Skemman (Island)
Not a member yet
50783 research outputs found
Sort by
Fisheries Crime in the Icelandic Fishing Industry: Discarding and Black Landing
Sjávarútvegur er ein veigamesta og arðbærasta atvinnugrein landsins og gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Atvinnugreinin hefur verið íslenskum samfélögum litlum sem stórum lífæð í aldanna rás og tryggt landsmönnum bætt lífskjör. Miklir þjóðfélagslegir hagsmunir eru fólgnir í því að í allri umgengni um auðlindir hafsins sé sýnd virðing. Mikilvægt er að eftirlit sé haft með afnotum af auðlindum en nytjastofnar sjávar eru takmörkuð auðlind. Hafsvæðið umhverfis Ísland, getur til framtíðar tryggt komandi kynslóðum bætt lífskjör en til að svo megi verða er mikilvægt að skynsemi sé höfð að leiðarljósi þegar kemur að nýtingu auðlinda hafsins. Á áttunda áratug síðustu aldar urðu kaflaskipti í íslenskum sjávarútvegi þegar fyrstu skref voru tekin að sjálfbærum veiðum. Í framhaldi var íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu komið á sem tryggja átti sjálfbærni veiða til frambúðar. Í dag þykir kerfið framúrskarandi á heimsvísu, talið öflugt og til fyrirmyndar en fiskveiðistjórnunarkerfið grundvallast á flóknu og umfangsmiklu regluverki fiskveiðistjórnunar sem þykir komið til ára sinna. Hluti regluverksins eru lög um umgengni um nytjastofna sjávar nr. 57/1996 sem bæta áttu umgengni um auðlindir sjávar með hertu eftirliti með fiskveiðibrotum. Góð umgengni um auðlindir sjávar er einn meginþáttur sjálfbæra veiða, hverskonar frávik í umgengni þykir þar með fara á skjön við sjónarmið um sjálfbærni. Vegna þessa hefur orðið aukið ákall eftir því að slík frávik verði tekin fyrir sérstaklega m.t.t. þeirra veigamiklu almannahagsmuna sem þau varða. Í umfjölluninni verður áhersla lögð á sjálfbærni veiða og mikilvægi þess að gengið sé vel um auðlindir sjávar, brot gegn fiskveiðilöggjöfinni einkum brottkasti og vigtarbroti á hafnarvog og að lokum verður gerð grein fyrir stjórnsýslu- og refsiviðurlögum sem við fiskveiðibrotunum liggja. Gert verður grein fyrir drögum að frumvarpi til laga um sjávarútveg og þá sérstaklega m.t.t. brottkasts og vigtarbrota. Leitast verður við að skýra hugtökin vigtarbrot og brottkast, réttarumhverfi þeirra og mikilvægi þess að tekið sé á slíkum brotum. Umgengnisvandamál eru í íslenskum sjávarútvegi og kom í ljós við gerð ritgerðarinnar að regluverkið sem kerfið er reist á sé ekki í stakk búið að taka á þeim með fullnægjandi hætti. Regluverkið endurspeglar ekki hið framúrskarandi fiskveiðistjórnunarkerfi en einstakir þættir innan regluverksins þykja ekki samræmast ásýnd fiskveiðistjórnunarkerfisins. Mikilvægt er fyrir íslensku þjóðina að gæði löggjafarinnar sem fiskveiðistjórnunarkerfið byggir á sé í samræmi við kerfið sjálft til að tryggja áframhaldandi stöðu Íslands sem leiðandi ríki á sviði fiskveiða. Það er hagur þjóðarinnar að hugað sé að umgengni um auðlindir sjávar með ábyrgum hætti svo tryggja megi að sjávarútvegur sem í dag er ein af grunnstoðum í íslensku atvinnu- og efnahagslífi verði það áfram um ókomin ár
Heimurinn er hér: hlutverk bókasafna í fjölmenningarlegu samfélagi
Viðfangsefni þessarar BA ritgerðar er að skoða þátttöku bókasafna á höfuðborgarsvæðinu í fjölmenningarlegu samfélagi. Í samtímanum eru málefni fólks af erlendum uppruna ofarlega í umræðunni um heim allan og einkennist hún af ólíkri orðræðu um tilvist og örlög þessa samfélagshóps. Orðræðan ber oft keim af fordómum gagnvart þessum þjóðfélagsþegnum sem skapar hættu á að einstaklingarnir upplifi andlega vanlíðan og skort á félagslegum tengslum. Fólksflutningar til Íslands eru tíðari nú en áður og samhliða því hefur skapast þörf fyrir að allir samfélagshópar aðlagist breyttri samfélagsgerð. Út frá niðurstöðum fræðilegra rannsókna, viðtölum við fulltrúa frá Borgarbókasafninu, Bókasafni Kópavogs og Bókasafni Hafnarfjarðar, ásamt viðtölum við fræðimenn og starfsfólk sem vinna í þágu málefna fólks af erlendum uppruna á Íslandi, og þátttökuathugunum, er leitast við að varpa ljósi á hlutverk bókasafna í fjölmenningarlegu samfélagi og verður umræðan sett í samhengi við áhrifamátt skapandi aðferða sem hluta af fjölmenningarstarfi þeirra. Niðurstöðurnar voru greindar út frá fræðilegum grundvelli sem byggir á hugmyndum um þróun á hlutverki bókasafna í að efla félagslegt réttlæti og jöfnuð í þeim tilgangi að stuðla að inngildingu. Rannsóknaniðurstöður sýna annars vegar fram á að bókasöfnin eru meðvituð um hlutverk sitt í samfélaginu og mikilvægi þess að huga í starfi sínu að stöðu fólks af erlendum uppruna á Íslandi, og hins vegar fram á skorti á fjármagni til verkefna sem unnin eru í þágu inngildingar fólks af erlendum uppruna, og þar með talið fjölmenningarstarfs á vegum bókasafnana, en orð og athafnir virðast ekki fara saman.The subject of this BA thesis is to examine the participation of libraries in the capital area in a multicultural society. In contemporary times, issues of people of foreign origin are at the forefront of discussions around the world and are characterized by different discourses about the existence and fate of this social group. The discourse often carries a tinge of prejudice towards these members of society, which creates a risk that individuals will experience mental distress and a lack of social connections. Migration to Iceland is more frequent now than before, and at the same time there has been a need for all social groups to adapt to the changing social structure. Based on the results of academic research, interviews with representatives from The
City Library, Kópavogur Library and Hafnarfjörður Library, alongside of interviews with scholars and employees who work within the field, and participatory observations, an attempt will be made to shed light on the role of libraries in a multicultural society. In addition to that, the discussion will be placed in the context of the impact of creative methods as part of their multicultural work. The results were analyzed from a theoretical basis based on ideas about the evolving role of libraries in promoting social justice and equality in order to promote inclusion.
An attempt is also made to explore, from an academic discourse, the impact of creative methods for the same purpose. The research findings indicate, on one hand, that libraries are aware of their role in society and the importance of considering the status of people of foreign origin in Iceland in their work, and on the other hand, a lack of financial flow for multicultural work by libraries, where words and actions do not seem to match
Stórhátíð neysluhyggjunnar. Afleiðingar óhóflegrar neyslu á jólunum
Eftirfarandi heimildaritgerð er lokaverkefni til BA-gráðu Í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og fjallar um áhrifaþætti óhóflegrar neyslu á jólahátíðinni og afleiðingarnar sem hún hefur í för með sér. Neysla hefur aukist verulega á síðustu áratugum og með henni fylgja margvíslegar áskoranir: fjárhagslegar, sálrænar, líkamlegar og umhverfislegar. Þetta er sérstaklega áberandi á jólahátíðinni, þar sem væntingar og félagslegur þrýstingur leiðir til aukinnar neyslu og streitu. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvaða afleiðingar óhófleg neysla hefur fyrir einstaklinga og samfélög. Félagsráðgjafar geta spornað gegn neikvæðum afleiðingum óhóflegrar neyslu með tveimur aðferðum: auknu fjármálalæsi og grænni félagsráðgjöf. Fjármálalæsi hjálpar fólki að auka skilning á eigin neysluhegðun og stuðlar að sjálfstjórn og fjárhagslegu öryggi. Græn félagsráðgjöf tengir félagslega og vistfræðilega velferð og veitir einstaklingum tæki og tól til að lifa sjálfbærara lífi. Niðurstöður benda til þess að jólin þurfa ekki að vera neysluhátíðin sem hún er í dag, heldur má leggja meiri áherslu á sjálfbærni og grunngildi jóla: kærleika og samveru
How stimulus contrast in ensembles affects serial dependence
To ensure perceptual stability, our visual system tends to bias current evidence towards what has previously been observed, a phenomenon known as serial dependence. A body of research has demonstrated the effect in single items across varying uncertainty contexts, but a comprehensive understanding of how the bias manifests in ensemble representations is incomplete. The current study aims to further investigate how stimulus uncertainty in groups of items influences serial dependence. Twenty-one participants partook in the experiment where they were tasked with reproducing the average orientation of a randomly oriented group of Gabors, where spatial frequencies varied between trials (0.5 or 2). Our results verified serial dependence in ensemble representations, yet the effect remained the same across different uncertainty contexts. These findings propose that although the bias persists when observing multiple objects, reliance on previous information is not influenced by the ambiguity of relevant stimuli.
Keywords: visual perception, serial dependence, perceptual averagin
From sea to society : tracing the ecosystem services flow from coastal and marine biodiversity in the trilateral Wadden Sea
Ritgerðin er lokuð til 01.10.2026This thesis explores how marine and coastal biodiversity in the Trilateral Wadden Sea provides ecosystem services that flow from the natural environment to society and thus contribute to human wellbeing. Through an extensive integrative review of both grey and academic literature, I identify and describe 26 distinct ecosystem services and 11 disservices directly or indirectly linked to biodiversity. I analyse a wide range of natural and anthropogenic factors that influence the provisioning and flow of these services, including synergies and trade-offs between services, drivers of and threats to flow, and the elements of the ecosystem service cascade model that connect ecological processes with societal values. Finally, I visualize these flows conceptually and spatially to illustrate the interconnectedness and complexity of ecosystem service provisioning in coastal and marine contexts. Together, these steps help clarify and effectively communicate the multifaceted role of biodiversity in this unique intertidal system, providing insights for conservation efforts and informed ecosystem-based management in the Wadden Sea.Þessi ritgerð kannar hvernig líffræðilegur fjölbreytileiki sjávar og stranda í Þríhliða Vaðhafinu veitir vistkerfisþjónustur sem flæða frá náttúrulegu umhverfi til samfélags og stuðla þannig að velsæld manna. Með ítarlegri heildstæðri rýni á bæði gráum og fræðilegum heimildum, greini ég og lýsi 26 aðgreindum vistkerfisþjónustum og 11 neikvæðum vistkerfisþáttum sem beint eða óbeint tengjast líffræðilegum fjölbreytileika. Ég greini vítt svið náttúrulegra og manngerðra þátta sem hafa áhrif á veitingu og flæði þessara þjónustuþátta, þar á meðal samlegðaráhrif og fórnarkostnað milli þjónustu, hvata og ógna fyrir flæði, og þætti í fosslíkaninu sem tengir vistfræðileg ferli við samfélagsleg gildi. Að lokum myndgeri ég þessi flæði bæði hugmyndafræðilega og rúmlega til að sýna fram á samtengingu og flækjustig vistkerfisþjónustu í samhengi stranda og sjávar. Saman hjálpa þessi skref til að skýra og miðla á áhrifaríkan hátt margþættu hlutverki líffræðilegs fjölbreytileika í þessu einstaka fjöruvistkerfi og veita innsýn fyrir náttúruvernd og upplýsta vistkerfisnálgun í stjórnun Vaðhafsins
The effects of including choice among medical activities on fear-related avoidance behavior related to medica/physical exams with children who have high support needs
Medical visits are up to six times more frequent for individuals diagnosed with autism spectrum disorder (ASD) and Intellectual and Developmental Disabilities (IDD). Unfortunately, children with ASD and/or IDD are more likely to be subjected to invasive methods during medically related visits, such as restraints or sedation which can in turn increase the likelihood of fear-related behavior or non-adherence which then can lead to significant negative effects to their healthcare. The purpose of the current study was to get information on parent´s/caregiver´s view and general experience at doctor´s appointments with their children with high support needs and to evaluate the effects of including choice among medical activities on fear-related avoidance behavior during medical/physical exams with three children with high support needs. This study was therefore two-phased 1) an electronic survey and 2) experiment with two conditions, choice condition and stimulus fading. Results for phase 1 show that from the 16.20% response rate, under 1/3 of parents/caregivers said their child needs anesthesia during minor inspections and nearly half said they avoid bringing their child to the doctor´s because of their or their child´s negative experience. Additionally, over 3/4 have experience in having to hold down their child or use physical restraining during medical exams. Results for phase 2 indicate that choice was effective in facilitating medical adherence and attenuating fear-related avoidance behavior for all three participants, and stimulus fading was necessary for one task for one participant. Practical limitations and strengths to the current study and implications for future research will be discussed.
Keywords: Medical/physical exams, medical adherence, fear-related avoidance behavior, choice, stimulus fading, autism spectrum disorder, high support needs
Neo-Historical Drama: A New Television Subgenre as Exemplified by Dickinson, Bridgerton, and My Lady Jane
Historical period dramas are a popular form of entertainment, and in recent years, starting in 2019, a large number of historical dramas that incorporate creative and intentional anachronism in their narratives have been produced. This research proposes the term “neo-historical drama” as a subgenre within historical drama television. Drawing on Stephanie Russo’s theory of the anachronistic turn, this thesis argues that Dickinson, Bridgerton, and My Lady Jane are anachronistic television series that should not be examined using the same parameters as in analyzing historical dramas. Neo-historical dramas are intentionally anachronistic, and they use techniques of remixing history with internet culture to create a queer temporality that collapses the idea of linear time. This research examines the anachronistic moments and remix culture within Dickinson, Bridgerton, and My Lady Jane to explore how it is in this remix of past and present that producers and audiences are using the veneer of a historical past to discuss the state of gender, racial, and social inequality in contemporary society. Examining neo-historical dramas such as Dickinson, Bridgerton, and My Lady Jane without the strict parameters of truth, authenticity, and fidelity often required in critiques of historical dramas can reveal how these television series are changing Western internet culture. These manifestations include a visible cultural shift from postmodern historical narratives to storytelling that uses creative anachronism and remix culture to re-evaluate historical evidence. Theorizing neo-historical drama as a subgenre of historical drama television affords series like Dickinson, Bridgerton and My Lady Jane to be viewed as valid forms of entertainment contending with important contemporary issues, rather than being dismissed as unwatchable period dramas because of their blatant infidelity to history
A Cree Hermeneutical Study of Grettis saga
My central thesis is that a Cree hermeneutical study of Grettis saga brings unique insights into the text. Following Neil Price (Price, 2019), I want to draw upon elements of beliefs and narratives of Indigenous people from North America. In particular, Cree culture will be drawn upon to animate the interpretation of old Norse literature, focusing on Grettis saga. It has been over a millennium since Iceland adopted Christianity, and some of the knowledge and experiences regarding pre-Christian beliefs has been lost as a living, narrative memory. In contrast, pre-Christian Cree beliefs, despite colonial disruption, are still intact, and can be used to amplify the understanding of Grettis saga. Through a Horizontverschmelzung (Gadamer, 1960) between Cree narrative memory and the narrative structure of Grettis saga, the following themes will be explored: 1. the decline of the heroic ideal, 2. indigeneity and Icelandic connections to land and space in Grettis saga, 3. Gadamer’s notion of play as found in Ayȃs (Cree folk hero) and Grettir’s exile and outlawry, 4. confronting monstrosity (Glámr and wȋhtikowak), and 5. magic and feuds in the context of Þuríðr’s curse upon Grettir.Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig túlkunarfræði Cree frumbyggja færir einstaka innsýn í Grettis sögu. Út frá kenningum Neil Price, 2019 eru notaðir þættir úr viðhorfum og frásögnum frumbyggja í Norður-Ameríku. Sérstaklega verður gripið til menningar Cree frumbyggja til að auðga túlkun á íslenskum fornbókmenntum með áherslu á Grettis sögu. Meira en þúsund ár eru liðin síðan Ísland tók upp kristna trú og hefur hluti af þeirri þekkingu og reynslu á fornkristnum viðhorfum glatast sem lifandi frásagnarminni. Aftur á móti er trú Cree frumbyggja enn sú sama og var fyrir tíma kristni, þrátt fyrir að hafa orðið fyrir truflun á nýlendutímanum, og er hægt að nota hana til að auka skilning á Grettis sögu. Í gegnum Horizontverschmelzung, Gadamer, 1960 á milli frásagnaminnis Cree frumbyggja og frásagnarbyggingar Grettis sögu verða eftirfarandi þemu skoðuð: 1. hnignun hetjuhugsjónarinnar, 2. tengsl frumbyggja og íslensk tengsl við land og rými í Grettis sögu, 3. hugmyndir Gadamers um leikinn eins og finnst í Ayȃs (Cree þjóðhetja) og útlegð Grettis, 4. átök við óvætti (Glámur og wȋhtikowak), og 5. galdrar og deilur í samhengi við bölvun Þuríðar á Gretti
The Eye Mask: Þýðing þriggja sagna úr smásögusafni Svefngríman eftir Örvar Smárason
Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA prófs í íslensku sem öðru máli. Hún er þýðing á völdum smásögum úr smásagnasafninu Svefngríman eftir Örvar Smárason ásamt greinargerð. Ritgerðinni er skipt í tvo meginhluta. Sá fyrri er greinargerðin, en hún skiptist í þrjá undirflokka. Fyrst kemur inngangur, þar sem fjallað er um efnið sem er þýtt, um markmið við þýðinguna og sagt aðeins frá höfundi. Síðan verður fjallað um þýðingaraðferðir, form og stíl frumtextans og hvernig þýðandinn ætlar að koma öllu því til skila í markmálinu. Loks verður farið yfir þau margvíslegu vandamál sem komu upp við gerð þýðingarinnar. Síðari hlutinn er svo þýðingin sjálf
Samþætting Discord og EVE Frontier
Undanfarin ár hefur leikjaframleiðandinn CCP unnið að nýjum leik sem kallast Frontier. Núverandi samskipta kerfi leiksins er gamalt og því vilja þeir skipta því út fyrir eitthvað nýrra. Þeir leita að hagnýtum, jafnframt nútímalegum lausnum.
Discord er gífurlega vinsælt samskiptaforrit sem er einkum notað af leikjaspilurum. Þeir bjóða leikjaframleiðendum möguleikann á að innleiða þjónustuna sína í leiki með hjálp Social Layer SDK verkfærisins. Leikir sem innleiða þessa þjónustu geta leyft spilurum að auðkenna sig og sótt upplýsingar sínar frá Discord. Það gerir þeim meðal annars kleift að eiga samskipti við Discord vini sína inn í leiknum.
Þetta verkefni rannsakar hversu raunhæft er að innleiða þjónustu Discord í Frontier leikinn, ásamt því að þróa frumgerð sem uppfyllir nauðsynlegar grunnkröfur samskiptakerfis.
Meginafurð verkefnisins var hönnunarskjal sem inniheldur upplýsingar um mögulegar lausnir og takmarkanir við innleiðingu Discord í Frontier. Í því er einnig fjallað um ýmis útfærsluatriði frumgerðarinnar. Niðurstöður verkefnisins bentu til að árangursrík innleiðing sé mjög raunhæf.For the past few years, the video game company CCP has been developing a new game to add to their roster, called Frontier. They are looking to replace their current in-game chat service with a more modern one.
Discord is a very popular instant messaging platform which offers developers the possibility of integrating games to their chat services via their newly released Social Layer SDK (software development kit). Integrated games have the option to authenticate with, and retrieve user data from Discord’s platform and enable players to communicate in-game via Discord.
This project investigates whether an integration between Frontier and Discord is feasible, and implements a proof of concept prototype which fulfills the fundamental requirements of an in-game chat system.
The results of the investigation were positive and indicate that a successful integration is more than feasible. A design document was prepared which includes potential solutions and limitations of the integration process, along with some prototype implementation details.CCP Game