Buckinghamshire New University
Not a member yet
17928 research outputs found
Sort by
Útdráttur lífvirkra efna úr örþörungunum Spirulina og Chlorella : mæling á andoxunarvirkni
Örþörungategundirnar Chlorella vulgaris og Spirulina platensis eru þekktar fyrir hátt innihald lífvirkra efna, þar á meðal andoxunarefna og próteina, sem geta nýst í fæðubótarefnum og öðrum líftæknivörum. Til að hámarka nýtingu þessara efna þarf að beita skilvirkum aðferðum við útdrátt úr frumum. Í þessari rannsókn var markmiðið að kanna áhrif frumusprengingar með kúlukvörn (bead mill) og notkun tveggja leysiefna, sjóðandi vatns og hreins etanóls (99,8%), á próteininnihald og andoxunarvirkni í tegundunum. Bradford-próf var notað til að mæla próteininnihald og andoxunarvirkni mæld með Ferric Reducing Antioxidant Power (FRAP), Ferrous Ion Chelating Capability (FIC) og DPPH (2,2-diphenyl-1-picrylhydrazyl) aðferðum. Niðurstöður sýndu að frumusprenging hafði marktækt jákvæð áhrif á losun lífvirkra efna í flestum sýnum. Útdráttur með sjóðandi vatni reyndist sérstaklega áhrifaríkur eftir frumusprengingu. Spirulina reyndist vera með hærra próteininnihald og meiri andoxunarvirkni en Chlorella, óháð meðhöndlunaraðferð.
Rannsóknin undirstrikar mikilvægi frumusprengingar við útdrátt á lífvirkum efnum úr örþörungategundunum. Val á útdráttarefnum og meðhöndlunaraðferð hafði afgerandi áhrif á aðgengi næringarefna og andoxunarvirkra sameinda, sem hefur þýðingu með tilliti til notkunar í matvælaiðnaði, sem fæðubótarefni og lyfjavörur.Chlorella vulgaris and Spirulina platensis are microalgae known for their high content of bioactive compounds, including antioxidants and proteins, with promising applications in nutraceuticals and biotechnology. Efficient extraction methods are essential to maximize the recovery of these valuable compounds. The aim of this study was to evaluate the effects of bead mill cell disruption and extraction using two different solvents, boiling water and 99.8% ethanol, on the protein content and antioxidant activity of microalgae products.
The Bradford assay was used for protein quantification and Ferric Reducing Antioxidant Power (FRAP), Ferrous Ion Chelating Capability (FIC) and DPPH (2,2-diphenyl-1-picrylhydrazyl) assays were used for assessing antioxidant activity. The results showed that cell disruption significantly enhanced the release of bioactive compounds in most cases. Extraction using boiling water was particularly effective when combined with cell disruption. Spirulina consistently demonstrated higher protein content and antioxidant activity compared with Chlorella, regardless of the extraction method used.
The findings highlight the importance of combining mechanical cell disruption with appropriate solvent choice to optimize the recovery of nutrients and antioxidant active molecules from microalgae. This has implications for their potential use in food, as dietary supplements, and as pharmaceutical products.Mýsköpu
Market eligibility of Icelandic companies: An analysis of listing readiness on Nasdaq Iceland
Ritgerðin fjallar um skilyrði og matsatriði sem greina hvað það er að eiga erindi á skipulegan verðbréfamarkað. Greint er frá formlegum skráningarskilyrðum Nasdaq Iceland, hvernig fyrirtæki undirbúa sig fyrir skráningu og hver áhrif ytri sem og innri aðstæðna og stjórnunarstefnu geta verið. Greind eru fyrirtæki sem annað hvort hafa skráð sig eða íhuga skráningu og dregið fram hvernig huglægt mat á framtíðarvexti, áhuga fjárfesta og orðspori hefur áhrif á skráningarhæfi.
Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að hvort að fyrirtæki eigi erindi á markað ræðst ekki eingöngu af formlegu skráningarhæfi skv. reglubók Nasdaq, heldur af samspili ýmissa rekstrarlegra þátta, trúverðugleika, vaxtartækifæra og trausts fjárfesta til framtíðaráforma fyrirtækisins. Aðalmarkaðurinn er ætlaður traustum, gagnsæjum og öguðum fyrirtækjum sem búa yfir skýrri framtíðarsýn, stöðugum rekstri og þola það gagnsæi á reksturinn sem skráð fyrirtæki eru krafin um. Slík fyrirtæki njóta aukins sýnileika og trausts og geta styrkt samkeppnisstöðu sína á betri hátt.
Hins vegar eiga félög ekki erindi á markað ef þau búa við óstöðugleika, óskýran rekstur eða skort á gagnsæi. Einnig getur ytri áhætta, t.d. viðvarandi eldgos, sveiflukenndur rekstur og hvers kyns óstöðugur rekstur sem ekki er unnt að halda út allt árið í kring haft áhrif á áhuga fjárfesta. Oft er það beinlínis mat eigenda fyrirtækjanna að ekki sé hægt að skrá fyrirtækið á markað, enda sé óboðlegt að bjóða fjárfestum upp á þær sveiflur sem kunna að skapast af skráðu fyrirtæki.
Að auki getur kostnaður við skráningu og rekstur skráðra félaga verið hlutfallslega þungur fyrir minni fyrirtæki. Kostnaður vegna skráningar á Íslandi er að jafnaði lægri en í norrænum kauphöllum en árgjöld Nasdaq Iceland eru hins vegar nokkuð hærri í samanburði við norrænu kauphallirnar, bæði fyrir lítill og stór fyrirtæki . Til að mynda má áætla að árgjöld nemi allt að 0,78% af hagnaði hjá minni félögum á Íslandi, á meðan stærri félög greiða innan við 0,1%
Náttúruleg inngrip og sjálfkrafa upphaf fæðinga eftir 40 vikna meðgöngu. Fræðileg samantekt með kögunarsniði
Bakgrunnur: Á undanförnum áratugum hefur tíðni gangsetninga fæðinga aukist verulega, oft vegna lengdrar meðgöngu. Þrátt fyrir að læknisfræðileg inngrip séu nauðsynleg í sumum tilvikum, er mikilvægt að skoða náttúrulegar og lyfjalausar aðferðir sem gætu stuðlað að sjálfkrafa fæðingu.
Tilgangur: Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort náttúrulegar aðferðir geti stuðlað að sjálfkrafa fæðingu og dregið úr þörf fyrir lyfjafræðilega gangsetningu.
Aðferð: Framkvæmd var fræðileg samantekt með kögunarsniði (e. scoping review) þar sem leitað var í gagnagrunnum eins og PubMed, Cochrane Database of Systematic Reviews og ProQuest. Notuð voru fyrirframákveðin leitarorð og einnig var fram- og afturvirkri snjóboltaleit beitt. Leitin var takmörkuð við rannsóknir sem birtar voru á tímabilinu 2010 - 2025, skrifaðar á ensku eða íslensku, innihéldu ekki dýrarannsóknir og rannsakaðar voru náttúrulegar aðferðir ýmist við enga meðferð eða lyfleysumeðferð. Samanburður á náttúrulegum aðferðum við lyfjatengdar aðferðir við framköllun fæðinga voru því einnig útilokaðar.
Niðurstöður: Alls uppfylltu 25 rannsóknargreinar frá 16 löndum inntökuskilyrði rannsóknarinnar. Af þeim voru 19 slembivalsrannsóknir, þrjár samanburðarrannsóknir, tvær þversniðsrannsóknir og ein hagkvæmnisrannsókn. Fjórar rannsóknir studdust við gervimeðferðarhóp (e. sham) og í tveimur var notuð lyfleysa (e. placebo). Þátttakendur voru 4.998 barnshafandi konur sem voru gengnar á bilinu 35 - 42 vikur á leið í eðlilegri meðgöngu. Niðurstöður benda til þess að ákveðnar náttúrulegar aðferðir, svo sem belgjalosun, laxerolía og örvun geirvarta, geti aukið líkur á sjálfkrafa fæðingu.
Ályktanir: Náttúrulegt inngrip sem virkar fyrir eina konu gæti ekki haft áhrif á aðra. Árangur náttúrulegra inngripa virðist ráðast af einstaklingsbundnum þáttum, svo sem fjölda fyrri meðganga og lengd núverandi meðgöngu. Samantektin undirstrikar mikilvægi markvissrar og gagnreyndrar fræðslu til verðandi mæðra um náttúrulegar aðferðir til að styðja við fæðingarferlið.
Lykilorð: náttúrulegar aðferðir, framköllun fæðinga, sjálfkrafa upphaf fæðingar, framköllun fæðinga án lyfj
Fýsileikagreining á framleiðslu rafeldsneytis á stórum skala á Íslandi
This thesis aims to present an economic feasibility study of three phased pathways for the large-scale production and storage of green hydrogen (H2), e-ammonia (NH3), and e-methanol (CH3OH) at the port of Grundartangi in Iceland. Each pathway focuses on one fuel, targeting an annual production of 750,000 tonnes through alkaline water electrolysis powered by renewable electricity. This research is motivated by Iceland’s goals of achieving full independence from fossil fuels and carbon-neutrality by 2040. The thesis includes a comprehensive literature review, determination of pathway process parameters, and a techno-economic assessment. The base-case techno-economic assessment is based on market fuel prices, capital and operating costs from literature and commercial data, an assumed 26-year project lifetime, starting in 2028, and the adoption of a 9.25% discount rate. Key outputs included Net Present Values (NPVs), Internal Rates of Return (IRRs), Benefit-Cost Ratios (BCRs), Payback Periods (PBPs), and Levelised Costs of Fuels (LCOFs). The results suggest that while all three pathways demonstrate economic feasibility under certain assumptions, with NPVs of 1,665 M€, 694 M€, and 850 M€ for H2, NH3, and CH3OH, respectively, they remain not cost-competitive with fossil fuel-derived alternatives at present due to higher production costs. The LCOFs were calculated at 5.87 €/kgH2, 0.60 €/kgNH3, and 0.76 €/kgCH3OH. The thesis‘ sensitivity analysis indicates that fuel prices, followed by discount rates and electricity prices, have the greatest influence on its economic outcomes. At the scales analysed, large-scale green fuel production in Iceland via electrolysis likely demands significant renewable electricity generation expansion. Without policy mechanisms, such as subsidies and increased carbon pricing on fossil fuels, the premium prices of green fuels identified in this study are unlikely to achieve cost-competitiveness with fossil fuels in the mid-term, limiting their role in meeting decarbonisation targets.
Keywords: Techno-economic assessment, Hydrogen, Alkaline water electrolysis, Energy transitionMarkmið þessarar ritgerðar er að leggja fram fýsileikagreiningu á þriggja fasa framleiðsluleiðum á grænu vetni (H2), ammoníaki (NH3) og metanóli (CH3OH) á Grundartanga á Íslandi. Hver leið er tileinkuð einu rafeldsneyti og miðast við árlega framleiðslu upp á 750.000 tonn með alkalískri rafgreiningu vatns, knúinni af endurnýjanlegri raforku. Rannsóknin byggir á markmiðum Íslands um að verða laust við jarðefnaeldsneyti og að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Ritgerðin inniheldur yfirgripsmikla heimildarýni, skilgreiningu á framleiðsluferlum hverrar leiðar og arðsemisgreiningu. Sú greining, framkvæmd í kostnaðarlíkani, byggir á sóttum gögnum um markaðsverð eldsneytanna, fjárfestingar- og rekstrarkostnað, 9,25% afvaxtahlutfalli og forsendu um 26 ára líftíma leiðanna, sem gert er ráð fyrir að hefjist árið 2028. Helstu niðurstöður felast í útreikningi á hreinum núvirðum (NPVs), afkastavöxtum (IRRs), kostnaðar-ábatahlutföllum (BCRs), endurgreiðslutímum (PBPs) og núvirtum eldsneytisverðum (LCOFs). Niðurstöðurnar benda til þess að allar þrjár leiðir geti verið arðbærar við ákveðnar forsendur, með hreinu núvirði upp á 1.665 M€, 694 M€ og 850 M€ fyrir H2, NH3 og CH3OH, í þeirri röð. Hins vegar eru eldsneytin ekki kostnaðarlega samkeppnishæf við jarðefnaeldsneyti á þessum tímapunkti þar sem núvirt eldsneytisverð þeirra eru hærri vegna hærri framleiðslukostnaðar, eða 5,87 €/kgH2, 0,60 €/kgNH3 og 0,76 €/kgCH3OH. Næmnigreining ritgerðarinnar sýnir að eldsneytisverð, ásamt afvaxtahlutfalli og raforkuverði, hafa mestu áhrifin á arðsemi leiðanna. Íslensk framleiðsla grænna eldsneyta með rafgreiningu á þeim skala sem hér er um að ræða myndi líklega krefjast verulegrar aukningar í raforkuframleiðslu. Þessi grænu eldsneyti hafa hærra söluverð í samanburði við jarðefnaeldsneyti og án stuðnings stjórnvalda í formi niðurgreiðslna og aukinnar kolefnisverðlagningar á jarðefnaeldsneyti er ólíklegt að þau verði þeim samkeppnishæf til meðallangs tíma og styðji þar með við markmið Íslands um kolefnishlutleysi.
Efnisorð: Fýsileikagreining, Vetni, Rafgreining, Orkuskipt
Conscious Decision Mechanism (CDM): A systemic strategy to enhance sustainability in the denim industry.
The lived experiences of female PR practitioners in the UK: Exploring Bourdieu’s theory of habitus, gender imbalance, and exploitation.
Rekstur knattspyrnufélaga á Íslandi : samspil fjárhags og árangurs
Þessi ritgerð fjallar um samspil fjárhags og árangurs í rekstri knattspyrnufélaga. Knattspyrna er vinsælasta íþrótt heims og hefur þróast yfir í alþjóðlega atvinnugrein með víðtæk áhrif á efnahag og samfélög. Fjallað er um þróun á rekstri félaga með sérstakri áherslu á þróun eignarhalds, mismunandi tekjustoða og launa leikmanna ásamt áhrifum alþjóðlegra regluverka um fjármálastjórnun. Þá er fjallað um hvernig algengar kenningar hagfræðinnar, t.d. um auðlindamiðaða sýn (e. resource based view) og stærðarhagkvæmni, eiga við um rekstur knattspyrnufélaga.
Í rannsóknarhluta ritgerðarinnar er gerð greining á samspili fjárhags og árangurs íslenskra knattspyrnufélaga og greinir núverandi stöðu þeirra í samanburði við norsk og sænsk félög. Sérstök áhersla er lögð á að meta hvernig fjárhagslegir þættir – einkum tekjur og launakostnaður – hafa áhrif á árangur innan vallar og hvernig íslensk félög nýta fjármagn sitt í samanburði við félög á stærri mörkuðum.
Rannsóknin byggir annars vegar á samanburðargreiningu á ársreikningum valinna félaga frá Íslandi, Noregi og Svíþjóð og hins vegar tölfræðilegri aðhvarfsgreiningu á gögnum allra félaga í efstu deildum karla í sömu löndum árið 2023. Gögn voru fengin úr opinberum ársreikningum og úr keppnisniðurstöðum og færð til samræmis með gengisbreytingum og reiknuðum meðaltölum til að tryggja samanburðarhæfni milli landa.
Niðurstöður sýndu að tekjur ársins 2022 höfðu jákvæð áhrif á árangur ársins 2023, mældum í stigum per leik. Aftur á móti voru áhrif launakostnaðar ekki marktæk. Þá kemur fram að íslensk lið ná að meðaltali fleiri stigum per leik með vaxandi fjárhagslegum styrk en lið frá Noregi og Svíþjóð, sem bendir til betri skilvirkni í nýtingu fjármuna. Í greiningu ársreikninga kemur jafnframt í ljós að þátttaka í Evrópukeppnum og leikmannasala hafa afgerandi áhrif á tekjumöguleika íslenskra félaga
Fishing for plastics : the socio-economic impacts of marine plastic pollution on small-scale fisheries in the Mediterranean Sea
The Mediterranean Sea is often characterized as a hotspot for plastic pollution due to its densely populated coastlines, fishing, shipping, tourism, and limited outflow of surface water to the Atlantic. The Balearic Islands, a group of four Spanish islands in the Mediterranean, have received significant international attention in recent years. High climate change vulnerability, excessive plastic pollution, inadequate waste management strategies, and over-dependence on the tourism sector are among the issues threatening these islands. Small-scale fisheries (SSF) in the Mediterranean, particularly in the Balearic Islands, are vital for local communities, contributing significantly to fish catches and being deeply intertwined with cultural heritage and traditional values. However, they face several threats due to marine plastic pollution. This research investigates the impacts of marine plastic pollution on SSF, identifies the primary sources of pollution, and examines the extent to which existing policies incorporate considerations for small-scale fisheries. The study employed a qualitative methodology, including in-depth semi-structured interviews, field observations, photographic evidence, and detailed field notes. A review of the literature revealed a lack of studies focusing on SSF in the Balearic Islands that incorporate perspectives from both traditional and non-traditional stakeholders. Results indicate that tourism, especially mass tourism, generates an unmanageable amount of waste in the region. Marine plastic pollution can directly impair fishing operations and negatively affect the sector economically, reducing catch efficiency and requiring more time spent sorting through catches. The findings reinforce the complex interaction between seasonal tourism-generated waste, inefficient waste management, marine plastic pollution, and SSF. Regulating plastic use in the tourism industry and enhancing waste management strategies are essential to mitigating the impacts on small-scale fisheries.Miðjarðarhafið er oft lýst sem brennipunkti plastmengunar vegna þéttbýlla strandsvæða, fiskveiða, skipaflutninga, ferðaþjónustu og takmarkaðs yfirborðsrennslis til Atlantshafsins. Baleareyjar hafa hlotið vaxandi alþjóðlega athygli undanfarin ár vegna mikillar viðkvæmni fyrir loftslagsbreytingum, umfangsmikillar plastmengunar, ófullnægjandi úrgangsstýringar og mikillar háðar ferðaþjónustu. Smábátaútgerðir á Miðjarðarhafssvæðinu, einkum á Baleareyjum, gegna lykilhlutverki í samfélögum, leggja verulega af mörkum til afla og eru samofnar menningarlegu arfi og hefðum. Þær standa þó frammi fyrir alvarlegum áskorunum vegna plastmengunar í hafi. Þessi rannsókn skoðar áhrif plastmengunar á smábátaútgerðir, greinir helstu uppsprettur mengunar og metur að hve miklu leyti núverandi stefnumótun tekur mið af hagsmunum smábátaútgerða. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð, þar á meðal ítarleg viðtöl, vettvangsathuganir, ljósmyndir og nákvæmar vettvangslýsingar. Yfirlit yfir fræðileg gögn sýnir skort á rannsóknum sem fjalla sérstaklega um smábátaútgerðir á Baleareyjum út frá sjónarhorni bæði hefðbundinna og óhefðbundinna hagsmunaaðila. Niðurstöðurnar benda til þess að ferðaþjónusta, sérstaklega fjöldaferðaþjónusta, skapi óviðráðanlegt magn úrgangs á svæðinu. Plastmengun í hafi getur haft bein neikvæð áhrif á veiðar og skaðað útgerð fjárhagslega með minni veiðihagkvæmni og meiri tíma sem fer í að flokka aflann. Rannsóknin undirstrikar flókið samspil milli úrgangs sem myndast vegna árstíðarbundinnar ferðaþjónustu, veikrar úrgangsstýringar, plastmengunar og smábátaútgerða. Takmörkun á notkun plasts í ferðaþjónustu og bætt úrgangsstýring eru lykilatriði til að milda áhrifin á smábátaútgerðir
Anthropological Approaches to Men and Workculture in the Global North
Í þessari bakkalárritgerð er fjallað um karlmennsku í tengslum við atvinnu og vinnumenningu í mannfræðilegu samhengi. Sjónum er beint að því hvernig verkaskipting og samfélagsleg staða móta karlmennsku ímyndir og hvaða áhrif vinnuumhverfi hefur á uppbyggingu og framkvæmd karlmennsku. Með því að greina etnógrafíur frá lok 20. aldar mun ég skoða hvernig karlmennska birtist og hvað þessar birtingarmyndir geta sagt okkur um karlmennsku samtímans. Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika karlmennskunnar og hvernig hún mótast eftir þáttum eins og stétt, aldri, staðsetningu og menningu. Þá er einnig fjallað um hvernig vald og hvernig félagsleg norm spila inn í viðhald ráðandi karlmennsku ímynda og kynjaðra hlutverka. Ég fjalla um hvernig valdbeiting fer fram og hvað gerist þegar karlmenn missa stöðu sína þegar þeir uppfylla ekki væntingar samfélags. Einnig er dregið fram hvernig karlmennska getur þróast í gegnum skemmtun og samveru sem mótvægi við streitu og álag í atvinnulífi. Markmiðið er að varpa ljósi á hvernig þessi fyrirbæri fléttast saman og hvernig karlmennska er alltaf framkvæmd innan samfélagslegra kerfa eins og atvinnu sem bæði mótar karlmennsku og takmarkar hana.This bachelor’s thesis explores masculinity in relation to work and workplace culture within an anthropological approach. The focus is on how the division of labor and social status shape masculine identities and how work environments influence the formation and performance of masculinity. By examining ethnographies from the late 20th century I aim is to understand how masculinity appears at the time and what these representations can reveal about masculinity in the present day. Special attention is given to the diversity of masculinities and how they are shaped by factors such as class, age, location, and culture. The thesis also discusses how power and social norms contribute to the maintenance of dominant masculine ideals and gender roles. I examine how power is exercised and what happens when men lose their social standing by failing to meet societal expectations. I will also discuss the development of masculinity through leisure and social bonding as a response to the stress and pressures of working life. The goal is to shed light on how these phenomena are interwoven and how masculinity is always performed within social frameworks, such as through employment which both shape and constrain it
RAIL-ing into the future : transforming medical education with 3D anatomy
Medical education is rapidly evolving through the integration of digital tools such as three-dimensional (3D) modeling, virtual reality, and augmented reality. These technologies can address limitations of traditional anatomy education, which includes mannequins and cadavers, by offering an immersive, interactive, and scalable learning environment. This thesis aims to contribute to this transformation by expanding the Radio Anatomical Interactive Library (RAIL), a mixed-reality platform designed by Reykjavik University and Landspítali, to provide clinically relevant and patient-specific anatomical educational content.
The main contribution of this work is the development of a new anatomical region within RAIL: the knee. Seven patient-specific cases, including both healthy and pathological scenarios, were processed from medical imaging data. Using a structured pipeline involving segmentation, mesh refinement, post-processing, and mixed-reality integration, these cases were transformed into anatomical detailed 3D models. The resulting content supports precise anatomical learning, spatial reasoning, and clinical understanding, especially in the context of musculoskeletal conditions such as osteoarthritis, fractures, and tumors.
In addition to the technical implementation, this thesis includes a comparative analysis with existing educational and clinical platforms. RAIL demonstrates a unique combination of features, including at its core the use of real patient data, radiological imaging, interactivity, and immersive visualization, features that are not found combined in other systems.
While challenges remain, particularly in the areas of scalability, automation, and the absence of formal user testing, the project establishes a reproducible workflow and a strong foundation for future development. Future recommendations include expanding the case library, refining technical processes, and conducting empirical evaluations in medical training environments to assess educational impact and usability. Overall, this work strongly reinforces the role of immersive, patient-specific tools in shaping the future of medical education