Buckinghamshire New University

Buckinghamshire New University
Not a member yet
    17928 research outputs found

    Hindranir í samskiptum á vinnustað: Algeng samskiptavandamál og leiðir til úrbóta

    No full text
    Ritgerðin fjallar um samskipti á vinnustöðum og mikilvægi þeirra fyrir heilbrigt vinnuumhverfi og árangur í starfi. Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á algeng samskiptavandamál sem geta komið upp á vinnustöðum, skoða afleiðingar þeirra og leiðir til úrbóta. Fjallað verður um hlutverk samskipta í daglegu starfi, ásamt þeim hindrunum sem geta myndast og valdið samskiptavanda sem geta haft áhrif á bæði einstaklinga og vinnuumhverfið í heild. Byggt er á fræðilegum heimildum og kenningum Abraham Maslow og Albert Bandura, þar sem tengsl samskipta, starfsánægju og sjálfsmyndar eru greind. Helstu niðurstöður sýna að samskiptahindranir á borð við misskilning, óljós skilaboð, skort á samskiptafærni og ófullnægjandi starfshættir geta haft víðtæk áhrif á starfsanda og vellíðan starfsmanna. Neikvætt samskiptamynstur getur leitt til streitu, kulnunar, vantrausts og þróað neikvæða vinnustaðarmenningu. Jákvæð og opin samskipti, öflug leiðtogahæfni og meðvituð stefna um skýrt upplýsingafæði reynist vera lykilþáttur í að stuðla að bættri líðan, aukinni starfsánægju og meiri árangri. Ritgerðin undirstrikar mikilvægi þess að stjórnendur axli ábyrgð á mótun jákvæðrar samskiptamenningar þar sem traust, gagnsæi og virðing eru höfð að leiðarljósi. Fræðsla, samskiptasáttmálar og önnur stefnumótun ásamt aðkomu félagsráðgjafa geta skipt sköpum við að greina og bregðast við samskiptavanda með markvissum hætti. Nútímavinnumarkaður einkennist af hraða og breytingum og eru skilvirk samskipti lykilþáttur í vellíðan, framleiðni og árangri vinnustaða. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að heilbrigt og árangursríkt starfsumhverfi byggist á sameiginlegri ábyrgð allra sem starfa innan vinnustaðarins. Lykilorð: samskipti, vinnustaðarmenning, áhættuþættir, afleiðingar, lausnir

    SagaSnuggles : an empowering app for families, a showcase for certified experts business plan for a start-up

    No full text
    This document presents the business planning process preceding the launch of a new service, which aims to help parents create a balanced lifestyle for their babies and themselves, by equally sharing childcare and introducing early professional childcare which both benefits the child and guides parents. The aim is to easily give access to the service before the child has access to formal kindergartens. The business evaluation is divided into three stages: market report, technical plan, and financial plan. The purpose of the study is to investigate what strategy should be undertaken to successfully launch this product and also to reveal the potential sales value and company value. The study describes the current market situation, reviews the product features, and proposes strategies for the product's launch. The proposed technical development plan shows that to bring the proposed solution to life, a team of 2 specialists and 4 software developers will need to work for one year on the project. To conclude the evaluation, a financial budgeting plan has been used to assess the project’s feasibility. The economic analysis concluded that the proposed business can be considered to be profitable for both the entrepreneur and the investors

    Optimizing a PV-Battery Microgrid for Retreat Houses in Iceland: A Techno-Economic Analysis

    No full text
    This thesis presents a comprehensive techno-economic analysis of a hybrid photovoltaic (PV) and battery storage microgrid designed for twelve retreat houses in Reykholt, Iceland. Utilizing four years of actual consumption data, the study addresses the unique energy demand patterns of properties characterized by seasonal occupancy and low cooling requirements. Several system configurations—including grid-only, grid-tied PV with and without storage were modeled and simulated using HOMER Pro software. Results indicate that a grid-tied PV system without battery storage is the most economically optimal solution, offering the lowest Levelized Cost of Energy (LCOE) and a viable investment payback period. Although the PV-battery microgrid configuration requires a higher initial capital investment, it demonstrates significant potential for enhancing energy self-sufficiency and resilience. This research underscores the critical importance of accurate load profile analysis and optimal system sizing for projects in high-latitude regions. The findings provide valuable insights for rural electrification initiatives in cold climates, highlighting the trade-offs between financial feasibility and energy independence.Þessi rannsókn greinir tæknilega og hagræna hagkvæmni á staðbundnu raforkuneti (e. microgrid), sem nýtir sólarsellur og rafhlöðugeymslu, fyrir tólf orlofshús í Reykholti. Notast var við raun notkunargögn yfir fjögurra ára tímabil til að greina sértækt orkunotkunarmynstur húsanna, sem einkennist af breytilegri og árstíðarbundinni notkun yfir árið og lítilli kæliþörf. Mismunandi kerfislausnir voru greindar með hermun í HOMER Pro hugbúnaðinum: eingöngu nettenging, nettengt sólarsellukerfi með og án rafhlöðu. Niðurstöður sýna að nettengt sólarsellukerfi án rafhlöðu er hagkvæmasta lausnin, með lægstan jafnaðan orkukostnað (LCOE) og ásættanlegan endurgreiðslutíma. Þótt upphafsfjárfesting sé hærri sýnir lausnin með örneti og rafhlöðu fram á verulega aukningu í orkusjálfstæði og rekstraröryggi. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að greina nákvæmlega álagsferla og stærðarhanna kerfi rétt fyrir verkefni á norðlægum slóðum. Niðurstöðurnar veita dýrmæta innsýn fyrir rafvæðingu í dreifbýli á köldum svæðum og varpa ljósi á valkostina milli fjárhagslegrar hagkvæmni og aukins orkusjálfstæðis

    Áhrif sérhæfðra inngripa á tilfinningavanda barna með ADHD: Samanburðarrannsókn á Snillingunum og Krakkaráðgjöfinni

    No full text
    Athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD) er algengasta taugaþroskaröskunin meðal barna og hefur víðtæk áhrif á líðan og virkni þeirra í daglegu lífi. Börn með ADHD eru í aukinni hættu á að þróa með sér fylgiraskanir á borð við tilfinningavanda, sem getur aukið skerðingu á lífsgæðum þeirra töluvert. Þrátt fyrir þessa áhættu hafa fáar rannsóknir metið áhrif sérhæfðra inngripa á tilfinningavanda barna með ADHD. Markmið með þessari rannsókn var að meta áhrif tveggja ólíkra inngripa á kvíða- og depurðareinkenni barna með ADHD. Þátttakendur voru 27 börn á aldrinum níu til tólf ára með staðfesta frumgreiningu á ADHD, sem var slembiraðað í tvo inngripshópa og einn biðlistahóp. Tvenns konar samanburðir voru gerðir. Annars vegar var hópinngripið Snillingarnir borið saman við biðlista og hins vegar við einstaklingsviðtöl í Krakkaráðgjöfinni. Breytingar á einkennum tilfinningavanda voru metnar með svörum barna, foreldra og kennara á spurningalistum fyrir og eftir inngrip. Niðurstöður sýndu ekki marktækan mun á breytingum milli hópa. Hins vegar greindu foreldrar barna í Snillingahóp frá marktækri minnkun einkenna aðskilnaðarkvíða og almennrar kvíðaröskunar. Kennarar greindu einnig frá slíkri minnkun á einkennum tilfinningavanda í sama hópi. Þá mátu foreldrar barna í Krakkaráðgjöf börnin með marktækt minni einkenni aðskilnaðarkvíða eftir inngrip. Niðurstöður undirstrika mikilvægi frekari rannsókna með stærri og fjölbreyttari úrtökum til að meta áhrif sérhæfðra inngripa á tilfinningavanda barna með ADHD, með það að markmiði að bæta líðan þeirra og að draga úr þeirri hömlun sem þau upplifa í daglegu lífi.Attention-Deficit Hyperactivity Disorder (ADHD) is the most common neurodevelopmental disorder among children and has extensive implications for their well-being and daily functioning. Children with ADHD are at increased risk of developing comorbid conditions, such as internalizing disorders, which may further reduce their quality of life. However, few studies have evaluated the effects of specialized interventions on internalizing symptoms in this population. This study aimed to assess the impact of two different interventions on internalizing symptoms in children with ADHD. Participants were 27 children aged nine to twelve years with a confirmed primary diagnosis of ADHD, who were randomly assigned to one of three groups. One was the group-based program OutSMARTers, which was compared to a waitlist control group and compared to individual intervention sessions. Changes in internalizing symptoms were assessed before and after interventions through self-reports by the children, parent ratings and teacher ratings. Results indicated no statistically significant differences in changes in internalizing symptoms between groups. However, parents of children in the OutSMARTers group reported significant reductions in symptoms of separation- and generalized anxiety. Teachers also reported reduced internalizing symptoms in this group. Parents in the individual intervention sessions reported significant reductions in symptoms of separation anxiety. These findings highlight the need for further research with larger and more diverse samples to evaluate the effects of specialized interventions on internalizing problems in children with ADHD, with the goal of improving their well-being and reducing the impairments they experience in daily life

    Tracing curiosity : an inquiry into lines and their significance

    No full text
    In this thesis, I reflect on my artistic practice through an in-depth analysis of my recent exhibitions Delight in Disorder (2024) and Scripted Spaces (2025). By examining my motivations, artworks, and influences, I explore how my practice has evolved. While my earlier approach was rooted in observation, it has shifted toward the deconstruction of relationships between images, physical spaces, and their inhabitants. I continue to focus on revealing invisible paths and making discarded, liminal spaces visible, but my work has expanded to incorporate mechanical elements, as well as time and chance, in order to disrupt the expected function of image consumption. By exposing the physical processes of image rendering, I invite the viewer to experience the image as an evolving and unstable construct rather than a fixed representation. The criticality of the image — and the tension between creating and observing — has become increasingly central to my work

    Screening of Salmon Gill Pox Virus in Icelandic salmonids

    No full text
    Since 2018, screening for Salmon Gill Poxvirus (SGPV) has been carried out in Icelandic farmed Atlantic salmon (Salmo salar) at Keldur. Salmon Gill Poxvirus (SGPV) is a DNA virus belonging to the Poxviridae family and causes a serious disease in the gills of Atlantic salmon. The virus infects epithelial cells in the gills, causing cell death in the epithelium and leading to respiratory distress, which can then develop into SGPV disease with high mortality rates in salmon. According to current regulations, the disease is not notifiable. The virus can spread quickly when fish are under stressful conditions. There are currently no vaccines or antiviral treatments available for SGPV. It has not yet been investigated whether SGPV is found in other salmonid species in Iceland. The aim of the project was to screen wild salmonids caught in autumn 2024 using qPCR for SGPV and to sequence samples that tested positive. Furthermore, to sequence SGPV positive samples from farmed salmon from the latter half of 2024. The total number of samples in the project was 1,016, and 328 samples tested positive, from both farmed and wild salmon. The MCP gene of the SGPV virus, along with V15, V16, and V27 genes, which contain variable regions, were sequenced. Results from this study were incorporated into a phylogenetic tree with findings from previous research on SGPV in Iceland (2018–2024) and compared with published SGPV sequences from Norway. The tree showed that the Icelandic SGPV variants were divided into two groups. One group was more closely related to Norwegian SGPV variants than the other. This study provided important information about the spread and diversity of SGPV in Iceland and emphasized the importance of continued research on SGPV variants in this country.Frá árinu 2018 hefur verið skimað fyrir Salmon Gill Poxvirus (SGPV) í íslenskum eldislaxi á Keldum. Salmon Gill Poxvirus (SGPV) er DNA-veira sem tilheyrir Poxviridae-veirufjölskyldunni og veldur alvarlegum sjúkdómi í tálknum Atlantshafslax (Salmo salar). Veiran sýkir þekjufrumur í tálknum, sem veldur frumudauða í þekjunni og leiðir til öndunarerfðileika, sem síðan getur orðið að SGPV sjúkdómi með háa dánartíðni í laxi. Samkvæmt gildandi reglugerðum er sjúkdómurinn ekki tilkynningarskyldur. Veiran getur breiðst hratt út við streituvaldandi aðstæður hjá fiskum. Enn sem komið er, eru engin bóluefni eða veirulyf til fyrir SGPV. Það hefur ekki verið rannsakað hvort SGPV finnist í öðrum laxfiskum en laxi á Íslandi. Markmið verkefnisins var að skima villta laxfiska sem veiddir voru haustið 2024 með qPCR fyrir SGPV og raðgreina þau sýni sem greindust SGPV jákvæð. Enn fremur að raðgreina SGPV jákvæð sýni úr eldislaxi frá síðari hluta árs 2024. Heildarfjöldi sýna í verkefninu, var 1016, en 328 sýni reyndust jákvæð úr bæði eldis- og villtum löxum. SGPV fannst hvorki í bleikju né urriða. MCP gen SGPV veirunnar ásamt V15, V16 og V27 genunum, sem eru með breytilegum svæðum, voru raðgreind. Niðurstöður úr þessari rannsókn voru innlimaðar í tengslatré með niðurstöðum úr fyrri rannsókn á SGPV veirunni á Íslandi (2018-2024) og tengdar við birtar raðir SGPV frá Noregi. Tengslatré sýndi að íslensku SGPV veiruafbrigðin skiptust í tvo hópa. Annar hópurinn var meira skyldur norskum SGPV veiruafbrigðum en hinn. Rannsóknin gaf mikilvægar upplýsingar um fjölbreytileika SGPV á Íslandi og undirstrikaði mikilvægi áframhaldandi rannsókna á SGPV veiruafbrigðum hérlendis

    Þróun þrívíðs samræktunarfrumumódels til að meta sértæka virkjun ónæmisfrumna gegn brjóstakrabbameinsfrumum

    No full text
    Prótíntengd lyf (e. drug conjugate) eru prótínsameindir, með áföstum lyfjum, sem hafa sértæka sækni í ákveðinn vaka sem finnst á yfirborði krabbameinsfruma. Þekktustu tegundir prótíntengdra lyfja eru mótefni með áföstum lyfjum (e. antibody drug conjugates) og eru þau þegar komin í klíníska notkun við meðferð krabbameina. Eitt helsta vandamálið við notkun þessara lyfja í krabbameinsmeðferð er hversu illa þau komast inn í krabbameinsæxli, aðallega vegna stærðar og lögunar. Vegna þessa hafa önnur prótíntengd lyf verið hönnuð, þar sem prótínsameindirnar eru minni og hagkvæmari í framleiðslu. Markmið þessa verkefnis var að setja upp samræktunar (e. co-culture) frumumódel í þrívídd með annars vegar brjóstakrabbameinsfrumum og hins vegar NK frumum og nota frumumódelið til að meta getu sértækra prótínsameinda til að virkja NK frumurnar gegn krabbameinsfrumunum. Þrívíð (3D) frumumódel með brjóstakrabbameinsfrumum líkja að mörgu leyti eftir krabbameinsæxlum í líkamanum og samspili þeirra við umhverfi sitt. Í þessari rannsókn rannsökuðum við getu annars konar prótínsameindar með sækni í krabbameinsfrumur og frumur ónæmiskerfisins í að virkja ónæmiskerfið gegn krabbameininu. Við notuðum þrívíða frumumódelið okkar með brjóstakrabbameinsfrumum til að meta hversu djúpt prótínsameindin, sem hefur sækni í annars vegar NK frumur og hins vegar viðtaka á krabbameinsfrumunum, komst inn frumumódelið á ákveðnum tíma og við mismunandi styrk. Enn fremur rannsökuðum við hversu vel prótínsameindin gat virkjað ónæmisfrumur í að ráðast gegn krabbameinsfrumunum, miðað við sértækt mótefni. Þessi rannsókn kynnir áreiðanlegt þrívítt frumumódel til að meta ónæmismeðferðir sem byggjast á virkjun NK frumna og undirstrikar möguleika tvísértækra líftæknilyfja sem mögulegan meðferðarmöguleika við HER2 jákvæðum brjóstakrabbameinum.Vísindasjóður Krabbameinsfélagsin

    Lýsing í Hvalfjarðargöngum

    No full text
    Í þessu verkefni er markmiðið að gera tillögu að nýrri lýsingu fyrir Hvalfjarðargöngin. Notast verður við hönnunarforritið Relux Tunnel til að vinna verkefnið. Þá verður farið yfir hvaða atriði þarf að hafa í huga þegar kemur að hönnun nýrra lýsingu í jarðgöng og hvernig þau eru útfærð. Einnig verður farið yfir lýsingu í Hvalfjarðargöngunum, séð hvort þau standist nútíma staðla og hverjir kostirnir yrðu við að endurnýja lýsingunna

    Stafainnlagnir í hönnun og smiði

    No full text
    Markmið verkefnisins er að styðja við lestrarkennslu 1. og 2. bekkjar grunnskólans í hönnun og smíði. Rannsóknarspurning höfundar er: Hvernig má styðja við stafainnlagnir yngstu nemenda grunnskólans í gegnum verklega framkvæmd í hönnun og smíði. Höfundur vill þróa verkefni sem snýr að því að nemendur noti snertiskyn í lestrarnáminu, fá þau til þess að snerta stafina þegar þeir eru í stafainnlögn og æfa málhljóðin. Markmið höfundar er að nemendur fá að útbúa bókstafi úr stafainnlögn eða læri að vinna með hvaða bókstaf þau eiga sjálf. Að nemendur fái tækifæri til þess að snerta bókstafina á meðan þeir læra hljóð þeirra og vinna þannig að umskráningu og tengja list- og verkgreinar við þennan lærdóm. Tengja þennan lærdóm við hönnun og smíði, skapa stafina í smíði og æfa málhljóð þeirra í leiðinni

    Ábyrg fjármálastjórn sveitarfélaga

    No full text
    Ritgerð þessi fjallar um fjármálastjórn sveitarfélaga á Íslandi með áherslu á skuldastýringu, áhættumat og framkvæmd fjárhagsáætlana. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig ársreikningar og fjárhagsáætlanir endurspegla raunverulega stöðu sveitarfélaga og hvernig stjórnendur upplifa áskoranir í fjármálastjórn innan núverandi kerfisramma. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð. Annars vegar megindlegri greiningu á ársreikningum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2024 og hins vegar eigindlegum viðtölum við sveitarstjóra og fjármálastjóra í sveitarfélögum af mismunandi stærð. Rannsóknin byggir á kenningum um ábyrg fjármál og jafnvægi á milli sjálfstæðis og aðhalds í opinberri stjórnsýslu. Helstu niðurstöður sýna að íslensk sveitarfélög beita almennt ábyrgð og varfærni í fjármálastjórn. Rekstrarleg staða þeirra er stöðug og frávik milli áætlana og rauntalna er að jafnaði hófleg. Stærri sveitarfélög búa yfir tæknilegri lausnum og meira svigrúmi en smærri sveitarfélög leggja meiri áherslu á samráð og varfærni. Kerfisrammi fjármála sveitarfélaga tryggir jafnvægi og eftirlit en er að hluta til of einsleitur og tekur ekki nægilega mið af fjölbreytileika sveitarfélaga. Viðmælendur leggja áherslu á að þörf sé á að bæta samræmi í bókhaldsstöðlum og stigskiptum viðmiðum í eftirliti sem endurspegla mismunandi aðstæður og getu sveitarfélaga. Rannsóknin dregur upp mynd af því hvernig sveitarfélög vinna að því að stýra skuldum og áhættu og varpar ljósi á hvernig kerfislægar takmarkanir og óvissa geta haft áhrif á sjálfbærni og stefnumótun í opinberum fjármálum. Niðurstöðurnar benda til að framtíð fjármálastórnunar sveitarfélaga á Íslandi felist í aukinni stafrænni eftirfylgni, gagnsæi og samvinnu milli ríkis og sveitarstjórnarstigs

    673

    full texts

    17,928

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Buckinghamshire New University is based in United Kingdom
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇