. The interpretive qualitative study triangulates semi-structured interviews with 32 English language teachers from three regions, follow-up responses from six participants, and national curriculum and policy documents. The study analyses the lessons learned and tensions in classroom practices through the Piaget’s cognitive development theory (Piaget, 1972), Erikson’s psychosocial theory (Erikson 1968), and multimodal literacy models. The study found teachers naturalized multimodal strategies such as visual materials, dramatization, and collaborative work, but constraints such as a lack of resources, high student-teacher ratios, unclear curriculum expectations, and a deficit of teacher training opportunities remain key challenges. This study yields contextualized curriculum principles for mediating the policy-practice gaps. The study’s practical recommendations on flexible, low-tech and high-tech strategies, clear assessment procedures, and inclusive pedagogical tools for Ghanaian schools. The findings of this study emphasize the importance of aligning curriculum design with the lived experiences of teachers, urging curriculum designers, policymakers, and teacher educators to close this gap. The study also contributes to multimodal literacy literature in sub-Saharan Africa and lays the foundation for future work to recontextualize English language teaching in ways which honour student diversity, equity, and agency

    „Ég er einstakur!“ Hvernig getur sýnileiki fötlunar í barnabókmenntum þróað jákvæð viðhorf gagnvart fötlun meðal barna ?

    No full text
    Lestur gegnir lykilhlutverki í þroska barna en í gegnum lestur afla þau sér þekkingar, móta viðhorf og dýpka skilning sinn á umheiminum. Ef börn lesa aðeins bækur sem skarta ófötluðum persónum getur það takmarkað sýn þeirra á margbreytileika mannlífsins. Þrátt fyrir að fræðimenn hafi bent á mikilvægi þess að fatlaðar sögupersónur fái meiri sýnileika í barnabókum, er skortur á slíku efni enn verulegur. Þetta undirstrikar þörfina á aðgerðum sem stuðla að raunverulegri endurspeglun samfélagsins í bókmenntum barna. Barnabókin Ég er einstakur, sem er ætluð börnum á aldrinum 5–8 ára, sýnir fötlun í jákvæðu ljósi. Markmið hennar er að stuðla að aukinni vitund um og jákvæðum viðhorfum til fjölbreytileika. Hún miðar að því að draga úr fordómum og efla skilning barna á fötlun, sem getur leitt til aukinnar þátttöku allra í samfélaginu

    Samfélagsleg áföll: Hlutverk félagsráðgjafa á tímum hamfara

    No full text
    Hamfarir geta átt sér stað um allan heim og haft djúpstæð áhrif á einstaklinga og samfélög. Náttúruhamfarir á Íslandi hafa leitt til raskana á starfsemi samfélaga, ógnað öryggi fólks og leitt til manntjóns. Ritgerðin er heimildaritgerð og beinist að áhrifum náttúruhamfara og hver hlutverk félagsráðgjafa eru í tengslum við slíka atburði. Leitast var við að svara rannsóknarspurningunni: Hvert er hlutverk félagsráðgjafa áður en hamfarir eiga sér stað, á meðan á þeim stendur og eftir að þeim lýkur? Niðurstöður ritgerðarinnar vörpuðu ljósi á helstu hlutverk félagsráðgjafa í tengslum við hamfarir, en þau eru meðal annars að tryggja íbúum öryggi, finna úrræði, veita áfallahjálp, stuðla að virkni og þátttöku íbúa með samfélagsvinnu og nýta sérþekkingu sína á félagslegum þáttum sem eru mikilvægir fyrir viðbragðsáætlanagerð. Erlendar og íslenskar greinar hafa einnig fjallað um mikilvægi þess að huga að annars stigs streitu og tryggja íbúum þjónustu, áfallahjálp, húsnæði og fjárhagsaðstoð til að koma í veg fyrir alvarleg og langvarandi sálar- og félagsleg áhrif áfalla. Félagsráðgjafar beita gagnreyndum aðferðum í starfi sínu með einstaklingum, hópum, fjölskyldum og samfélögum og stuðla að velferð þeirra. Með því að skilgreina hlutverk félagsráðgjafa fyrir, á meðan og eftir að hamfarir eiga sér stað, er hægt að stuðla að árangursríkum og samhæfðum viðbrögðum við hamförum til að tryggja að allir hópar samfélagsins fái viðeigandi og nauðsynlega þjónustu. Mikilvægt er að halda áfram að rannsaka málefnið og setja í samhengi við íslenskar aðstæður til að stuðla að umbótum og draga úr neikvæðum áhrifum áfalla á einstaklinga og samfélög

    Syngjandi Íslendingar : samþætting tónlistar og leiktexta í íslenskum söngleikjum

    No full text
    Söngleikur er almennt talinn vera sviðslistaverk sem sameinar leiklist, tónlist og dans. Söngleikir hafa þróast í gegnum aldir allt eftir samfélaginu hverju sinni. Á síðustu áratugum hafa söngleikir þróast í þá átt að söguþráðurinn, persónurnar og tónlistin eru öll samþætt og allt styður við hvert annað. Þessi tegund af söngleik kallast samþættur söngleikur og það er sú tegund af söngleik sem áhorfendur ættu að kannast við því þeir búa yfir þeim einkennum og áherslum formsins sem unnið er með í dag. Oft er talað um óperettur og söngleik í sömu andrá, það virðist vera sem munurinn sé frekar óljós. Oftast er um klassíska tónlist að ræða í óperettum og tónlistin nær yfir allt verkið, lítið er um samtöl, á meðan að í söngleikjum er tónlistin fjölbreyttari. Greinarmunur á milli leikrits með söngvum og söngleikja er einnig óskýr en einkenni samþættra söngleikja geta hjálpað við að brúa það bil. Greint er frá þeim einkennum með hjálp fræðimanna og sérfræðinga á borð við John Kenrick, Millie Taylor og Dominic Symonds. Þrír íslenskir söngleikir eru síðan teknir fyrir, Deleríum Búbónis eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnason, Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson og Leg eftir Hugleik Dagsson. Kannað er hvernig samþætting leiktexta og tónlistar birtist í verkunum. Elsta verkið líkist fremur revíu en söngleik en seinni tvö verkin hafa samþættingu innanborðs þó hún mætti vera meiri

    Rumination as a Mechanism of Change During Behavioral Activation Treatment for Depression

    No full text
    This study investigates the efficacy of Behavioral Activation (BA) as a treatment for depression and explores rumination as a potential mechanism of change (MoC) within BA treatment. It was hypothesized that there would be a significant change from pre- to post-treatment, specifically: a) reduction in depressive symptoms, b) reduction in rumination, and c) increase in quality of life. 2. That rumination would have a mediating effect between BA treatment and depression, where changes in rumination were expected to occur prior to changes in depressive symptoms. 3. There would be a visible pattern between rumination and affective states, specifically: a) there would be an inverse relationship between rumination and positive affectivity, and b) rumination and negative affectivity would exhibit a similar trend over time. A one-group pretest-posttest design was used for data analysis. The sample consisted of 14 participants recruited through advertisements on social media. Repeated measurements were used to examine change during treatment, which included three pre-treatment baseline measurements, brief session-by-session assessments, additional evaluations after the fourth and eighth sessions, and post-treatment assessments. Data collection involved self-report questionnaires, structured clinical interviews, and momentary assessments via smartphone. Results: As expected, paired samples t-tests were significant for all variables: PHQ-9 (M = 6.71, 95% CI [3.927, 9.501], t(13) = 5.205, p < 0.001, d = 1.39), BDI-II (M = 16.43, 95% CI [10.349, 22.508], t(13) = 5.838, p < 0.001, d = 1.56), RRS (3.86 points, 95% CI [1.640, 6.074], t(13) = 3.758, p < 0.001, and with a large effect-size, d = 1.00). 57% of participants were considered responsive to treatment, showing a decrease of ≥ 50%. 71% of participants no longer met DSM-5 criteria, as assessed by DIAMOND, for depression at post-treatment assessment. These results indicate that BA treatment was an effective treatment for depression in this sample. Inconsistent with the predicted results, there were no visible indications that changes in rumination occurred before changes in depressive symptoms. Thus, the findings for rumination as a MoC in BA treatment were inconclusive. Contrary to expectations, analysis of momentary data provided insufficient support for a) an inverse relationship between rumination and positive affectivity and b) that rumination and negative affectivity followed the same trend. The overall findings in this study support Behavioral Activation as an effective treatment for depression. However, these findings do not indicate a mediating effect of rumination in BA treatment for depression, nor a visual relationship between rumination and negative and positive affect states. Keywords: Depression, Behavioral Activation, Treatment Efficacy, Rumination, Mechanism of Chang

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇