Buckinghamshire New University
Not a member yet
17928 research outputs found
Sort by
"More than anything, we want people to leave feeling at peace and proud of the path they've walked during their time here" Arrangement and preparation of retirement in the labor market
Í þessari ritgerð er sjónum beint að undirbúningi og fyrirkomulagi starfsloka vegna aldurs á íslenskum vinnumarkaði og sýn mannauðsstjóra og sérfræðinga á mannauðssviði á ferlinu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og byggir ritgerðin á viðtalsrannsókn. Viðtöl voru tekin við 11 mannauðsstjóra eða sérfræðinga á mannauðssviði sem starfa ýmist á almennum eða opinberum vinnumarkaði. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að starfslokaferlinu er háttað með misformlegum hætti og sama á við um undirbúning fyrir tímamótin. Hjá sumum er formleg starfslokastefna eða skrifað verklag og hjá öðrum er meira um óformlegar verkreglur og tekið er mið af ýmsum þáttum og starfsemi vinnustaðarins. Viðmælendum er umhugað um góðan undirbúning og stuðning en flestir bjóða starfsmönnum að sækja sér starfslokanámskeið eða benda starfsfólki á utanaðkomandi úrræði. Sveigjanlegir valkostir standa til boða og oft í formi minnkandi starfshlutfalls en eðli starfa, aðstæður fólks og starfseminnar geta sett því skorður. Áhersla er lögð á að mæta starfsfólki eftir bestu getu og tryggja góðan viðskilnað. Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika dýrmæta þekkingu eldri starfsmanna en benda einnig til þess að það þurfi ef til vill að leita leiða til að tryggja yfirfærslu hennar fyrir starfslok. Viðmælendur telja að samfélagsleg þróun, hækkandi starfsaldur og kynslóðamunur muni líklega koma til með að hafa áhrif á starfslokamynstur framtíðarinnar. Takmarkanir og niðurstöður rannsóknarinnar gefa tækifæri til frekari rannsókna á viðfangsefninu og bendir rannsakandi á megindlegar rannsóknaraðferðir og aðrar áherslur á samsetningu úrtaks
Modeling measurement error with Bayesian Gaussian-Gaussian models
Gæði mælinga er undirstaða áreiðanlegra ályktana og góðrar spágetu tölfræðilíkana. Mæliskekkjur eru óhjákvæmilegur fylgikvilli gagnasöfnunar, þar sem fullkomin mælitæki eru ekki til. Ef líkön taka ekki tillit til slíkra skekkja með viðeigandi hætti verða niðurstöður óáreiðanlegri. Markmið þessarar ritgerðar er að sýna hvernig hægt er að búa til mæliskekkju-hlutlíkan fyrir svarbreytur í Bayesískum Gaussískum-Gaussískum tölfræðilíkönum. Aðferðin byggir á að nota þekktar staðalskekkjur svarbreytu-mælinganna og er henni beitt á almenna veldislykla-líkanið sem spáir fyrir rennsli út frá vatnshæð. Útvíkkaða líkanið notar því staðalskekkju rennslismælinganna, ásamt rennslis- og vatnshæðarmælingum. Mælingar úr ánum Provo og Kaweah í Bandaríkjunum voru notaðar til að prófa útvíkkaða líkanið. Niðurstöðurnar sýna að útvíkkunin hafði áhrif á möt stika og með því að greina mæliskekkju í sundur frá öðrum breytileika tókst að draga úr óvissu í rennslisspám. Aðferðinni var einnig beitt til þess að útvíkka þrjú hlutlíkön almenna veldislykla-líkansins. Spágeta allra þessara átta líkana var síðan borin saman með hinu almennt gildandi upplýsinga viðmiði (e. widely applicable information criterion) og sýndu þær niðurstöður að útvíkkuðu líkönin komu almennt betur út en þau upprunalegu, þó að bætingarnar hafi verið mismiklar milli gagnasetta. Útvíkkuðu rennslislykla-líkönin hafa verið gerð aðgengileg á GitHub síðu bdrc R pakkans, þar sem kóðinn hefur verið endurskrifaður að mestu leyti í C++ með stóraukinni skilvirkni reikniritsins og margfölduðum keyrsluhraða.Accurate measurements are critical to statistical modeling, as data quality directly impacts the reliability of inferences and predictions. However, measurement errors are unavoidable in real-world data collection and can propagate through models, leading to flawed conclusions. This thesis demonstrates how the Bayesian Gaussian-Gaussian statistical framework can effectively model response variable measurement error when paired with measurement uncertainty estimates. To illustrate this, the method was applied to extend the generalized power-law rating curve model, enabling it to explicitly incorporate measurement uncertainty data into the analysis. The extended model was applied to two real-world datasets from the United States. The results showed that extending the model influenced parameter estimation and facilitated the separation of measurement uncertainty from other sources of variability, reducing the uncertainty in discharge predictions. In addition to the generalized power-law rating curve model, three of its nested variants were extended using the method. All eight models were evaluated through a model comparison based on the widely applicable information criterion, with results showing that the extended models generally performed better than their standard counterparts, though the magnitude of improvements varied between the datasets. The extended rating curve models have been incorporated into a developmental branch on the GitHub page of the bdrc R package, where the code has been largely rewritten in C++ to achieve significantly enhanced computational efficiency
Starfsumhverfi stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga í dreifbýli: Helstu áskoranir í starfi
Markmið og tilgangur þessa rannsóknarverkefnis er að skoða starfsumhverfi stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga í dreifbýli á Íslandi. Upplifun fjögurra stjórnenda var greind með hliðsjón af fræðilegri þekkingu og skoðað hvort merkja megi sambærilegar áskoranir í starfsumhverfi og þeim erlendu rannsóknum sem liggja fyrir auk þess að koma með tillögur til úrbóta á grundvelli þeirra niðurstaðna. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem gögnum er safnað með hálfstöðluðum viðtölum. Þátttakendur voru valdir með markvissu úrtaki þar sem um tiltekna þekkingu þeirra var að ræða á því viðfangsefni sem höfundur skoðaði og gátu þeir því gefið góða innsýn inn í viðfangsefni rannsóknarinnar.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að starfsumhverfi stjórnenda í velferðarþjónustu í dreifbýli fylgi umtalsverðar áskoranir og stjórnendur upplifa töluvert álag í starfi vegna margra ólíkra verkefna og hlutverka sem fylgja starfinu. Þeir telja sig faglega einangraða að mörgu leyti en leita þó eftir stuðningi samstarfsfélaga sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum eins og kostur er. Þrátt fyrir mikið álagsstarf eru stjórnendurnir ekki að nýta sér handleiðslu í starfi í eins miklum mæli og þeir vildu. Stjórnendur upplifa miklar áskoranir í tengslum við aðgengi að fagfólki en erfiðleikar við mönnun starfa í velferðarþjónustu í dreifbýli er töluverð áskorun þegar halda þarf úti þjónustu sem aldrei má falla niður.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru að mörgu leyti sambærilegar niðurstöðum erlendra rannsókna um sama efni sem benda til þess að starfið sé afar fjölbreytt og flókið. Sökum smæðar samfélagsins sem stjórnendur sjálfir búa og starfa í, getur nálægð við notendur velferðarþjónustunnar reynst krefjandi. Málaflokkurinn sem þeir eru í forsvari fyrir er umfangsmikill og miklu máli skiptir að efla þekkingu jafnt innan háskólasamfélagsins sem og hjá sveitarfélögunum sjálfum á þeim áskorunum sem umræddir stjórnendur búa við. Mikilvægt er að efla og styrkja námsframboð fagstétta í velferðarþjónustu þar sem meiri áhersla er lögð á sérþekkingu sem þarf til að gegna slíku starfi í dreifbýli. Sveitarfélög þurfa jafnframt að tryggja góða aðlögun og móttöku nýrra stjórnenda þegar þeir hefja störf og í starfi. Sökum smæðar úrtaksins er ekki hægt að alhæfa um niðurstöðurnar en þær gefa þó góðar vísbendingar sem vert er að skoða áfram svo hugað verði að starfsumhverfi í dreifbýli í frekari rannsóknum
Áhrif hreyfingar á andlega líðan mæðra í barneignarferlinu: Fræðileg samantekt
Bakgrunnur: Fæðingarþunglyndi er vaxandi lýðheilsuvandamál á heimsvísu. Rannsóknir benda til þess að regluleg og skipulögð hreyfing geti dregið úr þunglyndiseinkennum og minnkað kvíða og streitu í barneignarferlinu. Oft vantar þó yfirsýn og þekkingu um þessi áhrif innan mæðra- og ungbarnaverndar.
Tilgangur: Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er fyrst og fremst að kanna áhrif hreyfingar á andlega vellíðan mæðra í gegnum barneignarferlið. Einnig hvernig heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir konum á þessu tímabili getur stuðlað að því að hreyfing verði partur af einstaklingsmiðaðri meðferðaráætlun, bæði á fyrirbyggjandi hátt og fyrir þær konur sem upplifa andlega vanlíðan.
Aðferð: Rannsóknarspurningar voru settar fram út frá PICOT-viðmiðum. Það var stuðst við eigindlegar og megindlegar rannsóknir. Gagnagrunnar sem notaðir voru Pubmed, Scopus og Web of Science og voru greinarnar sem um ræðir ekki eldri en 10 ára gamlar. Rannsóknir sem stóðust inntökuskilyrði voru samtals 18 greinar. Þær voru settar upp í matrix töflur.
Niðurstöður: Rannsóknirnar sem skoðaðar voru sýndu fram á að hreyfing geti minnkað líkurnar á að þróa með sér fæðingarþunglyndi, aukið sjálfstraust, bætt svefn, minnkað streitu og bætt líðan. Æfingarnar sem skoðaðar voru m.a meðgöngujóga og áhrif þess á andlega líðan eftir fæðingu, gönguferðir, rafrænar æfingar og hópatímar. Það kom skýrt fram hversu mikilvægt er að þróa einstaklingsmiðaða áætlun og fræðslu.
Ályktanir: Líkamleg virkni er áhrifarík, örugg og ódýrt inngrip til þess að efla andlega heilsu kvenna í gegnum barneignarferlið. Heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir konum í barneignarferli gegnir lykilhlutverki í fræðslu og stuðningi við að hvetja mæður til hreyfingar í gegnum barneignarferlið.
Lykilorð: Barneignarferli, fæðingarþunglyndi, hreyfing, lífsgæði, tengslamyndun, meðganga, heilbrigðisstarfsfólkBackground: Postpartum depression is a growing public health concern worldwide. Research indicates that regular and structured physical activity can reduce depressive symptoms and alleviate anxiety and stress during the perinatal period. However, there is often a lack of overview and understanding regarding the effects of such activity on maternal and infant mental well-being.
Objective: The main objective of this literature review is to examine the effects of physical activity on the mental well-being of mothers during the perinatal period. It also explores how healthcare professionals, who support women during this period, can encourage physical activity as part of a personalized and preventative approach, especially for women experiencing mental disorders.
Method: The research questions were formulated based on a PICOT framework. Both qualitative and quantitative studies were included. The databases used were PubMed, Scopus and Web of Science. The articles reviewed were no older than 10 years. A total of 18 studies met the inclusion criteria. These studies were compiled in a matrix tables.
Results: The reviewed studies showed that physical activity may reduce the likelihood of developing postpartum depression, increase self-esteem, improve sleep, reduce stress, and enhance mood. The types of activities reviewed included prenatal yoga, postpartum exercise, walking groups, online exercise programs, and group classes. The importance of offering individualized plans and education was clearly highlighted.
Conclusion: Physical activity is an effective, safe, and low-cost intervention to promote the mental health of women during the perinatal period. Healthcare professionals working with women in this phase play a key role in educating and supporting mothers to be physically active throughout the perinatal period.
Keywords: Perinatal period, postpartum depression, exercise, quality of life, bonding, pregnancy, healthcare-workers
Performing Endometriosis as placental dramaturgy
Performing Endometriosis is an autopathographic piece, written and performed by VR and directed by MM (coauthors of the present article). Divided into very short scenes (called Glimpses), Performing Endometriosis is a solo work about VR’s lived experience of stage 4 endometriosis, where audiences are invited to encounter some key moments in her chronic illness journey. Most often experienced by women, endometriosis occurs when tissue similar to the lining of the uterus appears elsewhere in the body, becoming entrapped and finding no bodily exit. One of the uterus’ healthy functions (if pregnancy occurs) is developing placenta, a disc of tissue that, among other things, provides nourishment to new life and is spontaneously delivered once it has performed its function. Departing from the ambivalently proliferative character of uteri and looking at feminist theory, feminist pedagogy in theatre training and the medical and health humanities, this article discusses the methodology used during the creative process of Performing Endometriosis, that is, placental dramaturgy. Originally developed towards performance-making, placental dramaturgy is a creative process characterised by a co-nurturing yet independent sense of collaboration. This article unpacks ‘placental dramaturgy’ with the aim of its replication in other feminist creative processes towards the making and delivering of performance
Decision-Making Frameworks for Integrating Motion Control in Business Operations
This chapter includes some strategic plans of how to incorporate motions control technologies in the business to promote efficiency, agility, and to make data-driven decisions. It cogitates about the real-time motion tracking and the focus on optimization in the logistics sphere, production and asset management through automation and smart analytics. The chapter explains how AI, IoT, control algorithms help harmonize the processes of motion with the goals of organizations. They lay emphasis on decision theory, performance measures and on the flexibility of motion systems in dynamic environments. The chapter has shed light on the ability of motion control to become the engine of innovation and competition in the operation of the contemporary enterprise by offering scalable and practical integration models
“I thought I knew how to write in my own language …” unveiling vulnerability in NES university students’ English academic writing experience
While English academic writing has garnered growing attention in higher education (HE), scholarship has largely centred on English-as-an-additional-language (EAL) students' experiences, leaving those of native English-speaking (NES) students under-explored. To address this, this study explores NES university students' academic writing experience through a vulnerability lens, challenging the assumption that language fluency alone ensures academic success. Drawing on interviews with NES students, teaching staff, and writing tutors in three UK universities, the findings reveal that students’ initial confidence in their linguistic abilities often collides with the complexities of academic conventions. Moreover, students recounted emotional stress, self-doubt, and limited institutional support, highlighting how NES learners can “slip through the cracks” when services are primarily framed for those EAL. Nevertheless, once students recognised and addressed these shortcomings, they could leverage various self-regulated strategies to develop stronger writing practices, during which vulnerability emerged as a potential catalyst for development. By foregrounding the challenges and adaptive responses of NES students, the study underscores the importance of reframing academic writing support to be inclusive of all learners, advocating for discipline-specific scaffolding, and a “vulnerability-aware” pedagogy that fosters both equity and growth in HE
Evaluating Advanced Clinical Practitioners’ Engagement With the Four Pillars of Advanced Practice in the UK: A Scoping Review
Aims/Background Despite national frameworks outlining the four pillars of advanced practice (clinical practice, leadership and management, education, and research), engagement of Advanced Clinical Practitioners (ACPs) in the UK remains inconsistent, and significant challenges persist. This scoping review aimed to explore ACPs’ engagement with each pillar and to identify both successful and challenging factors. Methods A scoping review was conducted following Arksey and O’Malley’s framework in 2005 and Preferred Reporting Items for Systematic Reviews and Meta-Analyses extension for Scoping Reviews (PRISMA-ScR) guidelines. A systematic search was undertaken across five databases (CINAHL, MEDLINE, Scopus, PsycInfo, and Cochrane Library) and grey literature sources. The search covered studies published from 2017 to 2025, in line with the introduction of the Multi-professional Framework. A three-stage screening process was used to identify eligible studies, and data were extracted using a standardised form. Thematic analysis was employed to synthesise the findings. Results Thirty-three studies met the inclusion criteria. The review identified strong ACP engagement in clinical practice, including contributions to direct patient care, improved patient satisfaction, and reduced waiting times. However, engagement with the leadership, education, and research pillars was inconsistent and often limited by excessive workload, lack of protected time, and ambiguity in role definitions. Structural variation across National Health Service (NHS) trusts further contributed to disparities in advanced clinical practice role development and utilisation. Conclusion Advanced clinical practice roles are firmly embedded in clinical care but remain underutilised in leadership, research, and education. Addressing these disparities requires clearer career pathways, organisational investment, and structured policy support to enable ACPs to contribute fully across all four pillars of practice