Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Froskaleikurinn

    No full text
    Í þessari skýrslu er fjallað um B.Sc. lokaverkefni fjögurra nemenda sem tóku það að sér að forrita gamlan tölvuleik, Froskaleikur Hoppa, sem var aðeins til fyrir Apple tæki. Gamli tölvuleikurinn var skrifaður í forritunarmálinu Objecttive-C og var hann uppfærður yfir í veflausn skrifaða í React Native

    Leikur á forsendum barnsins: Áhrif sjálfsprottins leiks á þroska leikskólabarna

    No full text
    Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed-prófs í leikskólakennarafræði frá Menntavísindasviði Háskóla ísland. Í þessari ritgerð er markmiðið að gera grein fyrir gildi leiks og sjálfsprottins leiks í almennum þroska barna, þá hreyfi-, félags- og málþroska. Kenningar fræði manna verða skoðaðar í samhengi við viðfangsefnið. Það verður leitast eftir því að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða áhrif hefur leikur, þá helst sjálfsprottinn leikur, á samskipti og almennan þroska barna?Nám í leikskólum byggir á leik og er því mikilvægt að börn fái nægan tíma og rými til þess að taka þátt í honum. Oftar en ekki hafa börn gaman af því að leika sér og þau gera það af fúsum og frjálsum vilja. Þegar börn leika sér verða til aðstæður sem styðja almennan þroskar þeirra, þá helst hreyfi-, félags- og málþroska. Þá er nauðsynlegt að kennarar styðji börn í leik og sjái til þess að námsumhverfi sé viðeigandi hverju sinni. Í leik eru börn að læra að takast á við nýjar aðstæður og leysa vandamál. Einnig eru þau að læra að eiga í samskiptum við aðra og læra á umhverfið sitt

    Þegar fjöllen þroíta, þýðing útvalinna ljóða úr Wenn die Berg streitn eftir Anni Kraus

    No full text
    Þessi ritgerð er 20 eininga lokaritgerð til BA – prófs og fjallar um þýðingu hluta ljóðabókarinnar Wenn die Berg streitn (1963) yfir á íslensku. Bókin er skrifuð í austurrískri mállýsku, nánar tiltekið tírólsku, af rithöfundinum Anni Kraus. Ég mun þar með rannsaka þær málfarslegu áskoranir sem fylgja ljóða- og mállýskuþýðingum. Í ritgerðinni verður lögð áhersla á þýðingafræðina sjálfa, ásamt stuttum umræðum um þýðingarvinnu, skóposkenninguna og þýðingu ljóða og mállýskutexta. Markmið mitt er að greina sérstök einkenni bókarinnar og kanna möguleikana að yfirfæra þau á íslenskuna án þess að tapa málfarslegri dýpt og menningarlegu samhengi ljóðanna. Þýðingunni fylgir greinargerð þar sem ég mun rökstyðja ákvarðanir mínar og gera grein fyrir áskorum þýðingarinnar sem komu upp í ferlinu. Þar á meðal verða erfiðleikar þess að þýða málvenju- og svæðisbundin orðalög greind. Varpað verður ljósi á mun þessarra tveggja tungumála með bæði málfræðilegri og bókmenntafræðilegri nálgun, til að gera grein fyrir áskorunum þess að yfirfæra mállýskuna yfir á íslensku. Þetta svið þýðingafræðinnar gefur innsýn í þá menningarlegu og málfarslegu sjálfsmynd sem felst í þýskunni, þá sérstaklega tírólsku. Þetta vekur upp spurninguna um hversu mikið af þessari menningarlegri sjálfsmynd er hægt að varðveita í þýðingu og hvaða aðferðir séu bestar til að viðhalda þessum einkennum tungumálsins og menningarinnar.Meine Bachelorarbeit beschäftigt sich mit der Übersetzung eines Teils des Gedichtbands Wenn die Berg streitn (1963) von Anni Kraus ins Isländische. Das Buch ist in einem Tiroler Dialekt geschrieben. In diesem Zusammenhang untersuche ich die sprachlichen Herausforderungen, die sich bei der Übersetzung von Gedichten einerseits und Dialektliteratur andererseits ergeben. Ein Streiflicht der Arbeit wird auf Translatologie gerichtet sein, neben einer kurzen Diskussion der Überlegungen zur Arbeit der Übersetzung, der Skopostheorie und der Übersetzung von Gedichten und Dialektliteratur. Mein Ziel ist es, die spezifischen Besonderheiten von Kraus‘ Buch zu analysieren und herauszuarbeiten, wie es in die isländische Sprache überführt werden kann, ohne dabei den kulturellen Kontext und die sprachliche Tiefe zu verlieren. Dabei wird ein Kommentar zur Übersetzung vorgelegt, der die spezifischen Herausforderungen und Entscheidungen im Übersetzungsprozess dokumentiert. Er wird nicht zuletzt die Schwierigkeiten der Übertragung von idiomatischen und regionalspezifischen Ausdrücken aufzeigen. Die Übersetzungen werden sowohl linguistisch als auch literarisch analysiert, um die Unterschiede und Herausforderungen zu verstehen, die bei der Übertragung von Dialekten in die isländische Sprache auftreten. Dieser Bereich der Übersetzungsforschung bietet Einblicke in die kulturelle und sprachliche Identität, die in der deutschen Sprache, insbesondere im Tirolerischen, verankert ist. Er stellt die Frage, wie viel von dieser Identität in einer Übersetzung bewahrt werden kann, und welche Strategien sich am besten geeignet, um diese Eigenheiten der Sprache und Kultur zu bewahren

    Reynsla hjúkrunarfræðinga af óhagstæðum eða alvarlegum atvikum í starfi : prófun á íslenskri útgáfu spurningalistans Second Victim Experience and Support Tool - Revised (SVEST-R)

    No full text
    Bakgrunnur: Hjúkrunarfræðingur sem verður fyrir andlegum og líkamlegum áhrifum í kjölfar óhagstæðs eða alvarlegs atviks í starfi kallast annars stigs fórnarlamb. Stuðningur getur dregið úr neikvæðum afleiðingum áfalls. Markmið: Að kanna reynslu hjúkrunarfræðinga af óhagstæðum eða alvarlegum atvikum í starfi og áhrifum þess á líðan og tengsl þessara þátta við streitu, bjargráð og stuðning. Aðferðir: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn með hentugleikaúrtaki með 70 hjúkrunarfræðingum. Gögnum var safnað með rafrænu spurningalistunum: Perceived Stress Scale (PSS), Second Victim Experience and Support Tool - Revised (SVEST-R) og Ways of Coping (WOC). SPSS 29.0.2.0 (20) tölfræðiforritið var notað til gagnaúrvinnslu. Niðurstöður: Niðurstöður sýndu að stuðningur vinnufélaga væri góður (73,5%) og helmingur þeirra (48,5%) hafði góða reynslu af stuðningi á vinnustað. Hærri aldur og lengri starfsaldur sýndi martækt lægra streitustig en hjá þeim sem voru yngri og höfðu unnið skemur (p = 0,001). Marktæk jákvæð fylgni var á milli streitu og sálrænnar vanlíðunar (rs 0,464) og líkamlegrar vanlíðunar (rs 0,535) vegna óhagstæðra eða alvarlegra atvika, og áformum um að hætta störfum (rs 0,565) og fjarveru frá vinnu (rs 0,362). Jákvæð fylgni var einnig á milli streitu og skorts á stuðningi stofnunar (rs 0,297), notkunar á forðunarhegðun (rs 0,365) og forðunarhugsun (rs 0,348). Faglegt sjálfsálit sýndi jákvæða fylgni við forðunarhegðun (rs 0,409), forðunarhugsun (rs 0,395) og fjarlægingu, (rs 0,262). Marktæk neikvæð fylgni var á milli seiglu og þess að einbeita sér að jákvæðum þáttum (rs 0,410), leita félagslegs stuðnings (rs 0,314), og stuðnings frá yfirmönnum og félagslegs stuðnings (rs 0,287). Ályktanir: Niðurstöður gefa vísbendingar um að stuðningur í vinnuumhverfi sé góður þegar hjúkrunarfræðingar verða fyrir óhagstæðum eða alvarlegum atvikum í starfi. Niðurstöðurnar geta nýst til að þróa markviss stuðningskerfi þar sem markmiðið er að efla úrræði sem geta dregið úr andlegri og líkamlegri vanlíðan og hvetja til virkari bjargráða fyrir hjúkrunarfræðinga. Lykilhugtök: Annars stigs fórnarlamb, hjúkrunarfræðingar, stuðningur, streita, bjargráðBackground: A nurse who experiences psychological and physical effects following an adverse or serious event in the workplace is referred to as a second victim. Support can help reduce the negative consequences of such incidents. Aim: To examine nurses' experiences of adverse or serious incidents at work and their impact on well-being and the relationship between these factors with stress, coping and support. Methods: A quantitative, descriptive, cross-sectional study with a convenience sample of 70 nurses. Data was collected using electronic questionnaires: Perceived Stress Scale (PSS), Second Victim Experience and Support Tool - Revised (SVEST-R), and Ways of Coping (WOC). The statistical software SPSS 29.0.2.0 (20) was used for data analysis. Results: Results showed that colleague support was strong (73,5%) and approximately half of them (48,5%) had good support experience from the institution. Higher age and longer work experience were significantly associated with lower stress levels compared with younger nurses and those with shorter work experience (p = 0,001). A significant positive correlation was observed between stress and psychological discomfort (rs = 0.464) and physical discomfort (rs = 0.535) resulting from adverse or serious incidents, and intentions to quit work (rs = 0.565) and absenteeism (rs = 0.362). Positive correlation was also found between stress and lack of institutional support and (rs = 0.297), using behavioral escape-avoidance (rs = 0.365) and cognitive escape-avoidance (rs = 0.348). Professional self-esteem was positively correlated with behavioral escape-avoidance (rs = 0.409), cognitive escape-avoidance (rs = 0.395) and distancing (rs = 0.262). Significant negative correlations were between resilience and focusing on positive aspects (rs = –0.410), seeking social support (rs= –0.314), and between support from supervisors and social support (rs = –0.287). Conclusions: The results indicate that support within the work environment is good when nurses experience adverse or serious incidents at work. These findings can inform the development of targeted support systems aimed at enhancing resources that reduce mental and physical discomfort and promote the use of more active coping strategies among nurses facing such situations. Keywords: second victim, nurses, support, stress, copin

    Burðarþolsgreining steypts einbýlishúss

    No full text
    Markmið verkefnisins var að samþætta þekkingu úr fyrri námsáföngum í heildstætt hönnunarverkefni og öðlast hagnýta reynslu sem nýtist á vinnumarkaði. Verkefnið snerist um undirbúning burðarþolshönnunar steypts einbýlishúss, frá hugmyndastigi og fram á þróuðu tölvulíkani. Við úrlausn verkefnis var gerð álagsgreining samkvæmt hönnunarstöðlum og tölvulíkan í SAP2000 til að skoða heildar álagshegðun hússins. Tölvulíkanið sýndi að burðarvirkið stóðst brotmarka- og notmarkaástand. Þrátt fyrir að fullgerð burðarþolshönnun með útreikningum á öllum þáttum hafi ekki verið framkvæmd, veitti verkefnið engu að síður fremur gagnlega reynslu og styrkti skilning á burðarþolsfræði.The aim of this project was to consolidate the knowledge acquired in previous courses into a comprehensive structural design assignment and to gain practical work-related experience. The project involved the structural design of a reinforced concrete house, from the conceptual stage to a numerical model developed. A load analysis of the building was performed according to Eurocode and a numerical model was created in SAP2000 to analyze the overall structural behavior of the building. The model indicated that the structure met the ultimate limit state and the serviceablity limit state requirements. Although a full structural design with detailed calculations for all components was not completed, the project provided valuable experience and strengthened the understanding of structural engineering

    Stafræn útskrifaráætlun fyrir smáforritið Bata

    No full text
    Substance use disorders (SUDs) affect millions worldwide, and few get adequate aftercare support following treatment. This project digitized an aftercare plan within the Bati mobile app to support individuals after inpatient care. A questionnaire was implemented and refined through two rounds of user testing to improve usability. This feature aims to reduce the risk of relapse by allowing users to review and monitor their goals and intentions in recovery

    SBASH: a Framework for Designing and Evaluating RAG and Prompt-Tuned LLM-based Honeypots

    No full text
    Traditional Honeypots not requiring AI fails at prolonging malicious actor’s session time due to the difficulty in handling complex commands to provide accurate dynamic responses. This problem with context awareness often leads to non-factual responses from the honeypot, which can tip the malicious actor that the engaged system is a honeypot, thus limiting effective threat intelligence and extended engagement time. This increasing threat against low-interaction honeypot calls for a more aware solution that can handle unexpected scenarios and engage with the users through dynamic solutions. This thesis proposes a low-interaction honeypot which relies on large language models (LLM) and retrieval augmented generation (RAG) for up-to-date and factually accurate responses for optimal realism. This system thrives on a series of commands’ descriptions, flags, and output samples, which is the RAG document. It also has a sanitization module which first classifies commands input into either existing or non-existing to prevent prompt injection attacks. This project has been evaluated using different metrics such as response time differences, realism assessed by human testers, and similarity to a real system calculated with Levenshtein distance, SBert, and BertScore. RAG excels where the system prompt of the model has not been tuned to emulate a Linux system but underperformed compared to direct inferencing where the models have been tuned to fit for Linux emulation

    Service recovery by outstanding companies: Insight into strategies, attitudes and success metrics

    No full text
    Flestir viðskiptavinir hætta í viðskiptum vegna þjónustufalls. Árangursrík þjónustubjörgun hefur verið skilgreind sem lykilatriði til að halda í viðskiptavini eftir þjónustufall. Þrátt fyrir það virðist sem fá fyrirtæki stuðli að farsælli þjónustubjörgun. Í þessari rannsókn var skoðað með hvaða hætti fyrirtæki með ánægðustu viðskiptavinina eru að styðja við ánægju þeirra eftir þjónustufall, hver eru viðhorf þeirra til þjónustufalls og þjónustubjörgunar, hvaða aðferðum er verið að beita til að bjarga þjónustuföllum og með hvaða hætti er talið hvort þjónustubjörgun sé að skila árangri. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru sex viðtöl við fulltrúa jafn margra fyrirtækja sem báru sigur úr býtum í Íslensku ánægjuvoginni. Niðurstöður viðtala benda til þess að þau fyrirtæki sem rannsóknin náði til styðji við ánægju viðskiptavina sinna eftir þjónustufall með áherslu á þjónustumenningu, mannlega nálgun, blöndun aðferða, valdeflingu starfsfólks og umbætur á þjónustuferlum. Viðhorf í þessum fyrirtækjum til þjónustufalls virðist vera að slíkur brestur í þjónustu sé óásættanlegur en líka óhjákvæmilegur. Þess vegna sé þjónustubjörgun mikilvæg til að koma í veg fyrir viðskiptavinatap og neikvætt umtal. Það lítur út fyrir að aðferðirnar sem fyrirtæki með ánægðustu viðskiptavinina beita til að bjarga þjónustuföllum séu „að gera þjónustu skothelda“, „að hlusta“, „að bregðast hratt við“, „að veita fullnægjandi útskýringu“, „að stýra væntingum“, „að samskapa lausn“ og „að sýna sanngirni“ með því að taka ábyrgð, biðjast afsökunar og veita fjárhagslegar bætur. Þegar kemur að mati á því hvort þjónustubjörgun hafi skilað árangri þá virðist niðurstaðan jafnan byggjast á huglægu mati starfsfólks eða vera ekki metin á neinn hátt. Eftirfylgni virðist vera í lágmarki og kerfisbundin gagnasöfnun um árangur virðist ekki tíðkast.Viðskiptafræðideild hefur samþykkt lokaðan aðgang að þessari ritgerð í 3 ár

    Útinám í Hafnarfirði

    No full text
    Ritgerðin skiptist í 2 hluta þar sem fyrri hluti er fræðileg greinagerð um útinám og seinni hluti verkefnasafn byggð á fræðihluta. Ritgerðin fjallar um hvernig er að nýta útinám sem kennsluaðferð og ávinning þess í vinnu með ungmennum. Verkefnin sem fylgja verkefnasafni eru sett upp í nærumhverfi Hafnarfjarðar þar sem kennileiti bæjarins eru notuð

    Gender differences in perceptions of what constitutes infidelity in Iceland and the influence of previous infidelity experiences

    No full text
    A clear definition of infidelity has not been universally accepted, as perceptions of what constitutes infidelity vary and have evolved over time. Research has shown that these perceptions can be influenced by gender and previous experiences with infidelity. The aim of this study was to examine the perceptions of what defines infidelity in Iceland between genders, and the influence of previous infidelity experiences. Participants (N=154) answered an online questionnaire consisting of 34 infidelity-related behaviors, rated on a 4-point Likert scale. The results showed that three of the hypotheses were not significant: that women will assign higher ratings to infidelity-related behaviors compared to men; that previously unfaithful individuals will assign higher ratings compared to faithful individuals; and that women who have been victims of infidelity and who have been previously unfaithful will assign higher ratings than others. However, a significant gender difference was found, but only for the subscale sexual infidelity. The hypothesis suggesting that previous victims of infidelity will assign higher ratings compared to non-victims of infidelity, was significant. These findings indicate that past experiences with infidelity may shape how individuals perceive infidelity and define boundaries, which can be useful for improving communication and preventing conflict between couples. Keywords: Infidelity, sexual infidelity, emotional infidelity, gender difference, infidelity experienceSkýr skilgreining á framhjáhaldi hefur ekki verið samþykkt á heimsvísu þar sem hugmyndir um hvað telst framhjáhald eru breytilegar. Rannsóknir hafa sýnt að þessar hugmyndir geta mótast af kyni og fyrri reynslu af framhjáhaldi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig fólk á íslandi skilgreinir hegðun sem tengist framhjáhaldi út frá kyni og áhrifum fyrri reynslu. Þátttakendur (N=154) svöruðu rafrænni könnun sem innihélt 34 lýsingar á hegðun tengdri framhjáhaldi, metnar á 4-punkta Likert kvarða. Niðurstöður sýndu að þrjár af tilgátunum voru ómarktækar: að konur munu gefa hegðun tengdri framhjáhaldi hærri einkunnir en karlar; að einstaklingar sem höfðu áður haldið framhjá munu gefa hærri einkunnir en þeir sem hafa ekki haldið framhjá; og að konur sem hafa verið fórnarlömb framhjáhalds og hafa haldið framhjá munu gefa hærri einkunnir en aðrir. Hins vegar fannst marktækur kynjamunur, en aðeins fyrir undirkvarðann kynferðislegt framhjáhald. Tilgátan að fórnarlömb framhjáhalds munu gefa hærri einkunnir en þeir sem höfðu ekki orðið fyrir slíku reyndist marktæk. Þessar niðurstöður benda til þess að fyrri reynsla af framhjáhaldi geti mótað hvernig einstaklingar skynja framhjáhald og skilgreina mörk sem getur verið gagnlegt til að bæta samskipti og koma í veg fyrir ágreining milli para. Lykilorð: framhjáhald, kynferðislegt framhjáhald, tilfinningalegt framhjáhald, kynjamunur, reynsla af framhjáhald

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇