Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Suspension Seat for Speedboats: Design, Simulation, Fabrication and Drop Test Evaluation

    No full text
    Crew and passengers on high-speed planing boats frequently encounter severe shocks and vibration at sea. Impacts of up to 10 g have been reported in the literature and 3-5 g impacts are common. This can cause reduced physical capabilities in the short term and permanent disability in the long term. Only an estimated six percent of seats on high-speed craft incorporate suspension. The reason why suspension seats are not more prevalent may be the costs associated with additional components and assembly. In this project, a simple and inexpensive suspension seat is developed. Optimal spring and damping constants are calculated with a one degree of freedom model. A workshop is set up to make and test seat prototypes. Thirty-four 1:10 and 1:5 scale models are 3D printed to explore all the parameters in the seat geometry. Finite Element Analysis is used to find stress concentrations in twenty-two CAD models. Six full-scale suspension systems are fabricated and tested in three ways: Instron press tests reveal the spring constant. A damper dynamometer provides the damping curve. Two drop drop towers are constructed to obtain the dynamic response of the suspension system, using high-speed computer vision and accelerometers. The test results are used to create a final design of the suspension seat.Tækniþróunarsjóður, Átak til atvinnusköpunar, Gulleggið, Hönnunarsjóður og Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands styrktu verkefnið

    Mikilvægi þess að kenna öllum táknmál: Verkefnabók til að kenna táknmál

    No full text
    Síðan kennsla heyrnarlausra hófst á Íslandi hefur hún þróast mikið í gegnum árin. Í dag eru fjórir skólar á Íslandi sem veita döff einstaklingum stuðning þar sem tekið er mið af þörfum hvers og eins nemanda. Döff fólk geta staðið frammi fyrir samskiptahindrunum við heyrandi einstaklinga sem getur haft áhrif á gæði og lengd samskipta. Rannsóknir hafa sýnt fram á að döff börn eru líklegri til að upplifa höfnun og skort á félagslegum tengslum miðað við heyrandi jafnaldra þeirra. Getur það aukið líkurnar á einmannaleika og dregið úr félagslegri þátttöku í lífi döff barna. Markmiðið með verkefninu er að búa til verkefnabók sem getur nýst öllum sem vilja læra táknmál. Verkefnabókin er miðuð sérstaklega að börnum í 5-7 bekk sem ekki kunna táknmál til að geta átt samskipti við táknmálsnotendur í þeirra daglega lífi til að stuðla að auknum félagslegum samskiptum meðal döff einstaklinga og heyrandi barna. Það er mikilvægt fyrir öll börn, heyrandi og döff, að örva málþroska sinn á sínum fyrstu árum til að stuðla að aukinni samskiptafærni í framtíðinni. Ef að heyrandi einstaklingar fá kennslu í táknmáli strax sem börn getur það stuðlað að því að þau nái tökum á íslenska táknmálinu sem getur aukið líkur þess að döff einstaklingar geti átt árangursrík félagsleg samskipti við fleiri einstaklinga út í samfélaginu. Ef að íslenskt táknmál verður að kennslufyrirkomulagi í almennum skólum getur það mögulega nýst döff einstaklingum vel í þeirra daglega lífi

    Tengsl seiglu við sálræna líðan einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein

    No full text
    Bakgrunnur: Að greinast með með krabbamein eykur líkurnar á sálrænum erfiðleikum sem tengjast þunglyndi og kvíða. Seigla hefur verið skilgreind sem verndandi þáttur hjá þessum einstaklingum og ætti því efling seiglu að vera mikilvægur þáttur í meðferð og stuðningi. Tilgangur rannsóknar: Kanna tengsl seiglu við sálræna líðan, þar á meðal þunglyndi, kvíða og streitu meðal einstaklinga sem greinst höfðu með krabbamein. Einnig var markmiðið að skoða áhrif bakgrunnsþátta á seiglu og sálræna líðan. Aðferð: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn með hentugleikaúrtaki. Spurningalistarnir DASS-21 sem mælir sálræna líðan og CD-RISC-25 sem mælir seiglu voru notaðir. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu sótt stuðning hjá stuðningssamtökum utan heilbrigðisstofnana. Tölfræðiforritið Jamovi var notað við gagnaúrvinnslu. Niðurstöður: Alls svöruðu 374 þátttakendur spurningalistunum. Neikvæð marktæk fylgni var á milli seiglu og sálrænnar líðanar (p < 0,001). Íhugun um endurkomu sjúkdóms sýndi neikvæða marktæka fylgni við seiglu (p < 0,001) og aldur (p < 0,001) og jákvæða marktæka fylgni við sálræna líðan (p < 0,001), þunglyndi (p < 0,001), kvíða (p < 0,001) og streitu (p < 0,001). Giftir höfðu marktækt meiri seiglu (p = 0,006) og minni einkenni þunglyndis (p = 0,011) og streitu (p = 0,009) en þeir sem voru það ekki. Hærra menntunarstig tengdist aukinni seiglu (p < 0,001) og betri sálrænni líðan (p = 0,036). Marktækur munur kom fram á milli elsta aldurshópsins og yngri aldurshópanna á sálrænni líðan (p < 0,001). Sömu niðurstöður komu fram á milli eldri og yngri aldurshópa og greiningar sjúkdóms (p = 0,003). Þáttagreining CD-RISC-25 sýndi að listinn kom vel út í íslenskri þýðingu með Cronbach's alpha (α) á bilinu 0,634 til 0,897. Ályktanir: Niðurstöður gefa vísbendingar um að seigla sé verndandi þáttur gegn sálrænum erfiðleikum hjá einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein. Bakgrunnsþættirnir hjúskaparstaða, menntun og aldur geta haft áhrif á seiglu og sálræna líðan þeirra. Lykilorð: seigla, sálræn líðan, þunglyndi, kvíði, streita, krabbamein, stuðningur, íhugun um endurkomu, megindlegar rannsóknir.Background: Being diagnosed with cancer increases the risk of psychological difficulties related to depression and anxiety. Resilience is considered a protective factor for these individuals, therefore enhancing resilience should be an important part of treatment and support. Purpose: To examine the relationship between resilience and psychological well-being, including depression, anxiety, and stress, among individuals diagnosed with cancer. The study also aimed to explore the impact of background factors on resilience and psychological well-being. Method: A quantitative, descriptive, cross-sectional study was conducted using a convenience sample. The DASS-21, measuring psychological well-being, and the CD-RISC-25, measuring resilience, were used. Participants had received support from support organizations outside the healthcare system. The statistical software Jamovi was used for data analysis. Results: A total of 374 participants responded to the questionnaires. A negative significant correlation was found between resilience and psychological well-being (p < 0.001). Consideration of cancer recurrence showed a negative significant correlation with resilience (p < 0.001) and age (p < 0.001) and a positive significant correlation with psychological well-being (p < 0.001), depression (p < 0.001), anxiety (p < 0.001), and stress (p < 0.001). Married individuals had significantly higher resilience (p = 0.006) and fewer symptoms of depression (p = 0.011) and stress (p = 0.009) than unmarried individuals. Higher education was associated with greater resilience (p < 0.001) and better psychological well-being (p = 0.036). A significant difference in psychological well-being was observed between the oldest and younger age groups (p < 0.001). Same results were found for age groups and disease diagnosis (p = 0.003). Factor analysis of the CD-RISC-25 showed the scale performed well in the Icelandic translation, showing Cronbach's alpha (α) from 0.634 – 0.897. Conclusion: The results suggest that resilience is a protective factor against psychological difficulties in individuals diagnosed with cancer. Background factors such as marital status, education, and age may influence their resilience and psychological well-being. Keywords: Resilience, psychological well-being, depression, anxiety, stress, cancer, support, consideration of cancer recurrence, quantitative research

    Fear of Authority

    No full text
    In this final paper I‘ll explore in what forms fear is present in the process of making contemporaty dance: starting from a dance studio, planning about the theme for the performance, planning the aesthetics and figuring out what fear it is I‘m feeling while making a performance. The final paper studies the possible use of fear, how fear is present in art I consume and what are the atmospheres it creates around me to work from. The paper will follow the process of making my graduation piece which is circulating around themes like: fear towards authority and fear of violence in democracies. The theme of this essay will be examined in relation to several excisting dance/performance works I find relating with idea of fear/opression/authority. I will explore theories from Michel Foucault‘s Discipline and Punish: The birth of the prison, Achille Mbembe‘s Necropolitics and Giorgio Agamben‘s Homo Sacer: Sovereign Power and Bare Life. The essay will examine the theories from the authors in relation to my topics and thoughts of creating the graduation piece zero tolerance

    Mál í mynd

    No full text
    Eitt af mörgu í íslenskunni sem hefur vakið áhuga minn í gegnum árin eru málshættir og orðatiltæki. Það er óhætt að segja að þessi málfyrirbæri séu mikilvægur partur af íslenskri menningu og sögu. Mér hefur alltaf fundist málshættir hafa sterka myndræna merkingu. Þess vegna fannst mér það mjög svo spennandi viðfangsefni að túlka þá og myndskreyta á minn hátt. Málshættina í þessari bók valdi ég þar sem mér þótti þeir góðir og spennandi sem myndefni. Þannig verður mál að mynd. Myndirnar eru skornar og klipptar út úr lituðum pappír sem ég síðan sameinaði í myndabók

    Porting Stubbur tickets app to React Native codebase

    No full text
    The primary objective of this project is to modernize Stubbur’s mobile application by consolidating platform-specific codebases into a unified React Native solution. This strategic shift aims to reduce technical overhead, improve long-term maintainability, and support faster feature delivery. By aligning the app with current cross-platform development practices, the project also seeks to improve development efficiency and create a more consistent experience for end users

    Ábyrgð á óheimiluðum greiðslum samkvæmt lögum nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu og samsvarandi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2015/2366 : hvenær flyst ábyrgðin frá greiðsluþjónustuveitanda yfir á notanda greiðsluþjónustu?

    No full text
    Eitt helsta álitaefnið sem fylgt hefur hraðri tækniframþróun í fjármálaþjónustu varðar óheimilaðar greiðslur af bankareikningum notenda greiðsluþjónustu. Þá hvenær greiðsla telst óheimiluð, og ef svo er, hver beri ábyrgð á því fjárhagslega tjóni sem hlýst af slíkri greiðslu. Markmið þessarar ritgerðar er fyrst og fremst að varpa ljósi á efni þeirra laga sem um þessi mál gilda, þ.e. lög nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu, en einnig að komast að því hvort ábyrgðarreglur laganna séu nægilega vel ígrundaðar og útfærðar. Þegar óheimiluð greiðsla uppgötvast gera notendur gjarnan kröfu um leiðréttingu á henni, en kunna þá að vakna álitaefni um hvort notandi hafi mögulega sýnt af sér stórfellt gáleysi þannig að hann ber ábyrgð á tjóni sínu sjálfur. Jafnframt, ef um misnotkun greiðslumiðils er að ræða, hvort hann hafi vanrækt skyldu sína um að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að tryggja öryggi persónubundinna öryggisskilríkja greiðslumiðilsins. Í ritgerðinni eru greindar þær lagareglur sem gilda um framkvæmd greiðslu og þær skyldur sem bæði greiðsluþjónustuveitendum og notendum ber að fara eftir í tengslum við framkvæmdina. Greindir eru úrskurðir úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki þar sem deilt er um ábyrgð á óheimiluðum greiðslum og af þeim dregnar ályktanir um hver hinn gildandi réttur sé, þ.e. hvað þurfi til þannig að ábyrgð á slíkri greiðslu flytjist frá greiðsluþjónustuveitanda yfir á notanda. Samkvæmt úrskurðarframkvæmdinni virðist mjög erfitt fyrir greiðsluþjónustuveitendur að sanna stórfellt gáleysi notanda og vanrækslu á varúðarráðstöfunum þegar mál snýr að stolnu greiðslukorti. Hins vegar þegar mál snýr að svikum af hálfu þriðja aðila eru niðurstöður afgerandi, þar sem notandi í reynd samþykkir greiðsluna og ber því ábyrgðina sjálfur, þó að hann hefði vissulega ekki samþykkt hana ef hann hefði vitað að um svik væri að ræða.One of the main issues arising from the rapid technological development within the field of financial services concerns unauthorised payments from the bank accounts of payment services users. Specifically, when a payment should be considered unauthorised, and if so, who should be held liable for financial loss resulting from such a payment. The aim of this thesis is first and foremost to shed light on the legal framework that applies to these situations—i.e. Act no. 114/2021 on Payment Services, as well as finding out if the rules within said act, regarding liability, are sufficient enough and clearly formulated. When an unauthorised payment is discoverd, users often demand reimbursement, but questions may arise as to whether the user acted with gross negligence, and should rightly bear the financial loss themselves. Additionally, in cases regarding the misuse of payment instruments, it must be considered whether the user has neglected to fulfil their obligation to take all reasonable steps to keep the payment instruments‘ personalised security credentials safe. The thesis examines the legal rules governing the execution of payments and the obligations of payments service providers and users in relation to such execution. It analyses decisions of the Complaints Committee on Transactions with Financial Firms in which the liability for unauthorised payments was disputed, drawing conclusions on how the law is applied. According to these decisions, it appears very difficult for payment service providers to prove that the user acted with gross negligence or failed to take all reasonable steps, in cases regarding the misuse of a payment instrument. However, in cases involving fraud by a third party, the decisions seem to be more clear-cut and decisive, as the user in practice authorises payment and thus bears the financial loss, even though they would not have done so had they known the transaction was fraudulent

    Lygalaupar, svikakvendi og djöflar í mannsmynd: Orðræðugreining á umfjöllun fjölmiðla á meiðyrðamálum í kjölfar #MeToo

    No full text
    Þrátt fyrir orðspor Íslands sem jafnréttisparadís og stöðu Íslands efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir kynjajafnrétti viðgengst enn ofbeldi gegn konum hérlendis. Gerendum er sjaldan refsað fyrir gjörðir sínar þrátt fyrir lög gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi, sbr. 194. gr almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Rannsóknir hafa sýnt að þegar þolendur rjúfa þögnina er þeim yfirleitt mætt með tortryggni og dregið úr trúverðugleika þeirra (Finnborg S. Steinþórsdóttir og Gyða Pétursdóttir, 2019; Þorgerður Einarsdóttir og Þórhildur Sæmundsdóttir, 2018). #MeToo-hreyfingin breytti því en á síðastliðnum árum hefur orðið vart við bakslagi gegn baráttunni og því er markmið ritgerðarinnar að athuga hvernig átök um kynjakerfið birtast í fréttum um meiðyrðamál á tímabilinu 2020-2023. Notast var við orðræðugreiningu en niðurstöður hennar benda til þess að átökin birtast helst í að draga úr trúverðugleika þolenda með því að saka þá um geðveiki og að svíkja málstað kynjakerfisins. Einnig var dregið úr trúverðugleika stuðningsmanna þolenda en þá er um að ræða tvöfalda þöggun. Niðurstöður voru greindar í samhengi við fræðilega nálgun Connell, Foucault og Bartky svo eitthvað sé nefnt en einnig út frá tilgreiningu Eyju Margrétar Brynjarsdóttur á bakslagsviðbrögðum gegn #MeToo

    Þjónustugæði : áhrif þeirra á viðskiptatryggð í apótekum

    No full text
    Góð þjónusta er eitt af lykilatriðum þjónustufyrirtækja og í raun er þjónusta hluti af starfsemi allra fyrirtækja í dag. Í harðri samkeppni er því nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að veita sem besta þjónustu hverju sinni og reyna eftir fremsta megni að uppfylla væntingar viðskiptavina til fulls. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort þjónustugæði í apótekum hafi áhrif á tryggð viðskiptavina þeirra ásamt því að koma auga á það hvaða þættir skipta viðskiptavini mestu máli við val á apóteki. Rannsóknin byggði á megindlegri aðferðafræði og var spurningakönnun lögð fyrir þar sem kannaðir voru helstu þættir fyrir vali viðskiptavina á apótekum og hvort að þjónusta vægi hátt á meðal viðskiptavina. Annar hluti könnunarinnar var byggður á spurningum um þjónustugæði samkvæmt SERVQUAL líkaninu og var þá hægt að kanna hver skynjun viðskiptavina á mismunandi þáttum þjónustunnar væri. Tryggð viðskiptavina var jafnframt metin, bæði með sjálfsmati þátttakenda á tryggð sinni við apótekið sitt og með notkun NPS meðmælavísitölunnar sem gaf jákvæðar vísbendingar um tryggð. Ályktanir rannsóknarinnar benda til þess að hentug staðsetning apóteka skipti mestu máli við val viðskiptavina, en þjónusta kemur þar næst. Niðurstöðurnar sýna enn fremur að þjónustugæði geta haft áhrif á tryggð viðskiptavina, þar sem skortur á góðri þjónustu og lélegt viðmót starfsfólks voru nefnd meðal helstu ástæðna þess að viðskiptavinir myndu íhuga að skipta um apótek

    Málörvun yngstu barna í leikskóla. Aðferðir og ávinningur.

    No full text
    Í þessari ritgerð er fjallað um mikilvægi málörvunar fyrir yngstu börnin í leikskóla og þær aðferðir sem leikskólakennarar geta beitt til að styðja við málþroska þeirra. Rannsóknarspurningarnar sem lagðar voru til grundvalla snúa annars vegar að því hvaða aðferðir eru notaðar til að auka orðaforða og málþroska barna og hins vegar hver ávinningur markvissrar málörvunar er. Farið er yfir helstu þætti málþroska og orðaforða og útskýrt hvernig má vinna markvisst að málörvun í gegnum leik, daglegt starf, tónlist og sérstakar aðferðir á borði við Lubbi finnur málbein, Tákn með tali, Orðaspjall og Markviss málörvun. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að fjölbreyttar og markvissar aðferðir stuðla að bættri málvitund, auknum orðaforða og styður við félagslegan og vitsmunalegan þroska barna. Lagt er til að leikskólar nýti sér þessar aðferðir sem hluta af daglegu starfi til að tryggja að öll börn fái jöfn tækifæri til að þróa með sér góða málfærni

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇