Skemman (Island)
Not a member yet
    50783 research outputs found

    Námsraskanir : sögulegt yfirlit sáttmála, yfirlýsinga og samninga

    No full text
    Ritgerðin erlokuð til 05.05.2092Efni þessarar B.Ed. ritgerðar er að varpa ljósi á ákveðnar námsraskanir og sögu námsraskana hérlendis og erlendis. Í fyrstu verður sagt fá sögulegu upphafi námsraskana á Íslandi og þróun þeirra til dagsins í dag. Fjallað verður um ýmsar námsraskanir sem börn geta verið með, s.s. lesblindu, talnablindu, ADHD o.fl. Í þeim kafla er farið yfir birtingarmyndir námsraskananna, ástæður þeirra og úrræði sem eru í boði. Til þess að börn á Íslandi fái notið þeirra mannréttinda að geta gengið í skóla hafa verið gerðir ýmsir samningar, sáttmálar og lög. Fjallað verður um þá samninga og þau lög sem hafa verið gerð til þess að veita börnum á Íslandi þennan rétt, s.s. Barnasáttmálann, Menntun fyrir alla, Mannréttindaryfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna o.fl. Einnig verður farið lauslega yfir hvað Norðurlöndin hafa gert til þess að börn með sérþarfir geti öðlast menntun til jafns við önnur börn.The aim of this B.Ed. thesis is to shed light on certain learning disabilities and the history of learning disabilities both in Iceland and abroad. First, the historical origins of learning disabilities in Iceland and their development up to the present day will be discussed. Various learning disabilities that children can have will be addressed, such as dyslexia, dyscalculia, ADHD, and others. This chapter covers the manifestations of these learning disabilities, their causes, and the available interventions. To ensure that children in Iceland have the human right to attend school, various agreements, conventions, and laws have been established. The agreements and laws that have been made to grant this right to children in Iceland will be discussed, such as the Convention on the Rights of the Child, Education for All, the Universal Declaration of Human Rights, and others. There will also be a brief overview of what the Nordic countries have done to enable children with special needs to receive an education equal to that of other children

    Áhrif styrkja á líftíma sprotafyrirtækja

    No full text
    Markmið þessarar ritgerðar var að skoða hvort þeir styrkir sem eru í boði fyrir sprotafyrirtæki séu að lengja líftíma þeirra. Farið var yfir ýmis fræðileg skrif um efnið, og kortlagðar þær mismunandi fjármögnunarleiðir sem eru í boði fyrir sprotafyrirtæki á Íslandi. Jafnframt var gerð grein fyrir stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði hvað varðar nýsköpunarinnstreymi og útstreymi. Farið var yfir lífsferil sprotafyrirtækja og kafað nánar ofan í starfsemi sjóða og stofnanna m.a. með viðtölum við lykilaðila í stoðumhverfinu auk þess sem rætt var við frumkvöðla sem eiga sprotafyrirtæki og fjallað um þær áskoranir og tækifæri sem eru til nýsköpunar í dag. Niðurstöður viðtalanna leiddu það í ljós að stuðningsumhverfið á Íslandi fyrir sprota er talsvert vel tengt innbyrðis þannig að stuðningur úr einni átt getur opnað nýja styrkjafarvegi og/eða stuðning frá öðrum. Þeir sprotar sem hafa fengið styrk og/eða nýtt sér skattfrádráttinn sem er í boði á vegum Rannís segja t.a.m. að það hafi algjörlega skipt sköpum og í sumum tilfellum hreinlega haldið fyrirtækinu á lífi

    Production of biodegradable polymers using fatty acid rich anaerobic digestates

    No full text
    Um allan heim er stunduð ósjálfbær plastframleiðsla sem byggir á notkun jarðefnaeldsneyta. Framleiðslan er vaxandi áhyggjuefni þar sem hún leiðir m.a. til uppsöfnunar á plastúrgangi í vistkerfum jarðar, losun eiturefna og örplastagna sem ógna bæði umhverfinu og lífverum. Því er aukin þörf á þróun og framleiðslu niðurbrjótanlegra plastefna en pólýhýdroxýalkanóöt (PHAs) hafa komið fram sem efnilegur valkostur. Í rannsókn þessari var kannað hvort nýta mætti fitusýruríkan gerjaðan lífmassa úr stórþörungum (Ascophyllum nodosum og Laminaria digitata) og fiskimjöli í lífplastframleiðslu. Þrír bakteríustofnar, Bacillus stofn VH 01-01, Pseudomonas stofn JF 33-08 og Pseudomonas oleovorans (DSM 1045), voru ræktaðir í æti með viðbættum fitusýruríkum meltivökva og áhrif þess á m.a. bakteríuvöxt og PHA framleiðslu metin. Hæsti hámarksvaxtarhraði allra stofna mældist í ræktum án fitusýruviðbótar en hærri styrkur dró yfirleitt úr örveruvexti. Almennt studdi A. nodosum meltivökvi best við vöxt og PHA framleiðslu, einkum í P. oleovorans en bakterían framleiddi hvað mest við 25% (v/v). Meltivökvi úr fiskimjöli og L. digitata hamlaði verulega vexti P. oleovorans og JF33-08, á meðan VH 01-01 sýndi fram á meira þol. Þrátt fyrir minnkaðan örveruvöxt, hélt PHA-nýmyndun áfram við hærri meltivökvastyrk, sem gæti bent til streituviðbragða þar sem efnaskiptum kolefna hefur verið beint í átt að forðageymslu. Í kjölfar forrannsóknar voru 16.2 mg af plastlíku efni einangruð úr 2.1 g af þurrkuðum frumum P. oleovorans, sem fengust úr 2,5 L rækt með viðbættum gerjuðum lífmassa úr A. nodosum. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa m.a. ljósi á möguleika þess að nýta gerjaðan, endurnýjanlegan lífmassa við lífplastsframleiðslu. Slík nýting gæti mögulega stutt við hringrásarhagkerfi og aukið verðmætasköpun úr lífrænum úrgangi með sjálfbærum hætti. Rannsóknin veitir jafnframt góða undirstöðu fyrir áframhaldandi rannsóknir á lífplastframleiðslu í örverum.The continued dependence on fossil-based plastics raises significant ecological concerns, as plastic waste accumulates in ecosystems and releases toxic compounds and microplastics that pose risks to both the environment and life on Earth. This has encouraged the development of biodegradable alternatives. Among the proposed alternatives, polyhydroxyalkanoates (PHAs) have emerged as promising candidates due to their biodegradability and microbial origin. This study investigated the potential of fatty acid-rich anaerobic digestates (ADs) of macroalgal (Ascophyllum nodosum and Laminaria digitata) and fish meal origin, as cost-effective and renewable substrates for microbial PHA production. Three bacterial strains, including two environmental strains (Bacillus strain VH 01-01, and Pseudomonas strain JF 33-08) and one reference strain (Pseudomonas oleovorans (DSM 1045)), were cultivated in AD supplemented media (0–90% v/v) during which growth, glucose utilization, and PHA production were evaluated using quantitative and semi-quantitative methods. Highest growth rates for all strains were observed in media lacking AD, with higher concentrations generally inhibiting growth. A. nodosum digestate supported the most favorable growth and polymer production of all ADs, particularly in P. oleovorans, which sustained high PHA levels at 25% (v/v). On the other hand, fish meal and L. digitata digestate were highly inhibitory, completely suppressing growth of P. oleovorans and JF33-08 while VH 01-01 showed more resilience. Despite reduced cell proliferation, PHA synthesis often persisted at increased digestate concentrations, implying stress-induced metabolic redirection of carbon towards storage. Following a small-scale preliminary study, 16.2 mg of film-like material was extracted from 2.1 g of dry cells of P. oleovorans obtained from a 2.5 L culture supplemented with A. nodosum AD. These findings highlight the potential of crude macroalgal digestates as viable substrates for microbial bioplastic production and support the concept of waste valorization within a circular bioeconomy, providing foundation for future research on optimizing digestate-based, microbial PHA production systems

    Virkni foreldra og velferð barna

    No full text
    Uppeldi barna er eitt mikilvægasta verkefni hvers samfélags þar sem það hefur bein áhrif á framtíð einstaklinga og samfélagsins í heild. Í gegnum tíðina hefur hefðbundin fjölskylduskipan oft byggst á því að annað foreldrið, oftast móðirin, ber meiri ábyrgð á uppeldi barna á meðan faðirinn gegnir aðallega hlutverki fyrirvinnu. Hins vegar hafa orðið örar samfélagsbreytingar samhliða breyttu viðhorf til kynjajafnréttis og nýrri rannsóknir á þroska barna sýna fram á mikilvægi þess að báðir foreldrar taki virkan þátt í uppeldinu. Þessi ritgerð fjallar um áhrif virkrar þátttöku beggja foreldra á þroska, líðan og félagsfærni barna. Markmiðið er að kanna hvernig börnum reiðir af sem búa við jafnar uppeldisaðstæður þar sem báðir foreldrar taka virkan þátt í daglegu lífi barnsins. Sjónum verður beint að því hvaða áhrif það hefur á andlegan, tilfinningalegan og félagslegan þroska þess. Í ritgerðinni verður fjallað um helstu kenningar og rannsóknarniðurstöður á þessu sviði og greint frá því hvernig mismunandi fyrirkomulag við uppeldi barna getur haft áhrif á þroska þess. Rannsóknir benda til þess að nærvera og þátttaka beggja foreldra geti stuðlað að betri sjálfsmynd, aukinni félagsfærni og jákvæðri geðheilsu barna. Einnig verður skoðað hvaða þættir geta haft áhrif á þátttöku foreldra svo sem samfélagslegar aðstæður og áhersla á jafnrétti kynjana í lagaumhverfi og stefnu hins opinbera. Að lokum verður fjallað um mikilvægi þess að styðja við virka þátttöku beggja foreldra í uppeldi barna og hvaða ávinningur hlýst af því fyrir barnið og samfélagið í heild

    Eðli skilnings í stærðfræði. Tæknileg eða markværð færni

    No full text
    Þessi ritgerð er heimildaritgerð og fjallar um mismunandi birtingamyndir skilnings í stærðfræði m.a. hvernig hann nýtist einstaklingum og hvort að það sé hægt að gera skilning að lykli til frekari stærðfræðiþekkingar. Til skoðunar eru annarsvegar ferils-, heildarhugmyndar og forsjáarskilningur sem nefnast á ensku process, concept og procept. Hins vegar er fjallað um tækni- og venslaskilning sem þónokkuð hefur þónokkuð hefur verið ritað um sem instrumental and relational understanding. Ljóst er að hver og ein mynd af skilning hefur sína kosti og takmarkanir en sumar eru vænlegri en aðrar

    Stofnanabundnir kynþáttafordómar á Íslandi; Greining á félagslegri lagskiptingu í pólitískum stefnum, vinnumarkaði og menntakerfinu

    No full text
    Á undanförnum árum hefur verið fjölgun í fólksflutningum til landsins sem ýtir undir kynþátta- og þjóðernislegan fjölbreytileika. Fyrri rannsóknir hafa bent á stofnnannabundna kynþáttafordóma bæði á Norðurlöndunum og á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort að stofnanabundnir kynþáttafordómar séu enn til staðar á Íslandi og hvernig þeir birtast innan um þrjár lykilstofnannir samfélagsins sem eru stjórnvöld, vinnumarkaður og menntakerfi. Aðferðarfræði fólst í greiningu á fyrri greinum og rannsóknum á kynþáttafordómum á Íslandi ásamt greiningu á orðræðu í kosningakappræðunum 2024. Greiningu var beitt í gegnum kenningarleg nálgun Max Webers um völd, stöðu og félagslega lagskiptingu. Í niðurstöðunum kom í ljós að leiðtogar stjórnarflokka nýta vald sitt til þess að móta orðræðu sem ýtir undir félagslega lagskiptingu, þar sem þjóðernishyggja og leifar af nýlenduhugsun spila stórt hlutverk. Á vinnumarkaði mætir farandfólk hindrunum vegna takmarkaðar viðurkenningar á fyrri menntun og af öðrum menningarlegum aðstæðum. Í menntakerfinu vantar úrræði til þess að styðja við börn af erlendum uppruna og fullorðna í íslenskunámi. Að lokum þá koma búsetuaðstæður farandfólks í veg fyrir myndun á félagslegum tengslum við Íslendinga. Þessir þættir benda til þess að stofannabundnir kynþáttafordómar séu til staðar og stuðla að félagslegri lagskiptingu farandfólks á Íslandi

    Sucky Title

    No full text
    This essay reflects upon the impact that perfectionism and fear of failure had in the creation of my solo contemporary dance work Sucky Title. In the first chapter I begin by defining perfectionism through Sanna Nordin’s resource paper in the International Association for Dance Medicine and Science. When that is established, the theoretical framework for the paper, Happy Objects by Sara Ahmed and The Queer Art of failure by Judith Halberstam is introduced. Through the lens of Happy Objects, I look at how perfectionism is a ‘happy object’, something we orientate towards with the presumption that happiness will follow. After this, I will discuss the negative consequences of perfectionism as a happy object and how that generates fear of failure. With the help from Halberstam and Ahmed’s texts this chapter proposes that we can escape our fear of failure by accepting contingency and uncertainty. In the second chapter I reflect around fear of failure in the creative process of making Sucky Title. Firstly, I contemplate how excessively planning out the piece generated disappointment and fear because my expectations were not fulfilled. Further, I reflect on the attempt to disarm that fear through exposure to failure both alone and in front of an outside audience. Lastly, the performance aspect of the research is reviewed. In the end, the fear of having to perform an imperfect piece was erased, because I had accepted the uncertainty that comes with a creative process and performance. I was then able to fail according to the perfectionistic norm, without it making me unhappy

    Karlmennska og kynferðisofbeldi: Félagsleg áhrif ráðandi karlmennsku á kynferðisofbeldi gegn konum

    No full text
    Ritgerð þessi fjallar um hvernig ráðandi karlmennska hefur áhrif á kynferðisofbeldi karlmanna gegn konum. Notast er við kenningar Raewyn Connell um ráðandi og eitraða karlmennsku, auk kenningar Pierre Bourdieu um veruhátt. Rannsóknarspurningarnar eru tvær: (1) Hvernig birtast áhrif ráðandi karlmennskuhugmynda á kynferðisofbeldi karlmanna gegn konum? og (2) Hvernig er hægt að virkja karlmenn í baráttunni gegn kynferðisofbeldi? Með heimildarýni og samtali við sérfræðing hjá Stígamótum er sýnt fram á hvernig klámvæðing, þolendaskömmun, veikleikar í réttarkerfinu og ráðandi karlmennskuhugmyndir stuðla að kynferðisofbeldi gegn konum. Þá er einnig skoðað hvernig karlmenn geta orðið virkir þátttakendur í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, og hvers konar hindranir standa í vegi fyrir þátttöku þeirra. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir jákvæð skref í átt að auknu jafnrétti, þá eru ráðandi karlmennskuhugmyndir enn áberandi í íslensku samfélagi og viðhalda kynferðislegu og félagslegu valdamisræmi. Til að sporna gegn kynferðisofbeldi er mikilvægt að ögra ráðandi karlmennskuhugmyndum, efla fræðslu og vitundarvakningu í samfélaginu, virkja karlmenn til þátttöku í baráttunni og þróa skilvirkari úrræði og þjónustu innan stofnana samfélagsins

    Börn í skugga áfengis : Áhrif áfengisröskunar foreldra á börn

    No full text
    Tilgangur ritgerðarinnar er að kanna hver eru áhrif áfengisröskunar foreldra á börn, hverjar afleiðingar slíkrar röskunar eru á börn, hvaða hlutverk börn taka að sér til að aðlagast aðstæðum heima og hvaða úrræði eru í boði. Þessi ritgerð er hefðbundin heimildaritgerð þar sem notast er við fræðilegar heimildir. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að áfengisröskun foreldra hefur mikil áhrif á börn þeirra, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Þessi börn alast oft upp við óstöðugt umhverfi, finna fyrir skorti á öryggi og tilfinningalegri fjarlægð frá foreldrum. Þessar uppeldisaðstæður hafa oftar en ekki áhrif á tengslamyndun og þroska barnanna. Börn foreldra með áfengisröskun upplifa oft kvíða, eru með lélega sjálfsmynd og mikla þörf fyrir að stjórna aðstæðum. Þau taka oft að sér ákveðin hlutverk innan fjölskyldunnar sem er einhvers konar leið til að takast á við vandann sem er heima. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna einnig að ofbeldi og vanræksla eru algeng hjá börnum þar sem foreldri glímir við áfengisröskun en þetta tvennt getur haft varanleg áhrif á þroska og líðan barnsins. Uppkomin börn alkóhólista eiga oft í erfiðleikum með að mynda tengsl og leitast oft við að þóknast öðrum. Það verður samt að hafa í huga að ekki öll börn foreldra sem eru með áfengisröskun glíma við sömu afeiðingar eða sýna sömu hegðun þar sem hvert tilfelli er sérstakt. Það eru til úrræði á Íslandi fyrir börn sem eiga foreldra með áfengisröskun en það vantar fleiri. Því er nauðsynlegt að efla fræðslu og stuðning fyrir börnin til að koma í veg fyrir langtímaafleiðingar áfengisröskunar foreldra á líf þeirra

    The role of feedback for science students' progress towards the UN Key competencies for Sustainable Development Goals in rural Junior High Schools in Kwabre East Municipal, Ghana.

    No full text
    Ghana faces sustainability challenges that are essential for achieving the United Nations Sustainable Development Goals (SDGs). Among these, Goal 4 advocates for high-quality education, with Target 4.7, specifically aiming to ensure that all learners acquire the knowledge and skills needed to promote sustainable development by 2030. Achieving this goal requires comprehensive transformations that will necessitate innovative pedagogical strategies. This research aims to understand the role of feedback in science students’ progress towards the United Nations´ key competencies in rural junior high schools in Ghana. The eight key competencies are essential for addressing global challenges and achieving the SDGs. Data collection took place in four junior high schools in Kwabre East Municipal, Ghana. Eight science teachers were interviewed, and eight focus groups of students, a total of 40 students. Findings revealed that the teachers' view of the key competencies is that these are included in the school syllabus but are not explicitly emphasised. Teachers explained how the type of feedback is mostly statements about the overall quality of student work and progress, not including any details. Students agreed and confirmed that. The methods of feedback are mostly written feedback with short comments on each assignment, rarely followed up with oral explanations. Student performance is measured by grades. Students liked the written feedback but called for more details with examples of how to improve. The teachers explained how they don’t teach the key competencies explicitly, but they assume the student will acquire some kind of a ‘by-product’ and want support from the Ghana Education Service to address the key competencies in their teaching. These findings indicate that students are given limited feedback to gain the UN key competencies, and the requirements of the curriculum in terms of feedback are not fulfilled. The findings also indicate that the Ghanaian authorities need to organise capacity-building workshops and training for science teachers to educate them on the United Nations’ key competencies and how they can include them in their teaching plan. The teachers should also be trained on how to provide clear, detailed and goal-oriented feedback to students to help them acquire the UN’s key competencies

    21

    full texts

    50,783

    metadata records
    Updated in last 30 days.
    Skemman (Island)
    Access Repository Dashboard
    Do you manage Open Research Online? Become a CORE Member to access insider analytics, issue reports and manage access to outputs from your repository in the CORE Repository Dashboard! 👇